Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Síða 24
24
DV. LAUGARDAGUR 2. JUNÍ1984.
Sumarleyfi
þlngmaima
Hvernig verja þingmenn :;umarleyfi sínu sem mörgum þykir nokkuð langt? Þetta
er árviss spurning sem vaknar í hugskotum um leið og krían kemur. Þjóðin fylgd-
ist með annasömum þingstörfum rétt fyrir þinglausnir. Þá var fundað dag og
nótt. Eflaust voru þingmenn fegnir þegar fríið tiófst. Eða hófst sumarleyfið þá? í
viðtöium okkar við nokkra þingmenn kemur ffram að þeir eru yfirleitt mikið
bundnir yfir fundum á sumrin. Það er togað i marga spotta og skyldur þingmanna
ná langt út ffyrir þingsali. Og svo þurfa þeir að bitta mann og annan, dytta að
húsunum sínum og görðum og síðast en ekki síst undirbúa þingstörf næsta
vetrar. -ÞG
Jóhanna Sigurðardéttlr
Ferðast um
Aastfirði
„Þaö er ekkert sérstakt planlagt hjá
mér í sumar,” svaraöi Jóhanna Sig-
urðardóttir spumingum varðandi
sumarleyfiö. „Þaö eru fundahöld
framundan hjá Alþýðuflokknum í júní-
mánuöi sem fer góöur tími í. Eg geri
ráö fyrir aö fara í stuttar feröir hér
innanlands, viö komumst ekkert til út-
landa. Enda hef ég yfirleitt meiri
áhuga á ferölögum hér en erlendis. Eg
á eftir að ferðast um Austfirðina, eða
hluta þeirra, sem ég geri vonandi í
sumar. Annars fer drjúgur hluti af
sumarleyfinu í aö undirbúa sig fyrir
þingstörfin næsta vetur. Það er mín
reynsla aö hluti af júlí, allur ágúst og
september fari í undirbúning fyrir
veturinn. Veturinn síðasti var ansi
strembinn, sérstaklega iokatörnin.
Maður sást varla heima hjá sér heilu
sólarhringana, nema rétt yfir blá-
nóttina.
Nú hefur maður tíma til aö sinna
fjölskyldunni betur.”
-ÞG.
,,Miki/I timi fer i að undirbúa vetur-
inn," sagði Jóhanna Sigurðardóttir
sem ætiar að gefa sér tíma tii
stuttra ferða innanlands.
-DV-mynd: GVA.
Ólafur O. Émarsson
Laxveiði
í Sandá
„Þaö verða nokkrir fastir punktar í
sumartilverunni,” svaraði Olafur G.
Einarsson þingmaður. „Viö hjónin fór-
um í Munaöames um síöustu helgi og
ætluöum að vera í viku. Eg varð aö
koma í bæinn til að mæta á fundi en fer
aftur uppeftir. Eg þarf aö komast í
garöinn, en ég sé um hann aö mestu þó
ég gefi mér ekki nógu mikinn tíma þar.
Það veröa ýmsir fundir í hverjum
mánuöi. Það kemur þýsk þingmanna-
sendinefnd hingað í júni og ég verö í
forsvari fyrir móttökunni. I þaö fara
allmargir dagar. Vegna ne&idarsetu
hjá Noröurlandaráði þarf ég aö fara
utan í ágúst, september. Fastur liður
hjá mér á sumrin er laxveiði, ég fer ár-
lega í Sandá í Þistilfirði. Viö erum
nokkrir sem höfum ána á leigu. Svo er
tilfallandi aö ég fer í byrjun júlí í
Norðurá. Eg þyrfti aö fara til Dan-
merkur í byrjun júm' á ráðstefnu en
geri ekki ráð fyrir að komast þangað.
Þaö bíða mín mörg óleyst verkefni hér.
Þetta er nú það helsta. Annars koma
upp verkefni hjá mér á hverjum degi
sem formanni þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins sem þarf að leysa.”
-ÞG
„Ég ætia að treysta á eigin kartöflu-
framleiðslu," sagði Ólafur G.
Einarsson um leið og hann stakk í
kartöflubeðin.
DV-mynd: GVA.
íi i $
<555
„fteyni að hnoðast i garðinum ef stund gefst," sagði Guðmundur Bjarnason
skola afbílnum.
Gnðmnndur BJarnasoii
Reynl að h
til fjall
„Eg á ekki pantaöan miöa á sólar-
strönd og ekki á ég kind svo að mín
vegna heföi þingið getað staðið
lengur,” svaraði Guðmundur Bjama-
'son þingmaöur sumarleyfisspuming-
unni.” I fyrsta lagi ætla ég að byrja á
því innan tíðar að hafa samband við
umbjóðendur mina í kjördæminu. Það
eru á milli tuttugu og þrjátíu hreppar í
kjördæminu og einn fundur á dag í
hverjum hreppi er næstum mánuður.
Eg geri ráð fyrir undirbúningi fjár-
laga í fjárlaganefnd í sumar, en það
fer alltaf verulegur timi í það. Sæti á
ég í þremur öömm nefndum og í
sumum er fundaö vikulega. Sem ritari
Framsóknarflokksins þarf ég að sækja
marga fundi svo að væntanlega fer
mikill hluti sumarleyfisins í fundahöld.
Við höfum ibúð á Húsavík og
Arkitektinn Stefán Benediktsson er hér sestur við
af þingmanninum um stundarsakir.
og tekur við
DV-mynd: GVA.
Stefán Benediktsson
Fjöl-
skriiðugl
„Mitt sumarfrí verður mjög
fjölskrúðugt,” sagði Stefán Benedikts-
son þingmaður. „Eg reyni að hanga
dálitiö í pólitíkinni, ætla að ferðast um
kjördæmið og landið til að hitta fólk að
máli. Þetta verða ekki beinlínis fundir
heldur aðeins aö taia við fólk. Nú
og svo ætla ég að gera við húsiö
mitt og sinna garöinum. Vona að ég
standi við það, ætlaði aö gera þaö i
fyrra en stóö ekki við þá áætlun. En
það var nú vegna þess að ég datt inn í
pólitíkina þá. Svo ætlá ég að teikna,
það eru tvö verkefni sem standa fyrir
dyrum, já, það verða íbúðarhús. I raun
og vem er þetta peningaspursmál.
Eg segi fyrir mitt leyti að þing-
mannsstarfið er miklu minna starf en
starf arkitektsins. Það er styttri
vinnutími og ekki eins krefjandi. Þing-
menn hafa möguleika á að „taka sjálfa
sig úr sambandi” án þess aö heim-
urinn hrynji sem er erfiðara fyrir
arkitektinn sem þjónustuaðiia.”
„Nei, ég vildi ekki skipta um starf
strax, þingmennskan er skemmtilegt
starf.
Meira ætla ég að gera í sumar. Mig
langar til að fara í tveggja vikna
feröalag til útlanda í ágúst. Og þá til að
vera einn með sjálfum mér og fjöl-
skyldunni.” -ÞG.