Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Síða 12
12
DV. LADGARDAGUR 2.'JÚNÍ1884.
TIL SÖLU
•assiw
Rover 3500 árgerð 1978, ekinn 48 þúsund km frá
upphafi. Upplýsingar í síma 39626.
Afmælishappdrættí
Sj álfstæðisflokksins
Dregið
9% r r
.jum
NAUTAKJÖT
Okkar verð
T. Bone steik
Nauta roast beef
Nauta snitchel
Nautagullasch
Nautabuff
Nautalundir
Nautafillet
Nautabógsteik
Nautagrilisteik
Nautahakk
10 kg nautahakk
Nautahamborgari
UPPVASHIÐ
ERfíÐAST
— segja þau Stefán, Kolbrún og Kristfn „Á virkum degi”
Morgunþáttur allra landsmanna, A
virkum degi, hefur nú runnið sitt skeið
á enda og þau Stefán Jökulsson, Kol-
brún Halldórsdóttir og Kristín Jóns-
dóttir hafa snúið sér að öðru en aö
vekja þjóðina á virkum dögum. Við
hlutverki þeirra hafa tekið þau Illugi
Jökulsson og Hanna Sigurðardóttir og
munu þau sjá um að ræsa landsmenn á
morgnana næstu þrjá mánuðina að
minnsta kosti.
Viðkvæmur tími morgnarnir
Þáttiu-inn A virkum degi hóf göngu
sína 1. október síöastliðinn eða fyrir
réttum átta mánuðum og á tímamót-
um sem þessum þótti okkur viöeigandi
að spjalla stuttlega við Stefán, Kol-
brúnu og Kristínu.
Hvernig skyldi þeim hafa líkað starf-
inn?
— Eg er lukkuleg með að vera laus,
segir Kolbrún.
— En það er ekki vegna þess aö mér
hafi leiðst, síöur en svo, þetta hefur
verið mjög skemmtilegur og spenn-
andi tími.
— Þetta hefur veriö erfitt starf og
því hefur fylgt mikil áby rgð, segir Stef-
án alvörugefinn. Stelpumar skella upp
úr.
— Við erum ekki vanalega svona al-
varleg, segir Kolbrún. — Við erum
frekar létt að eðlisfari. Þó höfum við
alls ekki veriö of galsafengin í þessum
þáttum, þetta er jú viðkvæmur tími í
lífi ma rgra, morgnarnir.
Stefán tekur þaö fram að hann beri
enga ábyrgð á því sem stelpumar segi
og stelpumar svara í sömu mynt með
bros á vör.
Vask í stúdíói 1
En hvað skyldi hafa verið erfiðast á
virkum dögum í vetur?
— Tvimælalaust að hella upp á könn-
una, uppvaskið og skýrslugerðin, segja
stelpumar og Stefán samsinnir.
— Uppvöskunaraöstaöan hér er til
skammar, segir Kristín.
011 segjast þau binda miklar vonir
við að úr þessu verði bætt í nýja út-
varpshúsinu sem er að risa.
— Vask í stúdíói eitt, segir Kristín.
Stefán vekur athygli á því að það
vanti tilfinnanlega sturtu sem hægt sé
að bregða sér í á morgnana sér til
hressingar.
I framhaldi af því spyrjum við hvort
þaö sé ekki erfitt að vakna svona
snemma á hverjum morgni og vera
hress í eyrum þjóðarinnar. Og þess ber
að geta að þau vakna tvö og tvö til
skiptis klukkan hálfsex á morgnana.
— Nei, það er ekki strembið lengur,