Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Qupperneq 31
DV. LAXJGARDAGUR 2. JUNI1984.
Gleraugu fólks eru af mörgum stærðum og gerðum. Smekkur manna er
líka afar mismunandi varðandi útlit gleraugna og þvi kveikja þau i
safnaranum. Þarna kennir ýmissa grasa.
Stór gleraugu Ijót vel gaman aö. En sannast sagna er
Sumir líta á söfnunaráráttu sem hvers konar söfnun stórmerkt starf.
einhverskonarsjúkdómoghenda jafn- Fyrir þann sem stundar er hún
skemmtilegt og gefandi tónstunda-
gaman. Arangurinn skilar sér til hinna
i fyllingu tímans. Mikiö væri nú annars
glataö úr heimi hér ef ekki væri til fólk
sem hefur gaman af aö safna hinu og
þessu. Oft er fólk ekki viö eina fjölina
fellt í þeim efnum og þaö er Bima gler-
augnasafnari á Dalvík ekki heldur.
Það kom í ljós þegar hún var spurð
hvort hún léti gleraugun nægja.
„Nei, ég fór fyrir stuttu aö safna
lyklakippum meö fyrirtækjanöfnum.
Eg hef líka safnað frimerkjum, mynt
og notuðum umslögum frá fyrirtækj-
um. Þessuer haldiösvona tilhaga.
En hvað segir gleraugnasafnarinn
um gleraugu fólks núna, frnnst þér þau
falleg?
,,Mér finnst þau ekki eins falleg og
þau voru. Þessi stóru glannalegu gler-
augu finnst mér ljót en gleraugu eru aö
minnka aftur núna og veröa fallegri.”
Viltu kannski þessi kringlóttu
gömlu?
„Eg vil nú heldur hafa þau spor-
öskjulöguö.”
JBH/Akureyri.
Plötusöfnun Hafsteins Pálssonar
hófst með því aö honum var gefin plat-
an meö kaffibrúsakörlunum. Þaögeröi
gjaldkeri sem var hjá Dalvíkurbæ upp
úr 1970, Rögnvaldur Olafsson aö nafni.
Hafsteinn átti þá enga plötu og heldur
ekkert til aö spila á. Mörgum árum áð-
ur átti hann handsnúinn grammófón og
dálítinn slatta af 78 snúninga plötum
en úr því varö engin söfnun. Astæðan
var kannski að nokkru þetta alkunna
auraleysi áranna þegar allt þarf að
gera.
En svo var allt í einu kominn plötu-
spilari í jólagjöf og nokkrar plötur í
hillu. „Eg fór aö kaupa eina og eina
plötu, sérstaklega plötur frá Svavari
Gests. En þaö eru ekki nema svona 6
ár síðan þetta varö algjör söfnun. Þá
fór ég aö komast í samband viö marga,
til dæmis Jóhann G. Jóhannsson, Jó-
hann Helgason, Björgvin og Magnús
Þór til aö leita uppi hvaö þeir heföu
gefiö út. Eg á mörgum fleirum í
Reykjavík og víðar mikið aö þakka,
þar á meðal Svavari Gests, Pétri
Kristjánssyni og Jónatani Garöars-
syni. Þeir hafa allir veriö mjög hjálp-
legir. Fólk hefur skilning á því að þetta
er söfnun og tekur mér afar vel. Til
dæmis sendi Bergþóra Amadóttir mér
einu sinni allt sem hún hefur komiö
nærri í plötuútgáfu.
Plötur í kóki
Þarftu ekki aö leita til hinna og þess-
ara úti um allt land?
„Þetta er nú ekki mikið víöa aö,
mest héðan af Dalvík og lítils háttar
frá Akureyri. Svo reyni ég út í ystu
æsar aö fá nýjar plötur. En þaö er
ótrúlegt hvaö fólk er greiðugt að láta
mig hafa plötur úr eigin safni. Eg bíö
kannski borgun eöa skipti en yfirleitt
vill þaö ekki slíkt. Annars kemur þetta
á ýmsan hátt. Einu sinni hitti ég mann
sem ætlaði að fara aö skjóta í mark og
var meö rekka meö eitthvað um 15
litlum plötum í. A öörum stað fékk ég
bunka sem var í óreiðu, plöturnar
klístraðarat kóki og tók langan tíma aö
hreinsa upp. Plötumar hafa gjarnan
safnast saman hjá fólki á yngri árum
en síðan ekkert veriö sinnt um þær.”
Sælutilfinning
Hlustar plötusafnarinn eitthvað á
plöturnar?
„Eg hlusta stundum ef ég get og er
einn, þá gríp ég tækifærið. En mesta
ánægju hef ég af þessari söfnun ef ég
fæ loksins í hendumar plötu sem ég
er búinn að hafa mikiö fyrir aö ná í.
Þá fer um mann einhver sælutilfinn-
ing.”
Er einhver plata sem hefur verið
sérstaklega erfið?
„Já, ég var búinn að hafa mikiö
fyrir aö fá fyrstu plötuna meö Ames-
ingakórnum.”
NÆRRI Ein ÞÚSUND
ÍSLENSKAR PLÖTUR
Hafsteinn Pálsson, bóndi og plötusafnari. Þetta byrjaði allt með því að
honum var gefin plata kaffibrúsakarlanna.
Hverjar eru erfiöar nú sem stend-
ur?
„Þaö er ein, sem ég á alltaf voöa-
lega erfitt meö að fá, Sóleyjarkvæöi.
Sömu sögu er aö segja meö plötuna
Þórbergur les úr eigrn verkum númer
2 og fyrstu plötuna meö Skagfirsku
söngsveitinni. Þar má líka bæta viö
einni lítilli plötu meö Jóhanni G.”
Sérstök aukabúgrein
Hvað er safnið orðiö stórt?
„Þetta eru eitthvað milli 800 og 900,
bæði 33ja og 45 snúninga. Litlu plöt-
urnar eru um 200 en stóru 600 til 700.
Eg hef ekkert farið út í aö safna 78
snúninga plötum enda er það held ég
algjörlega vonlaust.”
Tekur þetta ekki mikinn tíma?
SAFNARAR
Á VORKOMU
Lionsmenn á Dalvík héldu árlega
listahátíð sína helgina 25.-27.
maí. Vorkoma kallast hún og \
þetta sinn voru stærstu viöburðir
þar myndlistarsýníng Sigfúsar
Halldórssonar tónskálds, tónleik-
ar, þar sem lögin hans voru flutt,
og sýning tveggja safnara á Dal-
vík. Safnarar þesslr eru Birna
Kristjánsdóttir sem safnar gler-
augum meö ýmsu öðra og Haf-
steinn Pálsson en hann lcggur hart
að sér við að ná saman öllum ís-
ienskum hljómplötum sem gefnar
hafa veriö út i seinni tíð. Safnarar
þessir vora teknir tali.
Texti og myndir: Jón Baldvin Hall-
dórsson.
„Stundum finnst mér jú að ég sé að
stela tima frá minu starfi. Símtöl
taka til dæmis mikinn tima og síma-
kostnaöurinn er tiltölulega meiri en
verðið á sjálfum plötunum.”
Hafsteinn er bóndi í Miðkoti sem er
rétt viö Dalvík. Eins og hér hefur
komið fram er aukabúgrein hans
nokkuö sérstök. En það er svona þeg-
ar áhuginn fyrir söfnun grípur fólk,
hann verður óslökkvandi. Og allir
góðir safnarar hljóta aö fylgjast vel
með málum sem varða söfnunarefnið.
Hafsteinn heldur til dæmis til haga
því sem er skrifað um hljómplötur og
hljómsveitir sem vísaö getur veginn
að plötu í safnið. Hafsteini er sama
þó aö platan sé endurútgefin, bara ef
titillinn næst og nýja útgáfan er ná-
kvæmlega eins og sú fyrri. Þá er líka
heldur ekki fussað viö kassettum sem
gefnar hafa verið út í staö plötu.
Þegar er komiö nokkurt safn af slík-
um gripum.
Samningaviðræður
Plötur hafa ruöst í miklum mæli inn
á gjafamarkaðinn, til dæmis um jólin.
Hafsteinn viöurkenndi aö hann nyti
þess. Einu sinni á ári ætti hann af-
mæli eins og aðrir og þá væri gjöfin
undantekningarlaust plata. Ef hún
væri komin í safniö mætti alltaf
skipta og hann væri síður en svo
óhress meö að fá plötur að gjöf. En
þaö er kannski ekki öruggasta aðferð-
in til aö finna réttu plötuna aö biöa
eftir gjöf. Heima í húsum hjá hinum
og þessum Uggja steinarnir í vöröuna
hans Hafsteins og þangað veröur aö
sækja þá. Hann segist vera hálfgerö
plága í heimsóknum: „Eg bið um á
hverjum einasta staö, sem ég kem til,
aö fá aö skoöa plötusafnið.” Ef hann
finnur eitthvað, þá hefjast samninga-
viðræöur....;..
31
Chrysler LeBaron T/C 79
Sjálfskiptur, vökva og veltistýri, rafmagnsrúður, læsingar í sæti o.fl.
Cruise control. Litið ekinn, toppbíll. Skipti athugandi á ódýrari.
OPIÐÍ DAG KL. 1-5.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
GOURMET
UNDRATÆKIÐ
hakkar
ir deig, sker niður grænmeti
grænmeti, þeytir rjóma
er að hreinsa tækið
Komið og Kynnist nýja undratækinu
frá Kenwood
LAUGAVEGt 170 172 SÍMAR 11687 21240
Verd Kr,