Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Side 48
Fréttaskotið
68-78-58
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Niðurstöður
skoðana-
könnunar
DV um fylgi
listanna:
Stjórnarflokkunum helst betur á
fylgi sínu en ríkisstjórninni. Þetta
sýnir skoöanakönnun sem DV geröi
um síðustu helgi á fylgi flokka og
lista. Fylgi stjórnarflokkanna
samanlagt er litlu minna i þessari
könnun en var í DV-könnun í mars-
byrjun. A þeim tíma hefur hins
vegar talsvert dregiö úr fylgi viö
ríkisstjórnina, eins og skýrt var frá
fyrr í vikunni.
Stöðugtfylgi
stjómarflokkanna
Sjálfstæðisflokkurinn fær í
könnuninni nú fylgi 27,8% alls úr-
taksins en haföi 28% í mars. Fram-
sókn fær nú 10,7% en haföi 9,3% í
mars. Alþýðuflokkurinn fær 4,8% en
haföi 5,2% í mars. Bandalag
jafnaöarmanna fær 2,2% hafði 1,5% í
mars. Alþýðubandalagiö fær 9%,
haföi 8,2% í mars. Samtök um
kvennalista fá 3,3% en höföu 2,7% í
mars.; .Oákveðnir eru nú 28,5% en
34% í mars. Þeir sem vilja ekki
svara eru 13,7% en voru 11,2% í
mars.
Auðveldara er aö bera þetta
saman viö kosningar ef aðeins eru
teknir þeir sem tóku afstööu. Þá
hefur Sjálfstæöisflokkur nú 48,1%,
sem er minnkun um 3 prósentustig
síöan i mars og 8,9 prósentustigum
meira en flokkurinn fékk í
kosningunum í fyrra. Framsókn fær
nú 18,4% sem er aukning um 1,4
prósentustig síðan í mars en 0,6 pró-
sentustigum minna en var í
kosningunum. Alþýðubandalagiðfær
nú 15,6% en hafði 14,9% í mars og
17,3% í kosningunum. Alþýðuflokkurinn
fær 8,4% en hafði 9,4% í mars og
11,7% í kosningunum. Kvennalistar
fá 5,8%, en höföu 4,9% í mars og 5,5% í
kosningunum. Bandalag jafnaöar-
manna fær nú 3,7% en haföi 2,7% í
Sam-
mars og 7,3% í kosningunum.
kvæmt könnuninni hefur Bandalag
jafnaöarmanna ekki kjördæma-
kjörinn mann í Reykjavík og fengi
samkvæmt því engan þingmann.
—HH
SJA nanar um niðurstöður a
BLS. 4 OG VIÐTÖL A BLS. 2 OG 3.
Louis Legendre, sendiherra Frakklands á Íslandi, fyrir miðri mynd. Hann harðneitaði blaðamanni DV og strákunum um að láta boltann af hendi. Á
innfelldu myndinni eru strákarnir Hörður Einarsson til hægri og Hlynur Rúnarsson með sendiráðið íbaksýn. -DV-myndir: GVA
Rotaði hund-
inn oghenti
honumfyrir
fætureigenda
Hópur feröamanna á leiö yfir
Fimmvörðuháls kom aö Skógum í
gærmorgun. Meö í förinni var
poodlehundur sem slapp frá hópnum
og inn á tún bónda í nágrenninu og
ataðist hundurinn í fjárhópi bónd-
ans. Við þennan atburö reiddist
bóndinn og elti hundinn, fyrst á bíl
um túnið, en síöan tókst honum að
króa hundínn af viö bæjarhúsin og
rota hann. Henti hann síðan rotuöum
hundinum fyrir fætur eigendanna.
Samkvæmt heimildum DV mun
leikurinn hafa borist um allt túniö er
bóndinn reyndi að keyra hundinn
niður og er honum tókst aö króa hann
af rotaði hann hundinn meö grjóti.
Engin kæra hefur verið lögö fram
í þessu máli og eftir því sem DV
kemst næst mun það hafa veriö leyst
á diplómatiskan hátt er báöum
aðilum var runnin reiðin.
-FRI.
ÞARF GEIR AD
SÆKJA B0LTANN?
„C’est diplomatie, c’est diplomatie,”
sagöi Louis Legendre, sendiherra
Frakklands á Islandi, og yppti ölxum
þegar blaöamaöur DV bað hann aö
afhenda fótbolta sem virðist vera að
koma af stað milliríkjadeilu milli
Islands og Frakklands?
Forsaga þessa máls er sú aö um
kvöldmatarleytið á fimmtudag voru
tveir fimmtán ára strákar í fótbolta í
nágrenni franska sendiherra-
bústaöarins viö Skálholtsstíg í Reykja-
vík. I einni spyrnunni vildi ekki betur
til en svo aö boltinn flaug yfir grind-
verk og inn í húsagarö franska
sendiherrabústaöarins. Sendiherrann
kom þegar út í garð, tók boltann og fór
meö hann inn þegar strákana bar að.
Þeir fóru á eftir honum og hringdu
dyrabjöllunni og báöu hann aö afhenda
boltann. Sendiherrann haröneitaði því
og kvaöst hafa lagt hald á boltann.
Þeir yröu að ná í lögregluna ef þeir
vildu fá hann aftur. Strákarnir geröu
þaö. Þegar lögreglan bankaöi upp á
hjá sendiherranum neitaöi hann enn að
láta boltann af hendi og rak síöan lög-
regluna af lóðinni meö þeim um-
mælum að þeir væru á frönsku yfir-
ráöasvæöi. Lögreglan sagöi svo
strákunum aö úr því sem komið væri
yröi máliö aö fara í gegnum utanríkis-
ráðuneytið.
,,Það hefur engin beiðni um þetta
mál komið hingað,” sagði Ingvi
Ingvason, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráöuneytisins. „Hins vegar er lög-
regluskýrsla um málið á leiðinni.
Meira get ég ekki sagt en mér finnst
eölilegt aö sendiherrann láti strákana
fáboltann.”
„Eg get ekki látið þig hafa bolt-
ann,” sagöi Legendre þegar viö
heimsóttum hann. „Þetta er franskt
yfirráðasvæði. Minn garöur er enginn
leikvöllur.”
Meira vildi Louis Legendre ekki
segja og viö þetta stendur.
Eftir því sem strákarnir sögðu hafa
þeir aldrei áöur misst boita inn í garö-
sendiráðsins. Og aldrei hefur verið
fyrr um nein samskipti aö ræða milli
þeirra og sendiráðsfólksins, hvorki
góð né slæm. -KÞ.
Dixio Flyors 1919 á fullri lorð
Miiljónaviðskipti:
DixieFlyer
1919flaugút
Eins og DV skýröi frá ekki alls
fyrir löngu var elsti bíll á landinu af
þeim sem gangfærir eru, Dixie
Flyer, árgerö 1919, tii sölu. Var taiið
aö fá mætti um 700 þúsund krónur
fyrir gripinn og var m.a. leitaö til
erlendra uppboöshalda sem sýndu
málinu áhuga.
Bíllinn er nú seldur, ekki úr landi
eins og til stóð, en samkvæmt heim-
ildum DV voru greiddar fyrir hann
1.250.000 krónur. Seljandinn var
Öskar Osberg á Akureyri en Jón G.
Sólnes, fyrrum alþingismaöur, haföi
milligönguumkaupin. -EIR.
Nýr sfmi ritstjórnar DV — 68-66-11