Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Page 43
„Við spilum oft vel saman
en okkur vantar að skora”
ÐVrtÁÍJGARÖÁGOK 2. 'JÚNI 1§84. 43
Akureyri—Þór Akureyri—Þór Akureyri—Þór Akureyri—Þór Akureyri—Þór
— Rætt við Nóa Björnsson, fyrirliða Þórs f rá Akureyri, um Þórsliðið og f leira
k Akureyri — Þór Akureyri—Þór Akureyri—Þór Akureyri—Þór Akurevri—Þér
„Ég get ekki séð neitt sem bendir til
þess að Þórs-liðið ætti að verða veikara
en það var í fyrra. Það hefur að vísu
gengið á ýmsu í leikjum okkar til þessa
en ég er handviss um að þetta á allt
eftir að koma hjá okkur,” sagði Nói
Bjömsson, fyrirUði Þórs-Uðsins. Nói er
ekki nýgræðingur á knattspymusvið-
inu. Atta ára gamaU hóf hann að æfa
knattspyrau og hefur alls æft í 16 ár og
reikni nú hver sem betur getur.
„Við gefumst of fljótt upp"
„Það er mikið spil í Þórs-liðinu. Við
leikum sóknarknattspymu og það
hefur eflaust komið nokkuð niður á Uð-
inu hversu stíft við sækjum. Varnar-
menn okkar hafa mátt þola það aö
sóknarmenn andstæðingsins hafa oft á
tíöum verið fleiri en varnarmenn
okkar. Þá vantar okkur meiri samæf-
ingu í vörnina. Árni Stefánsson hefur
ekki getað dvalið hér á Akureyri í
nokkurn tíma vegna náms og það hefur
haft sitt að segja. Helsti kostur okkar
er eflaust samleikurinn en höfuðveik-
leiki liösins er að mínu mati hvað leik-
menn gefast oft alltof fljótt upp. Ef við
fáum á okkur mark í byrjun leiks virð-
ist allur okkar leikur hrynja sem spila-
borg og þetta þurfum við að laga. Við
þurfum einnig að fá meiri grimmd í
„boxið”. Ef okkur tekst að laga þessi
atriði get ég ekki séð neitt því til fyrir-
við í gang svo um munaði í upphafi síð-
ari umferðarinnar og við ætlum okkur
fyrr í gang núna. Þá hafa leikmenn
liösins meiri reynslu en í fyrra og það
ætti að geta hjálpað okkur að yfirstíga
helstu erfiðleikana.”
„Missti álitið á
Skagamönnum "
„Hvað Islandsmótið i heild varðar
þá held ég að það verði skemmtilegt og
umfram allt jafnara en það hefur verið
undanfarin ár. Liðin em jafnari og það
hefur sýnt sig í undanförnum leikjum
að allir geta unniö alla. Það ætlum við
okkur að gera. Við höfum verið ein-
staklega óheppnir í leikjum okkar
hingað til. Þaö tekur engu tali. Leikur
okkar gegn Skagamönnum var hrein
martröð. Viö óðum í marktækifærum
allan leikinn en þeir skoruðu. Fram aö
þeim leik hafði ég langmesta trú á þvi
að Skaginn færi frekar létt með að
sigra í mótinu í sumar en eftir aö hafa
leikið gegn þeim er ég ekki sömu
skoðunar. Eg missti mikið álit á liöinu
eftir leikinn gegn okkur sem þeir vom
heppnir að vinna. Það verður ekkert
lið sem sker sig úr í sumar þrátt fyrir
þriggja stiga regluna sem mér finnst
að mörgu leyti eiga rétt á sér. Það eru
,allir að tala um Skagamenn sem meist-
ara. Þeir sýndu það síðast gegn Kefl-
víkingum að þeir geta tapað fyrir öll-
um liðum deildarinnar og eitt er víst að
þeir verða að hafa virkilega mikið
fyrir tiltilvörninni. Eg er nokkuð
ánægður með þriggja stiga regluna en
er þess jafnframt fullviss að hún
kemur liðum mismunandi vel. Lið sem
leika sóknarknattspyrnu ættu að
græða á henni en lið eins og til dæmis
KR gætu farið flatt á henni,” sagði Nói.
Við báðum Nóa að spá fyrir um úr-
slit í 1. deild og þrátt f yrir að f áir leikir
séu búnir þegar þetta er skrifað féllst
hann á þessa beiöni okkar.
„Eg vil ekki spá neinu ákveðnu liði
titlinum nema þá okkur. Eg set Þór í 1.
sætið, Skagamenn þar á eftir, Fram í
þriðja, Breiöablik í fjórða, Þrótt í
fimmta, KA í sjötta, Víking í sjöunda,
Val í áttunda, Keflavík í níunda og
KRítíundasæti.”
Að lokum, Nói. Ert þú nokkuð á leið-
inni yfir í KA?
„Nei þakka þér fyrir. Það yrði það
síðasta sem ég gerði,” sagði f)rirliði
Þórs. -SK.
Arnar aðstoðar
Hinn kunni íþróttamaður á árum
áður, Araar Guðlaugsson, aðstoðar
Þorstein Olafsson við þjálfun Þórs-
liðsins í sumar.
Arnar lék um árabil með meistara-
flokki Fram og var mjög snjall leik-
maður. Hann hefur nokkuð fengist ■
viö þjálfun og meðal annars dvalið I
um nokkurt skeið á Húsavík. I
Reynsla Amars ætti að koma Þor- ■
steini Olafssyni, svo og leikmönnum I
liðsins, velíbaráttunniísumar. -SK.
stöðu að við verðum í toppbaráttunni í en í fyrra svo við þurfum ekki að ör-
sumar. Viðhöfumekkibyrjaðverr nú vænta enn sem komið er. I fyrra fórum
Nói Bjömsson, fyrirliði Þórs, hefur' iðkað knattspymu frá átta ára aldri.
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Myndir: Jón Baldvin, Akureyri