Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Síða 29
29
DV. LAUGARDAGUR 2. JUNI 1984.
1EFST
ur leikiö meö f jölda þekktra jassista og
þykir ákaflega nútimalegur píanisti.
Meöal hljómplatna sem hann hefur
gert má nefna plötu þar sem hann
leikur meö Niels-Henning Orsted Ped-
ersen sem þykir ein besta jassplata
síöariára.
Annað kvöld halda níu sellóleikarar
og Elísabet Erlingsdóttir sópransöng-
kona tónleika undir stjóm Gunnars
Kvaran í Bústaðakirkju og hefjast tón-
leikamir kl. 20.30. A efnisskránni er 3.
svita J.S. Bach fyrir einleiksselló og
Bachianas Brasieiras nr. 5 og 2 eftir
Villa-Lobos en bæöi þessi verk eru
fyrir átta selló og sópranrödd. Alhr
sellóleikararnir em nemendur
Gunnars Kvaran viö Tónlistarskólann
íReykjavík.
Þá veröur annaö kvöld Norrokk,
samnorræn rokkhátíö, þar sem
norrænar rokkhljómsveitir leika listir
sínar. A mánudagskvöld munu þær svo
leika fyrir dansi í Broadway. I Broad-
way veröur hins vegar jassgleöi annaö
kvöld. Þar munu kvenna-jasshljóm-
sveitin Quintetten, Martial Solal,
Whoopee hljómsveit Bob Kerr og
íslenskir jassistar sjá um fjöriö og
hefstþaökl. 22.
A þriöjudagskvöldiö mun svo
finnska söngkonan Arja Saijonmaa
halda kvöldskemmtun í Broadway á-
samt hljómsveit sinni. Hún er ekki með
öllu ókunn Islendingum en hún hefur
mikiö starfað viö leikhús sem leikari
og söngvari. Hún hefur haldiö fjölda
tónleika víös vegar á Noröurlöndum og
sungið inn á fjölda hljómplatna. Hún
hefur einnig haldiö tónleika víöa í
Evrópu með gríska tónskáldinu Mikis
Theodorakis. Skemmtun hennar í
Broadway mun hefjast kl. 21.30.
Jón Gunnar Árnason við eitt verka sinna á sýningunni i IVýlistasafninu.
MYNDLIST:
ÓTAL SÝNINGAR OPNAÐAR
Þaö sem einkennir fyrstu tvo daga
listahátíðarinnar eru myndlistarsýn-
ingar sem opnaöar veröa þá og standa
munu meðan á listahátíð stendur.
Að Kjarvalsstöðum opna 10 íslensk-
ir listamenn, sem búsettir eru erlend-
is, sýningu á verkum sinum í dag. Þar
eru á ferðinni Erró (sem komst þó ekki
til landsins), Hreinn Friðfinnsson, Jó-
hann Eyfells, Kristín Eyfells, Kristján
Guðmundsson, Lovisa Matthíasdóttir,
Siguröur Guðmundsson, Steinunn
Bjamadóttir, Tryggvi Olafsson og
Þóröur Ben Sveinsson. Þar verða til
sýnis málverk, skúlptúrar og videolist
og fleira.
I Nýlistasafninu opna Jón Gunnar
Arnason og Magnús Pálsson sýningu á
verkum sínum. Listaverk Jóns Gunn-
ars samanstanda einkum af högg-
myndum en einnig hefur hann fengist
við multimedia, svo sem bókverk,
hljóðverk og fleira. Magnús Pálsson
sýnir samantekt á listkennslu sinni og
hópverkefnum sem hann hefur unniö
með nemendum sínum, ýmiss konar
útgáfur, prent og f jölfeldi.
I fyrradag verður einnig opnuð sýn-
ing á verkum Karel Appel í Listasafni
Islands. Karel Appel er þekktur mynd-
listarmaður, hollenskur aö uppruna,
en hann var á sínum tíma einn stofn-
enda Reflex-hópsins sem síðar samein-
aöist Cobra-hreyfingunni. Appel hefur
haldið fjölda einkasýninga og eru verk
eftir hann á ýmsum þekktustu söfnum
heims.
A morgun opnar Leirlistarfélagiö
sýningu í Listasafni ASI. A sýningunni
er saga íslenskrar leirlistar rakin í
máli og myndum. Sýnendur eru 13 tals-
ins.
I Félagsmiöstööinni aö Gerðubergi
veröur opnuð sýning á verkum félaga
úr Textílfélaginu á morgun. A sýning-
unni verður myndvefnaður, tauþrykk
og verk unnin meö blandaðri tækni.
Félagar í Listmálarafélaginu halda
sýningu á verkum sínum í Sýningar-
salnum Islensk list, að Vesturgötu 17,
og verður sýningin opnuð kl. 17.00.
I Norræna húsinu veröur opnuð í
dag sýning á verkum finnska lista-
mannsins Juhani Linovaara. Hann hef-
ur hlotiö alþjóðlega viöurkenningu fyr-
ir verk sín og var útnefndur listamaöur
ársins á listahátíöinni í Helsinki 1978.1
anddyri Norræna hússins sýnir einnig
Margrét Reykdal vatnslitamyndir og
olíumyndir á sama tíma.
Steinunn Bjarnadóttir við tækjabúnaðinn sem þarf til að sýna videoverk hennar.
!l—- ' ■ ■ • ■ •' ' - . ■- .. • - - 1 -■ .
........ 1