Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER1984.
3
Samningur bókagerðarmanna:
MIKILL HERKOSTNAÐUR
EFTIR 6 VIKNA VERKFALL
Bókagerðarmenn og viðsemjendur
þeirra náðu samkomulagi í gær í yfir-
standandi kjaradeilu. Samningsaðilar
höföu þá setið nær sleitulaust á fundum
hjá ríkissáttasemjara frá því snemma
á laugardaginn.
Ymsar tillögur til lausnar höfðu ver-
ið lagðar fram af aðilunum á þeim
tíma. I gærmorgun lagði svo Guðlaug-
ur Þorvaldsson sáttasemjari fram
sáttatillögu sem var mitt á milli til-
lagna samningsaðila. Þessi tillaga
hans var síðan samþykkt óbreytt og
lögð fram á félagsfundi prentara í Sig-
túni í gær þar sem hún var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta.
Kjarasamningur sá sem nú liggur
fyrir felur í sér 10 prósent hækkun
launa við undirskrift samninga. Þrjár
áfangahækkanir verða á samnings-
tímabilinu sem er út árið 1985. Hver
þessara hækkana er 3 prósent. Þær
koma 1. desember, 1. júní og 1. septem-
ber. Þá verða greiddar út 3000 krónur
til prentara 30. nóvember og 1500 krón-
ur 29. mars á næsta ári. Ef um hluta-
starf er aö ræða eru þessar greiðslur í
hlutfalli við það.
Þá er einnig gert ráö fyrir 600 króna
launauppbót til þeirra lægst launuöu í
félaginu. Þeir sem hér um ræðir eru að-
stoðarfólk og sveinar sem fá borgað
eftir taxta eftir eins árs vinnu hjá
sama atvinnurekanda.
I þessum samningi er hvergi minnst
á skattalækkunarleið stjómvalda eða
getið uppsagnarákvæða á samnings-
timabilinu. En sérstakt ákvæði er um
verðtryggingu launa. Þar er kveðið
svo á aö ef samið verði um slíkt hjá
öðrum fái prentarar einnig slikt í sína
samninga.
Herkostnaður
Þegar prentarar gengu til atkvæða-
greiðslu í gær voru liðnar sex vikur og
einn dagur frá því að þeir fóru í verk-
fall.
Það getur verið erfitt að geta sér til
um hver herkostnaður þeirra hefur
verið í svo löngu verkfalli. I gær sagði
ónafngreindur aðili frá VSI að þessi
samningur fæli í raun í sér 2 prósenta
kauprýrnun miðað við að prentarar
hefðu ekki farið í verkfall. Verkfallið
hefði þegar kostað þá 15 prósent og upp-
haflega áttu þeir kost á að fá 3 prósent
1. september og önnur 3 prósent 1.
janúar.
APH
Muta atkvæða á fólagsfundiþeirra igmr. D V-mynd: Kristján Ari.
Ekki samningur
um kjarabætur
r
— segir Þórarinn V. Þórarinsson hjá VSI
„Því miöur er þessi samningur ekki
um kjarabætur heldur um óraunhæfar
kjarabætur,” sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, aðstoðarframkvæmdastjóri
VSI, er hann var inntur álits á kjara-
samningi sem bókageröarmenn gerðu
ígær.
„Eg er dapur yfir þeirri þróun sem
hefur verið á samningamálum undan-
farið og þessi samningur tekur mið af
þeirri þróun,” sagði Þórarinn.
Hann sagöi aö sú leiö sem nú hefur
verið valin í samningamálum ætti eftir
að leiða til aukinnar verðbólgu en ekki
kaupmáttar.
APH
Ragnhildur Helgadóttir menntauála-
ráðherra um útvarpslagaf rumvarpið:
Vænti sam-
þykkis stjóm-
arflokkanna
„Eg á von á því að stjórnarflokkam-
ir standi sameiginlega að því að af-
greiða útvarpslagafrumvarpið á Al-
þingi og samþykkja það,” sagði Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráð-
herra er DV innti hana álits á fram-
gangi frumvarps til útvarpslaga sem
nú liggur fyrir Alþingi.
Frumvarpinu var í gær vísað til
menntamálanefndar neðri deildar eft-
ir að ein umræða haföi farið fram um
það í deildinni. Ráðherra kvaðst búast
við því að frumvarpið gæti gengið fljót-
lega fram þar sem það hefði verið lagt
fram strax í upphafi þings. Það hefði
fengið nokkra umfjöllun í nefnd í fyrra.
Komnar hefðu verið fram umsagnir
frá fjórtán aðilum og fljótlega yrði
kallað eftir umsögnum frá fleiri sem
láta ættu þær í'té.
„Eg held að það blandist engum
hugur um það að gera verður breyt-
ingu á gildandi útvarpslögum,” sagði
ráðherra. „Það er aðeins í samræmi
við þá stefnu sem uppi er hjá flestum
Evrópuþjóöum um þessar mundir.
Takist ekki að afgreiða frumvarpið
frá Alþingi þegar um mánaðamótin þá
vænti ég þess að afgreiðslan dragist
ekki langt fram yfir þau.”
-JSS
Mál Fréttaútvarpsins
til saksóknara í vikunni
Niðurstööur rannsóknar á máli út-
varpsstjóra gegn Fréttaútvarpinu
verða væntanlega sendar til ríkissak-
sóknara í vikunni. Andrés Bjömsson
útvarpsstjóri kærði starfsemi stöðvar-
innar til ríkissaksóknara þann 5. októ-
ber sl. Var málinu síðan vísað til rann-
sóknar hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Að sögn Erlu Jónsdóttur hjá RLR er
rannsókn á því nú lokið. Kvaðst Erla
vænta þess að niðurstöður yrðu sendar
til embættis ríkissaksóknara í vikunni.
Otvarpsstjóri kærði einnig starf-
semi Fr jáls útvarps. Hefur rannsókn á
því farið fram samhliða rannsókninni
á máli Fréttaútvarpsins. Er þess að
vænta að niðurstöður þess máls verði
einnig sendar ríkissaksóknara í vik-
unni.
I framhaldi af kæru útvarpsstjóra
höfðu fyrirsvarsmenn Fréttaútvarps-
ins fariö fram á rannsókn á lögmæti
þess að starfsmenn á Ríkisútvarpinu
lögðu niður vinnu þrem dögum fyrir
boöað verkfall. Þetta mál er nú í rann-
sókn hjá RLR.
-JSS
Hann er íslenskur!
Hann erlagaður
að líkamanum!
Hann fæst með eða
ánarmaogmeð
hvaða áklæði sem er!
Ef hann er 2000 krónum ódýrari en
innfluttur stóll, hversu mikið gætir
þú þá sparað í næsta skipti sem þú
pantar 25 stóla fyrir fyrirtæki þitt?
Rétt! 50.000 krónur. Hvernig gæti
fyrirtækið haft not af 50.000 krónum
aukalega? Hvernig sem þú vilt nota
peningana þá ertu alltaf velkominn. | Á f f FX f iI If Lf
Hjá okkur gerir þú hagkvæm F
innkaup. Viðopnum klukkan 8. SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI43211