Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Qupperneq 27
DV. LAUGARDAGUR16. JUNI1984.
27
30.Hxg7+ Kf8 31,Hfl og vinnur. Eftir
hinn geröa leik eru hvítum allar
bjargir bannaöar. Ef 29.Dxe2 Rf3+
30.Dxf3 hefur e-línan opnast og
svartur leikur 30.-Hxel+ 31.KÍ2
Hfl+ og vinnur.
— Larsen gafst upp.
Hvítt: MikhailTal
Svart: Bozidar Ivanovis
Tarrasch-vöm.
l.Rf3 d5 2,d4 e6 3.c4 c5 4.cxd5 exd5
5. Bg5!?Be7?
Svartreitabiskupinn er mikilvægur
því aö hann valdar reitina kringum
staka peöið á d5 sem svartur fær
brátt. Hvítur reynir oft mikið til þess
að ná fram þessum uppskiptum en
sjaldan tekst þaö svo auðveldlega.
Betra er 5.-f6 6.Be3 c4, eins og leikiö
var í skák Kortsnoj viö Grigorjan
1967.
6. Bxe7 Rxe7 7.dxc5 Da5 8.Rc3 Rbc6
9.e3 Dxc5 10.Be2 0-0 11.0—0 Be6
12.Hcl Had8 13.Ra4 Dd6 14.Rc5 Bc8
15.Dd21)616.Rb3 Bg417.Hfdl Dh6
Sóknartilburöir svarts eru dæmdir
til að mistakast einmitt vegna þess
aö hann vantar svartreita biskupinn.
Og nú hefur hann ekki spil á reit-
unum kringum staka peöiö eins og
svoalgengt er.
lS.Kbdi Hd6 19.b4 Dh5 20.b5 Rxd4
21.Rxd4 Bxe2 22.Rxe2 Hfd8 23.Hc7
Rf524.Hc6!
Skák
Jón L Ámason
Hvítur má ekki vera of veiði-
bráöur. Eftir 24.Hxa7? d4! nær
svartur gangfærum. Þá strandar
„mátfléttan” 25.exd4?? Rxd4
26.Rxd4 Hxd4 27.Dxd4 á 27.-Dxdl+!
og svartur mátar á undan!
24.-Dg5 25.Rd4Rh4?
Hótar máti en að öðru leyti er
leikurinn slæmur.
26.f4! Dg6 27.DÍ2 Rf5 28.Rxf5 Dxf5
29. e4! Dg4
Þar meö fellur staka peðiö á d5 en
ekki gekk 29.-Dxe4?? vegna 30.Hxd6
Hxd6 31.Hel og mát uppi í borðinu
vofir yfir.
30. Hd4 f6 31.Hxd6 Hxd6 32.Dd2 He6
33.h3Dh4 34.Hxd5g5??
Svo virðist sem óvænt franu-ás e-
peðsins í 29. leik hafi kippt svörtum
úr sambandi. Annars hefði hann
reynt 34.-h6 því aö ekki er öll nótt úti
enn.
35.Hd8+ Kf7 36.Dd7+ He7 37.Dd5+
Kg6 38.Hg8+ Hg7 39.DÍ5+
— Og svartur gafst upp.
Hættulegra að
gleypa
kokk
enffl
Eins og gengur er fólk misjafnlega
matvant nú til dags og þótt varla sé
hægt að kalla það dyggð að borða ekki
allan mat kemur matvendnin ekki að
sök þar sem matvælaúrvalið er orðið
svo mikið að fólk ætti ekki að þurfa að
sveltaþessvegna.
Þegar ég var aö alast upp var úr-
valiö hins vegar lítið og við vorum
stöðugt aö borða einn spón af hafra-
graut fyrir svöngu bömin í Kína og ef
viö gerðum þaö ekki fengum við ekki
neitt af því aö þá var síríos og kókó-
puffs ekki til og þaðan af síður fransk-
arkartöflur.
En þó að flestir séu matvandir er til
fólk sem borðar hvaö sem er.
Einu sinni fékk ég til dæmis
verðlaun fyrir að syngja Gamla Nóa á
einhverri skemmtun við undirleik
hljómsveitar sem hélt svo illa takti að
þegar ég var að syngja guðhræddur og
vís var hún að spila þá samt bar hann
prís og voru verðlaunin rakspíri af dýr-
ustu gerö í pínulitlu glasi.
Daginn eftir kom lítill frændi minn í
heimsókn og drakk verðlaunaspírann
enda var hann á þeim aldri að hann
hélt að það ætti að drekka allt sem
rynni en borða hitt. Hann var gjör-
samlega laus við matvendi því að þeg-
ar hann var búinn með spírann fór
hann út og borðaði svo mikið úr sand-
kassanum að hann var í vandræðum
með að leika sér í honum. Þar að auki
át hann stundum flugur og varö honum
miklu minna meint af því en f lugunum.
Vöruvöndun
Á tímum svöngu bamanna í Kína
var vöruvöndun ekki á háu stigi og þar
að auki ekki alveg öruggt að fólk sem
vann í kjötvinnslu hafi munað eftir að
þvo sér um hendurnar eftir að hafá
haft hægðir og lægðir eins og nemandi
nokkur orðaði svar sitt við spurningu
um hreinlæti stuttu eftir að f arið var aö
sýna veöurspárí sjónvarpi.
Nú er öldin hins vegar önnur í þess-
um efnum og vegna þess hve mikið er
til af sýkladrepandi sápu finnst manni
dálítið einkennilegt að hægt skuli vera
að fara út í búð og kaupa matareitrun á
tvö hundruö og f immtíu krónur kilóið.
Matareitruninni valda gerlar sem
heita clostridia og stafylokokkar, þetta
eru kvikindi sem fjölga sér svo ört að
það ætti að varða viö lög og svo lítil að
þótt milljón kokkar séu að stunda sitt
stóðlíf í kjötbollunni manns er ekki
viölit að koma auga á þá og eina ráöið
til aö forðast þennan ófögnuð er aö
hætta að borða kjötboliurnar sínar
með hníf og gaffli og fara að gera þaö
með hníf og smás já.
Meögöngutími þessara kvikinda er
sem sagt mun styttri en til dæmis
fílsins og þess vegna er miklu hættu-
legra að gleypa kokk en fíl og þar að
aukiauöveldara.
En það eru fleiri tegundir gerla en
kokkar og clostridiur í unnum kjöt-
vörum, þar er allt fullt af kóií og saur-
kólí sem drepast þegar þeir eru soðnir
eða steiktir og bragðast aö því búnu
alveg sérlega vel með brúnni sósu og
bökuðum kartöflum.
Háaloftið
Benedikt Axelsson
17. júní
Eg hef aldrei verið mjög hrifinn af
því skrúðgöngubrjálæði sem heltekur
þjóðina á hátíðisdögum en þegar ég hef
lýst því yfir að morgni sautjánda júní
aö skrúðganga fram í eldhús nægi mér
alveg og konan mín vill fá að vita hvort
virðing mín fyrir sjálfstæði Islands nái
ekki lengra en þangað gefst ég upp
fyrir jafneinföldum rökum og arka
niður á Miklatún þar sem trúöarnir
eiga að skemmta fólki með því að detta
á rassinn og missa niöur um sig
buxumar.
« : Á Miklatúni er búið að koma upp
mjög góðri aöstöðu fyrir trúðana að
missa niður um sig buxumar á, þeir
gera það á palli sem er sérstaklega
hannaöur í þessu skyni og njóta þeir
einir skemmtunarinnar sem hafa kom-
ið snemma og lagst háifir upp á pallinn
en hins vegar eiga þeir það á hættu aö
trúðamir stigi ofan á nefið á þeim ef
þeim verður fótaskortur.
Við sem komum seint verðum á hinn
bóginn að taka okkar stöðu við hliðina
á Einari Ben. og getum svo sem alveg
eins snúið okkur undan eins og hann
þar sem við sjáum ekkert sem fram
fer á sérhannaöa pallinum fyrir mann-
fjöldanum.
Tíu ára gamall sonur minn er ekki
ánægður með þetta og heimtar að ég
taki sig á háhest en þegar ég treysti
mér ekki til þess hótar hann að kiifra
upp á hausinn á Einari og á ég í mestu
vandræðum meö að koma honum í
skilning um aö það sé bannaö að príla á
þjóðskáldunum og þar að auki eigi
enguin aö sjá neitt af skemmtiat-
riðunum sautjánda júní.allra síst börn.
Hins vegar sé gert ráð fyrir því að aliir
fari niður í bæ að kaupa blöðru og
pylsu og íslenska fánann handa börn-
unum sínum sem eiga að erfa landið og
skuldirnar við útlönd.
Síðan er arkað í tífaldri röö niöur
Laugaveginn með lúðrasveit í broddi
fylkingar og um kvöldið er dansað á
strætum úti en ég fer heim að yrkja
lýðveldisljóð.
Sá dagur lifir enn með okkar þjóö
er einhugur á föstum rótum stóð.
Þá þjóðin bjó við áþján erlends valds
og okkur skorti menn til trausts og halds.
Þú gfast ei upp og enginn nema þú
gat eflt vort þrek og sty rkt þá veiktu trú
að þjóðin gæti ennþá fært þá fórn
að frelsa sig og lúta eigin stjóm.
Vors sjálfstæðis vér syngjum glaðan brag
því sigur vor vannst einmitt þennan dag
og sigrinum vér fögnum kampakát
við kóka kóla drykkju og pylsuát.
Eg vona aö það sé ekki talandi tákn
um virðingu okkar fyrir lýðveldinu að
síðast þegar ég keypti blöðru
sautjánda júní var hún með á-
letruninni: Old MacDonald had a
farm.
Sem betur fer sprakk hún áður en
dagur var aö k veldi kominn.
Kveðja
‘.............Ben.' Áx. ‘
Lausstaða
Staða ritara við embætti ríkisskattstjóra, rannsóknardeild, er
hér með auglýst laus til umsóknar frá 15. júlí.
Góð vélritunar- og ritvinnslukunnátta áskilin.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist skattrannsóknarstjóra, Skúlagötu 57 Reykjavík, fyrir
13. júlí.
Reykjavík 13. júní 1984.
SKATTRANNSÓKNARSTJÖRI.
NÝIR OG NOTAÐIR
ÐÍLAR
SELJUM í DAG
TEGUND ÁRGERÐ EKINN LITUR VERÐ
BMW 528i 1982 30.000 grásans. 680.000
BMW 518 1982 28.000 dökkblár 505.000
BMW 320 1982 30.000 blásans. 450.000
BMW 318í 1982 30.000 gráblár 385.000
BMW 315 1982 20.000 rauður 330.000
Renault 5TL 1980 50.000 grænn 150.000
BMW 732i 1982 22.000 silfurgrár 910.000
SELJUM IMOTAÐA BÍLA í DAG
ÚRVAL ANNARRA BÍLA Á SÖLUSKRÁ,
ÝMISS KONAR SKIPTI HUGSANLEG.
OPIÐ 1 - 5
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI
HF.
686633.
SAAB 900 GLS árg.
1982, 4 dyra, rauður,
ekinn aðeins 26.000
km, beinskiptur, 5
gira. Bíll i sérflokki.
TÖGGURHF.
SAAB UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16.
SÍMAR 81530 OG 83104
SELJUM í DAG
n=D
A V A
SAAB 99 GL árg.
1982, 4 dyra, rauður,
beinskiptur, 5 gíra,
ekinn 45.000 km.
SAAB 900 GL árg.
1982, 5 dyra, Ijós
blár, beinskiptur, 4
glra, ek'mn 49.000
km. A góðu verði.
SAAB 900 GLE árg.
1982, 4 dyra, Ijós-
blár, beinskiptur, 5
gira, vökvastýri, lit-
að gler og fleira, ek-
inn 39.000 km.