Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Page 21
DV. LAUGARDAGUR 2. JUNl 1984.
21
Rætt vtd
Kristján
Óskarsson
skipstjóra
frá Siglufirdí
mál Kristjáns en annars er furöulegt
hvaö nærri fjörutíu ára fjarvera frá
landi og þjóö hefur litt afbakaö
tungutak hans.
„Eg hitti sjaldan Islendinga og hef
lítiö haft tækifæri til að tala móðurmál-
iö á flökti mínu um heiminn. En ég hef
reynt aö halda islenskunni og fæ stund-
um dagblöð aö heiman. Veistu aö
stundum er ég að lesa tveggja, þriggja
ára gömul blöð en þaö hjálpar mikið.”
„Mér finnst alveg dásamlegt aö
koma til Islands og sérstaklega aö
heyra íslenskuna” hélt Kristján áfram
„Og breytingarnar hér eru alveg stór-
kostlegar, vegimir til dæmis. Eg fór
norður til Siglufjarðar um daginn, ók
sjálfur og mér finnst einstakt hvaö
mikið er búiö aö gera. Því allt þetta
landflæmi, sem er nú ekki eins og
pönnukaka, er erfitt yfirferðar. En þaö
er stórkostlegt hvaö hefur tekist aö
gera. Húsakynnin hér, þau eru líka
einstök, ég held aö þaö þekkist hvergi
annaöeins.”
Kristján Oskarsson er Siglfiröingur,
foreldrar hans voru Guðlaug Sveins-
dóttir og Oskar Sveinsson. Tvo albræð-
ur á hann, annar er hér og hinn skip-
stjóri í Noregi.
Tvöfaldan hring
„Mér finnst gaman aö ferðast um
landiö, fólk er vingjarnlegt og það er
sérkennilegt hvaö ættartengsl eru
sterk hér á landi. Ef fólk tekur tal sam-
an fer þaö strax að leiða saman ættir
sínar, þaö finnst mér mjög merkilegt.
Annars hef ég tekið eftir því aö fólk
byrjar oft í umræðum að tala um nei-
kvæða hluti eins og til dæmis veðrið.
Maöur á alltaf að byrja á einhverju já-
kvæöu. Hér er svo margt gott, hugsaðu
þér heita vatnið. Eg held að fólk geri
sér ekki alveg grein fyrir því hvað
margt gott er hér. Og svo eiga Islend-
ingar gullnámu í menntamönnum.”
örlítiö meira fór hann út í að lýsa
þjóðareinkennum okkar, sagöi aö við
værum lokuð en sjálfstæö. Reyndar
eins og allir eyjabúar, flestir með jám-
hring í kringum múrinn, en Islending-
ar með tvöfaldan hring. En eftir tæp-
lega fjörutíu ára fjarveru hefur Krist-
ján skipstjóri hug á því að flytja hing-
að.
ísland vel kynnt
„ Já, ég þarf að reyna aö komast inn í
kerfið hér því það hefur alltaf verið
mín hugmynd að koma heim aftur. Og
vonandi verður þaö í náinni framtíð.
Konan mín, Alís, sem er þýsk, og börn-
in vilja koma svo að það verður úr,”
sagði Kristján Oskarsson skipstjóri
sem siglt hefur um öll heimsins höf og
kynnst framandi þjóðum á „flökti”
sinu um heiminn, eins og hann oröaði
þaðsjálfur.
Aður en við kvöddumst hafði hann
orð á því hvað mikill munur væri á því í
dag að vera Islendingur á meöal
ókunnugra þjóða. I dag er Island vel
þekkt og taldi hann að Flugleiðir og
starfsfólk þess fyrirtækis ættu stóran
þátt í þvi. Einnig heimsmeistaraein-
vígið á milli Fischer og Spassky hér
um áriö.
„Austurlandamenn eru meira upp-
lýstir um Island en margir Vestur-
landabúar, eöa þaö fannst mér fyrstu
árin, þetta hefur breyst mikið síðustu
árin. Fyrstu árin var litið á mig sem
eskimóa og f ólk hélt að Island væri lítið
sandrif í Norður-Atlantshafi.”
Skipstjórinn frá Siglufirði hefur ef-
laust átt sinn þátt í því að kynna land
ogþjóðvel.
—ÞG
VOLVO 244TURBO '82,
ekinn 17.000, beinsk., m/yfirgír,
silfur-met., með fjölda aukahluta.
Verðkr. 550.000,-
VOLVO 343 DL '79,
ekinn 70.000, sjálfsk., gulur. Verð kr.
170.000,-
VOLVO 245 DL '83,
ekinn 5.000, beinsk., ljósblár,
m/læstu drifi. Verð kr. 480.000,-
VOLVO 244 DL '81,
ekinn 19.000, sjálfsk., blár. Verð kr.
360.000,-
VOLVO 244 GL '81,
ekinn 39.000, beinsk., m/yfirgír,
nugat-met. Verð kr. 380.000,-
VOLVO 244 DL '78,
ekinn 48.000, sjálfsk., m/vökvastýri,
rauður. Verð kr. 240.000,-
Volvo 244 DL '77,
ekinn 96.000, beinsk. gulur. Verð kr.
180.000,-
VOLVO 244 DL '83,
ekinn 11.000,-, sjálfskiptur, rauður.
Verðkr. 465.000,-
OPIÐÍDAGKL. 13-17
VODfOSAUIRlNN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
KOMIÐ OG SJAIÐ
MESTA BÍLAÚRVAL LANDSIIMS
Saab turbo 1982
Ford Bronco 1982
Oldsmobile disil 1983
Golf GTI 1983
Toyota Hilux 1983
Opið laugardaga kl. 10-
18.
ATHUGIÐ NÝTT
SÍMANÚMER. 686477.
Range Rover 1976
(
8B
GMC dísil, 6 cyl.
BILASALAN BLIK
Skeifunni 8, sími 686477.
Volvo turbo 1983
Þú færð meiri endingu
úr stál-radial dekkjunum
frá Goodyear.
Kynntu þér kosti þeirra og hafðu
samband við sölumenn okkar.
RADIAL
VÖRUBÍLADEKK
n.
Q-
YEAR
RETTA GRIPHD
GEFUR
[hIheklahf
J Laugavegi 170-172 Simar 21240-28080