Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984.
HVER HEFÐITRÚAÐ ÞVÍ FYRIR FÁUM ÁRUM?
ÍSLENDINGAR FREMSTIR
NORDURLANDAÞIÓDA
í GLÍMUNNIVIÐ BAKKUS
15
íslenska kraftaverkið, eins og
árangur SÁÁ er kallaður erlendis,
hefur vakið athygli á Norður-
löndum. Hendrik Berndsen, for-
maður SÁÁ, útskýrir málin i
Stokkhólmi.
Myndir Age Biichert.
tslendingar fara stundum
nokkuð geyst í gullbjórinn hér í
Kaupmannahöfn. Danir segja að
þeir drekki eins og það sé eldfjall í
rassgatinu á þeim.
Mér fannst því sérlega gaman að
heyra að Islendingum haföi verið
hælt upp í hástert fyrir góða frammi-
stöðu í bardaganum við Bakkus á
ráöstefnu í Stokkhólmi, sem haldin
var um miðjan maí sl.
„Islendingar eru eina Norður-
landaþjóðin sem gert hefur átak
þessu líkt og ráðstefnan varö mikill
uppsláttur fyrir ykkur,” segir einn
dönsku þátttakendanna, Age
Biichert ritstjóri. Hann er kvæntur
íslenskri konu, Nönnu (sem oft hefur
tekið myndir fyrir DV). Hann
kynntist þannig SÁÁ á Islandi og
varð síðar einn af stofnendum nýrra
SÁÁ-samtaka í Danmörku. Hann átti
myndir frá iáöstefnunni og var fús
til að segja stuttlega frá henni.
„íslenska reynslan"
„Hún var haldin til að kynna
Minnesota-lækninguna (sem heima
er kennd við Freeport og Sogn).
Þama á ráðstefnunni voru 350
manns frá 7 löndum. Islendingum
var sérstaklega boöið, því árangur
ykkar þykir til fyrirmyndar,” sagöi
Age Biichert.
„Fánar ráöstefnunnar voru þeir
sænski, íslenski og bandaríski. I
prentaðri dagskrá var sérstök grein
um Islendinga og mynd af Vígdísi
forseta að taka fyrstu skóflu-
stunguna að nýrri lækningastöð SÁÁ
við Grafarvog. Við setningarat-
höfnina söng Berglind Bjarnadóttir
og Björgúlfur Guðmundsson flutti
ávarp. Silvía drottning heyrði það
því hún var viðstödd opnunina,”
sagði Age og glotti.
,hSvo var tekinn hálfur dagur í að
segja frá „íslensku reynslunni”. Þá
sagði Henrik Berndsen, formaður
SÁÁ, sögu samtakanna og hvernig
viðhorf heföu gjörbreyst frá því fyrir
Sune Byren, yfirlæknir hjá SAS:
„Við höfum sent 60 starfsmenn
og 40 vandamenn „i meðferð" til
Bandaríkjanna og nú ætla Volvo
og Skandinaviski Handelsbank-
inn að gera slíkt hið sama."
Silvia drottning var viðstödd ráð-
stefnuna fyrsta daginn. íslending-
arnir sitja næst fyrir aftan hana.
Fleiri alkóhólistar eru dregnir fyrir dómarann á einni viku heldur en
koma á heilu ári til læknis," segir John McConough (t.h.), dómari
frá Minnesota. Bæði hann og Abigail Healy (t.vj, ráðgjafi Hvita
hússins um fikniefnamál, eru óvirkir alkóhólistar.
fáum árum, að ofdrykkja var talin
ólæknandi á Íslandi. Síðan sagði
Pétur Maack frá meðferðinni sjálfri
og Anna Þorgrímsdóttir frá eftir-
meðferð fyrir sjúklinga og vanda-
menn þeirra. Áheyrendum þótti
árangurinn ganga kraftaverki
næst.”
Ráðstefnan var skipulögð af
Monicu Getz og Sune Byren í sam-
vinnu við sænsk heilbrigðisyfirvöld.
Monica er sænskur ríkisborgari en
flutti til Bandaríkjanna þegar hún
giftist jassleikaranum fræga Stan
Getz og kynntist þar Minnesota-
lækningunni. Sune Byren er yfir-
læknir hjá SAS flugfélaginu. Síöan
1982 hefur SAS sent 60 starfsmenn og
40 vandamenn þeirra til lækninga í
Bandaríkjunum („Population Air-
lift”). Nú ætla Volvo, Skandinaviska
Handelsbanken og fleiri fyrirtæki að
fylgja á eftir.
Sune Byren upplýsti að tap vegna
áfengissýki væri talið nema um 60
milljörðum sænskra króna árlega,
eða sem svarar 10 prósent af sænskri
þjóðarframleiðslu.
Sálin eða sjússinn
Þama voru flutt mörg
erindi. Daniel Anderson læknir frá
Hazelden lagði áherslu á að sjúk-
lingurinn læknar sig fyrst og fremst
sjálfur. En það þarf að fá hann til að
horfast í augu við ástand sitt og
viðurkenna aö hann þurfi að breyta
um hugarfar. Lykillinn að
lækningunni er að rækta sína eigin
sál. Aðferðin er byggð á upp-
götvunum hins fræga sálfræðings
Jung, sem reyndar var lærisveinn
Freuds. ,,Spiritus contra spiituum”
(það verður að velja annaö af
tvennu, sálina eða sjússinn”)
skrifaði hann í bréfi til vinar síns.
John McDonough, fyrrverandi
dómari í Minnesota, sagði að um það
bil 75 prósent af öllum skráöum af-
brotum í Bandaríkjunum væru tengd
ofneyslu á alkóhóli eða fíkniefnum.
„Dómarinn sér fleiri alkóhólista í
einni viku en læknirinn á heilu ári,’
sagði hann. Honum hefur tekist að fá
því framgengt að í mörgum tilvikum
eru afbrotamenn í Minnesota nú
sendir í „meðferð” fremur en
fangelsi. Þar eru þeir dópaðir niður
og látnir dútla við einhverja hand-
iðju.
Þegar þeir sleppa út hafa þeir
tekið framförum.
Ráðgjafi Hvita hússins í fíkni-
málum, Abigail Healy, upplýsti aö á
vegum Bandaríkjastjómar störfuðu
nú 140 ráðgjafar og upplýsinga-
stöðvar. Æ meiri samvinna er höfð
við vinnustaði og starfsmannafélög
og öll fyrirtæki með fleiri en fimmtíu
manns í vinnu eru hvött til aö hafa
einhverja ráðgjafarþjónustu.
Abigail sagði að ofneysla hvers kyns
róandi lyfja væri uggvænlega út-
breidd meðal bandariskra kvenna. I
erindi sem Betty Ford sendi ráð-
stefnunni á videobandi sagði hin
fyrrverandi forsetafrú frá því hvaö
hún var orðin háð áfengi og pillum og
aldrei verri en meðan hún var
forsetafrú.
Börn eru líka fólk
„Það kom skýrt fram á
þinginu,” sagði Age Biichert enn-
fremur, „hvemig ofdrykkja eins
aðila endurspeglast hjá öðrum í fjöl-
skyldunni og hvemig alkóhólistanum
tekst að vefja þeim um fingur sér og
gera að stuðningsmönnum sinum,
svo hann geti haldið áfram
drykkjunni. Ástandiö bitnar ekki síst
á börnunum. En nú hafa verið
stofnuð samtök, sem heita „Children
are People” (Böm em líka fólk),
sem þegar hafa náð sambandi við
þúsundir af bömum drykkjusjúkra
foreldra í Bandaríkjunum.”
Að lokum sagði Age Biichert:
„Eitt það sem hafði dýpst áhrif á
mig á þinginu var kafli úr leikriti
O’Neills „Ismaöurinn kemur” ,
sýndur á video. Nöturleg lýsing á
afskræmdu sambandi hjóna, þar
sem annað er alkóhólisti og bæði
sjúk. Starf SÁÁ bindur enda á fjölda
slíkra harmleikja og ég þekki af
eigin raun að árangur Islendinga á
þessu sviði er alg jört kraftaverk.”
ágæt
Inga Huld Hákonardóttir, Kaupmannahöfn
Sendum í póstkröfu.
AUSTURSTRÆTIÍO ^555^ SIMI 27211
Meira en venjuleg verslun!
Hvítir 35 - 46
Svartir 35 — 46
Rauðir 35 - 46
Gráir 40 — 46
Kaki 35-46 (grænir)
35 - 40 kr. 695.
41 - 46 kr. 765.