Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Síða 28
Adam Darius og Kazimir Kolesnik.
LEIKHÚS:
GESTALEIKUR FRÁ SVÍÞJÓD
—■ og f jölþjóðlegur látbragðsleikur
Strax á fyrsta degi listahátíðarinn-
i ar er leikhúsunnendum boðið upp á
i sýningu frá borgarleikhúsinu í Stokk-
[ — hólmi. Þar flytja sænsku leikkonurnar
Stina Ekblad og Birgitta Ulfsson leik-
ritið Nar men har kanslor (Þegar maö-
ur hefur tilfinningar) eftir finnsku
skáldkonuna Maria Jotuni sem uppi
var á árunum 1880 til 1943. Maria Jot-
uni var í hópi fárrra kvenna á Norður-
löndum á sinni tíö sem skrifaði af
dirfsku og hreinskilni um hugarheim
| . kvennaogstöðuþeirraíþjóðfélaginu.
i Leikritið var frumsýnt á litla sviöi
1 borgarleikhúss Stokkhólms í febrúar
1983. Það er sett saman úr verkum
Mariu Jotuni, en finnsk tónlist og kveð-
skapur er notað í flutningi verksins
sem gefur því aukið líf. Leikstjóri er
Kristin Olsoni, sviðsmynd gerði Pekka
Ojamaa og lýsingu annaðist Per Zed-
eli. Leikritið verður sýnt í Gamla bíói, í
dag og á morgun klukkan 20.
Látbragsleikur veröur mjög í sviðs-
ljósinu á listahátíöinni og ber þar fyrst
að nefna framlag Morse-leikhópsins.
Þaö er hópur látbragsleikara af ýmsu
þjóðerni sem starfar aðallega í Banda-
ríkjunum. Hefur hópurinn komið fram
í meira en tuttugu löndum og hvar-
vetna fengið mjög góða dóma. I hópn-
um eru sjö látbragðsleikarar sem eru
þekktir fyrir að túlka ekki aðeins pers-
ónur heldur einnig ýmis þau tæki sem
við notum dags daglega, svo sem
vatnsslöngur, brauðristar og jafnvel
leka krana. Mun hópurinn koma fram
við opnun myndlistarsýningar á Kjar-
valsstöðum í dag og á Lækjartorgi á
morgun, á mánudag og þriðjudag, en
ennfremur mun hópurinn sýna í
Gamla bíói síðar á listahátíðinni.
Þá munu látbragðslistamennimir
Adam Darius og Kazimir Kolesnik
sýna tvisvar í Gamla bíói á mánudag
og þriðjudag. Adam Darius er víöfræg-
ur látbragðsleikari og hefur gert víð-
reist um heiminn. Hann er Bandarikja-
maður og hefur komið fram í 60 lönd-
um við mikinn fögnuð áhorfenda. Hann
þykir sérlega frumlegur og fundvís á
nýjar leiöir til að koma hugmyndum
sínum á framfæri. Með Adam Darius
kemur fram annar snjall listamaöur,
Kazimir Kolesnik, pólskættaður Skoti,
25 ára að aldri.
TÓNLIST:
TONAFLOÐK) [
Það vill verða svo að mest áberandi
á hverri listahátiö, eru tónleikar og
mikið sóttir tónleikar erlendra og inn-
lendra tónlistarmanna. Ut af þessum
vana er ekki brugðið að þessu sinni og
verður tónlistin af ýmsum gerðum.
Þannig koma fyrstir tónlistarmanna
fram í dag, æringjarnir í Whopee-
hljómsveit Bob Kerr, sem láta í sér
heyra á Lækjartorgi kl. 16.30. Æringjar
þessir eru víða vinsælir um Evrópu og
hafa oftsinnis komiö fram í eigin
sjónvarpsþáttum og njóta vinsælda,
ekki síst fyrir furðulega sviðsfram-
komu og uppátæki á sviði.
Franski jasspíanóleikarinn Martial
Solal heldur síðan tónleika í Norræna
húsinu kl. 17.00 í dag. Hann er einn
fremstu jasspíanisti Evrópu og hefur
vakið athygli víða um heim. Hann hef-
Martia/ Soiai, franski jasspianóieikarinn.