Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Page 28
28
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984.
Gunnar Júlíusson nuddari:
Eg er að hugsa um að setja þá í 3.
sæti. Annars er erfitt aö spá um
þetta. lAeða IBK vinnur mótið.
Bjarni Jónsson, vinnur í Bíla-
naustí:
Þeir eru ekki fyrir hendi. Breiða-
blik tekur þetta meðstæl.
Stefán Sigurðsson, garðyrkju-
bóndi í Skagafirði:
Eg veit ekki. Eg hef aldrei séð
knattspymu en spái KR sigri.
Aðalsteinn Steingrímsson verk-
stjórl:
Framarar hafa leikið nokkuð vel
og ef þetta smellur saman hjá
þeim geta þeir unnið. Þeir veröa
alla vega ofarlega.
Rúnar Guöjónsson, vinnur hjá
Pósti ogsíma:
Eg veit það ekki. Eg hef enga trú
á þeim. Skagamenn vinna þetta.
Guðmundur Vilhjálmsson versl-
unarmaður:
Eg tel að Fram eigi mikla mögu-
leika á að verða Islandsmeistari í
sumar.
Fram—Fram—Fram — Fram—Fram — Fram—Fram—Fram
„ÉG ER NOKKUÐ BJARTSÝNN
Á FRAM-LIÐIÐ í SUMAR”
segir Kristinn Jörundsson, fyrrum leikmaður með félaginu
„Flestir strákarnir sem leika með
Fram í dag hafa staðið sig vel í
gegnum tíðina með félaginu og unnið
mörg mót í yngri flokkum. Því er ekki
að neita að margir leikmenn liðsins eru
ungir að árum en innan um eru gamlir
og reyndir leikmenn þannig að ég er
nokkuð bjartsýnn á Fram-iiðið í
sumar,” sagði Kristinn Jörundsson, en
Marteinn Geirsson, sem lék með
Fram um árabil, hefur leikið flesta
leiki með Fram af öllum ieikmönnum
frá upphafi, leikirnir orðnir 319.
Marteinn leikur ekki með Fram í
sumar, þjálfar 2. deildar lið Víðis frá
Garði.
Næstur Marteini kemur gamla
brýniö Gunnar Guðmundsson en hann
æfir enn meö liðinu. Ásgeir Elíasson,
sem nú þjálfar Þrótt, hefur leikið 270
leiki fyrir Fram, Sigurbergur Sig-
steinsson 225, Kristinn Jörundsson 208
hann lék um árabil með meistaraflokki
Fram og skoraði mikið af mörkum.
„Leikir Fram-liösins hafa verið
nokkuð gloppóttir. Liöið hefur oft leikiö
vel en dottið niður þess á milli og jafnn-
vel hafa þessir hlutir átt sér stað í
sama leiknum. Liðið hefur oft verið
óheppið að tapa leikjum að minu mati.
Liðið hefur kannski ekki alltaf átt
og BaldurScheving 196.
Af þeim leikmönnum sem leika með
meistaraflokki á dag er Trausti
Haraldsson leikjahæstur meö 192 leiki,
Guðmundur Baldursson hefur staðiö í
marki Fram í 167 leiki, Guömundur
Torfason er með 130 leiki, Hafþór
Sveinjónsson 109, Kristinn Atlason 101,
Guðmundur Steinsson 99 (leikur sinn
100. leik með Fram í dag gegn Víkingi)
og Viðar Þorkelsson hefur leikið 74
leiki.
skilið að vinna en oft átt annaö stigið
skilið.
Mér sýnist á öllu að Skaginn og
Keflavík verði í toppbaráttunni en ég
hika ekki við að spá Fram einu af
fjórum efstu sætunum. Þrátt fyrir að
IA og IBK hafi nú nokkurt forskot er
þetta fljótt að koma hjá hinum liðinum
eftir að þriggja stiga reglan var tekin
upp. Sú regla finnst mér vitlaus. Það
átti að gefa þrjú stig fyrir þrjú mörk
Ómar Torfason, Víkingi.
„Framarar
sterkir”
— segir Víkingurinn
ÖmarTorfason
„Mér list mjög vel á Fram-liðið. í
liðinu er góð blanda af ungum og
reyndum leikmönnum og minu viti er
það bara spurning hvenær liðið
springur út,” sagði víkingurinn Ómar
Torfason í samtali við DV.
„Eg hef þá trú að Fram-liöið verði
toppliö hér eftir eitt til tvö ár. 1 liöinu
eru margir mjög skemmtilegir leik-
menn og nægir þar aö nefna þá
Guömund Steinsson og nafna hans
Torfason og svo spillir þaö ekki fyrir
að Pétur Ormslev fer líklega að leika
með liðinu að nýju. Miöjan hefur nefni-
lega verið veiki hlekkurinn hjá Fram í
sumar og ég held að Pétur sé sá leik-
maður sem liðið vantar á miðjuna.
Fram-liðið er eitt af þeim liðum í 1.
deild sem ávallt reynir að leika
sóknarknattspymu, sama hver and-
stæðingurinn er.
Eg held að Skaginn og Keflavík
verði á toppnum alla vaga eins og
staðan er í dag. Fram, Þróttur, og
Breiðablik verða ekki langt undan en
hin liðin sem eftir eru verða í neðri
kantinurrr,” sagði Omar Torfason.
—SK
Kristinn Jörundsson lék með Fram um
árabil og þótti með eindæmum mark-
heppinn leikmaður.
eins og gert var í Reykjavíkurmótinu.
Eg tel að þaö hefði haft í för meö sér
mun skemmtilegri knattspyrnu,”
sagði Kristinn Jörundsson.
—SK
Eftir þá yngingu á
leikmönnum Fram-
liðsins í knattspyrnu
eftir að liðið féll í 2.
deild fyrir tveimur ár-
um varð ljóst að næstu
ár yrðu liðinu erfið.
Með glæsibrag tókst
liðinu að vinna sigur í 2.
deild og liöiö hefur náð
að spjara sig þokka-
lega í sumar. Liðinu til
hróss má segja að
alltaf er reynt að leika
knattspyrnu og hafa
gaman af því sem verið
er að gera hverju sinni.
í liðinu eru margir
reyndir og stór-
skemmtilegir leikmenn
en innan um aðrir
reynslugrennri en
engu að síður leikmenn
framtíðarinnar. Þegar
þeir hafa náð „fullum
þroska” á knattspyrnu-
vellinum þurfa Fram-
arar ekki að ganga nið-
urlútir af leikvelli. Spá
manna er að eftir eitt
til tvö ár verði Fram-
liöiö eitt besta liðið hér
á landi. Ég veit að allir
Framarar vona að svo
verði. En spár einar
sér gera ekkert lið
betra en annað. Leik-
menn sjálfir verða að
taka á hlutunum, ætli
þeir sér að verða í
fremstu röð og taka
framtíðina með stæl.
-sk.
—SK
Leikmenn Fram
Eftirtaldi leikmenn æfa með meistaraflokki Fram í sumar:
Guðmundur Baldursson, 24 ára markvörður, 167 leikir með Fram, 8 Iands-
leikir og 4 leikir U-18 ára.
Haukur Bragason, 18 ára markvörður, 8 leikir með Fram og 4 leikir U-18
ára. Nýliði.
Jónas Björnsson, 17 ára tengiliður, einn leikur með Fram og 12 leikir U-16
ára. Nýliði.
Árni Arnþórsson, 20 ára bakvörður, 19 leikir með mfl.
Bragi Bjömsson, 20 ára tengiliður, 18 leikir með mfl.
Guðmundur Steinsson, 23 ára sóknarmaður, 99 leikir með mfl., 1 A-lands-
leikur og 1 ieikur U-21 árs.
Guðmundur Torfason, 22 ára sóknarmaður, 130 leikir með mfl., 3 leikir U-
18 ára og 4 leikir U-16 ára.
Gunnar Guðmundsson, 37 ára tengiliður, 283 leikir með mfl., 3 A-landsl., 5
leikir U-21 árs, 4 U-18 ára og 4 leikir U-16 ára.
Jón Sveinsson, 18 ára bakvörður, 7 leikir með mfl., 6 leikir U-18 ára og 4
leikir U-16 ára.
Steinn Guðjónsson, 20 ára tengiliður, 54 leikir með mfl., 3 leikir U-18 ára.
Sverrir Einarsson, 25 ára vamarmaður, 84 leikir með mfl., 4 leikir U-18
ára og 3 leikir U-16 ára.
Trausti Haraldsson, 27 ára bakvörður, 192 leikir með mfl., 19 A-landsleikir
og 1 leikur U-18 ára.
Valdimar Stefánsson, 20 ára tengiliður, 19 leikir með mfl., 4 leikir U-18 ára
og 7 leikir U-16 ára.
Viðar Þorkelsson, 21 árs tengiliður, 73 leikir með mfl.
Bryngeir Torfason, 24 ára sóknarmaður, 20 leikir.
Einar Bjömsson, 20 ára sóknarmaður, 31 leikur með mfl„ 4 leikir U-18 ára
og 8 leikir U-16 ára.
Gísli Hjálmtýsson, 20 ára varaarmaður, 33 leikir, 6 leikir U-18 ára og 7
leikir U-16 ára landsl.
Guðjón Ragnarsson, 20 ára bakvörður, einn leikur.
Kristinn Atlason, 27 ára vamarmaður, 101 leikur og 1 leikur U-18 ára
landsl.
Kristinn Jónsson, 19 ára tengiliður, 40 leikir og 4 leikir U-18 iandsl.
Láms Grétarsson, 22 ára sóknarmaður, 34 leikir.
Óiafur Hafsteinsson, 22 ára sóknarmaður, 25 leikir.
Ómar Jóhannsson, 24 ára tengiliöur, 12 leikir með mfl., 1 leikur U-21 árs, 4
leikir U-18 ára og 7 leikir U-16 ára landsl. Lék áður með Vestmannaeying-
um.
Þorsteinn Vilhjálmsson, 20 ára bakvörður, 10 leikir með mfl., 1 leikur U-18
ára landsl. Nýliði.
Þorsteinn Þorsteinsson, 19 ára vamarmaður, 61 leikur, 2 A-landsleikir, 1
leikur U-21 árs, 6 leikir U-18 ára og 7 leikir U-16 ára landsl.
Ora Valdimarsson, 18 ára sóknarmaður, 4 leikir með mfl., 9 leikir U-18 ára
og 2 leikir U-16 ára landsl. Lék áður með Fylki.
Ástþór Óskarsson og Vilhjálmur Hjörlelfsson em iiðsstjórar og þjálfari
Jóhannes Átlason.
Marteinn er
leikiahæstur
— Trausti hefur hins vegar leikid flesta leiki
af þeim sem leika í sumar
Fram — Fram—Fram — Fram — Fram — Fram—Fram—Fram