Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Side 25
a
reynum yfirleitt aö dvelja þar smá-
tíma. Eina helgi ætla ég til Laugar-
vatns og reyni aö finna einhverja stund
til að hverfa til fjalla. Svo á ég garö,
sem er ófrágenginn, sem ég þarf
eitthvað að hnoðast í. Þetta er nú í
grófum dráttum það sem eg tek mér
fyrir hendur í sumar.”
-ÞG
„Eg er nú ekki ennþá farin að sjó
þessi löngu frí þingmanna eftir fimm
ára þingsetu,” sagði Guðrún Helga-
dóttir þingmaður. „Sumarleyfið hefst
sannarlega ekki nærri strax. I júní-
mánuði verð ég meira og minna að
imdirbúa fundi vegna komu
samgöngunefndar Noröurlandaráös
hingaö. I júlimánuði verða fundir á
vegum Alþýðubandalagsins úti um allt
land. En ég treysti nú á að komast
aðeins í frí í júlí. Annars held ég að það
sé sameiginleg reynsla allra þing-
manna að við fáum lítið frí nema að
fara í burtu. Og það er með þingmenn
eins og aðra launþega í landinu að það
er lítið afgangs af tekjum til ferðalaga.
Svo ég haldi nú ófram með sumarið, þá
þarf ég að fara til skyldustarfa utan í
ágúst, vegna nefndarsetu hjá Norður-
landaráði og í september undirbýr
maður þingstörf fyrir veturinn.
Þingmannsstarfið er skelfilega van-
þakklátt starf og á margan hátt mis-
skilið. Og mjög krefjandi. Mér finnst
þjóðin ekki sérlega góð við sína þing-
menn. Hugmyndir manna um störf
okkar þingmanna eru yfirleitt rangar
en það getur vel verið okkur að kenna,
ég veit það ekki. En ég verð að segja að
starfið er skemmtilegt og maður er
ánægður ef ofurlítill árangur sést af
því sem gert er.
Eg skal nú reyna að vera aðeins
skemmtilegri. Þar sem ég er geysilega
mikil garðræktarkona og hef nýlega
eignast garð reyni ég að gefa mér tíma
í garðinum í sumar. Eg flutti nýlega í
vesturbæinn, sem er alveg yndislegt og
sérstaklega að eignast garðinn. En það
var satt að segja hræðilegt að flytja á
sama tíma og þingstörfum var að
ljúka. Eg þarf að finna mér stundir í
sumar til að koma mér vel fyrir í nýja
húsnæðinu.”
-ÞG.
»
„Ég er nýfíutt i vesturbæinn og
eignaðist garð. " Og Guðrún Helga-
dóttir var komin út i beðin.
DV-mynd: GVÁ.
„Það er kominn timi tii að endur-
vinna allan þennan pappir sem fer i
ruslið," sagði Guðrun Agnarsdóttir
um leið og hún henti dagblaða-
bunka frá áramótum. — Hún var i
„tiltekt" þegar Ijósmyndarinn barði
að dyrum. DV-mynd: GVA.
þa stundina sem gafst að
DV-mynd GVA
verfa
„Eg verð mikið bundin við fundarset-
ur til að byrja með. Við kvennalista-
konur erum á kafi í að fara yfir starfið
í vetur og undirbúa vinnu fyrir fram-
tíðina,” sagði Guðrún Agnarsdóttir
þingmaöur. •
„Annars gekk maöur inn í hamarinn
í haust og er rétt kominn til manna aft-
ur. Starfið í vetur var mjög kref jandi,
stöðugt ný verkefni, nánast á hverjum
degi, enda var þetta nýr starfsvett-
vangur.
I sumar reyni ég að fara með fjöl-
skyldunni í frí hér innanlands. I næstu
viku hefst mónaðar hringferð um land-
ið hjá okkur Itvennalistakonum til að
virkja konur almennt í kvennabarátt-
unni. Síðan ætla ég að skreppa í viku til
Stokkhólms síðast í júlimánuði og vera
í friöarbúðmn norræna kvenna sem
verða í tengslum við Stokkhólmsráð-
stefnuna.
Eg fagna þeirri umræðu sem hefur
verið hér í vetur um friöarmál og er
sérstaklega ánægð með umræður um
stöðu kvenna. Konur á þingi hafa
staöiö saman um mörg mál í vetur og
því enginn vafi á að þeim rennur blóöiö
til skyldunnar að standa saman um
réttindisín.
En svo ég snúi mér að því sem
framundan er, sumrinu, þá fer líklega
mikill tími í fundi og undirbúning fyrir
vetrarstarfið. En ég reyni að vera meö
fjölskyldunni sem mest en hún hefur
verið mjög umburðarlynd í vetur yfir
önnummínum.” .hr
Gudriln Agnarsdóttlr
ÍFRIÐAR
RIJÐIR
Guðriln Melgadðttlr
Mörg
skyldn-
störf