Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Síða 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER1984.
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir viku:
RÍKISSTJORWIN KOMIN
í MINNIHLUTA
Ríkisstjórnin hefur tapað miklu fylgi
síðustu vikur. Ríkisstjórnin er nú í
múmihluta meðal landsmanna. Þetta
sýmr ikoðanakönnun, sem DV lét gera
fyrir sig 12,—14. október, fyrir rúmri
viku.
Ríkisstjórnin hefur tapaö mjög síðan
DV gerði skoðanakönnun í september.
Af öllu úrtakinu styðja 34 prósent nú
ríkisstjórnina, sem er 3,5 prósentustig-
um minna en var í september. And-
vígir ríkisstjórninni eru nú 38,5 prósent
eða 4,5 prósentustigum meira en var í
september. Oákveðnir eru nú 16,8%
sem er 0,7 prósentustigum minna en
var í september. Þeir sem vildu ekki
svara spurningunni eru 10,7% eða 0,3
prósentustigum minna en var í
könnuninni í september.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar um afstöðu til ríkisstjórnarinnar
urðu þessar. Ti! samanburðar eru niðurstöður D V-kannana á kjörtíma-
bitinu:
Nú Sept. '84 Maí '84 Mar* '84 Okt. 83
Fylgjandí 204 eða 34% 37,5% 49,5% 56,8% 48,2%
Andvigir 231 eOa 38,5% 34% 23,7% 17,2% 27,7%
Oákvoðnir 101 eOa 16,8% 17,5% 19,2% 21,5% 20,7%
Svara ekki 64 eOa 10,7% 11% 7,7% 4,5% 3.5%
Ef aöoins eru teknir þeir, sem taka DV- og Hagvangskannana: afstöóu, veróa nióurstöóurnar þessar. Til samanburöar eru nióurstöóur fyrri
Nú DV sept. '84 Hv. júli DVmaí Hv. apr. DV man DVokt. '83
Fylgjandi 46,9% 52,4% 68,6% 67,7% 77,2% 76,8% 63,5%
Andvigir 53,1% 47,6% 31,4% 32,3% 22,8% 23,2% 36,5%
Ef teknir eru þeir, sem taka afstöðu,
fylgja 46,9% nú ríkisstjórninni en
53,1% eru henni andvígir. Fylgi ríkis-
stjómarinnar hjá þeim sem taka af-
stöðu hefur minnkað um 5,5 prósentu-
stig síðan í september og andstaðan
vaxið að sama skapi. Ef litið er til
lengri tíma hefur fylgishrun stjómar-
innar orðið mikið. Stjórnin naut í mars
síðastliönum fylgis 77 prósenta þeirra
sem tóku afstöðu. I maí í vor var fylgi
hennarum68%.
Könnunin var gerð með DV-aö-
ferðum í hvívetna. Urtakið var 600
manns, og var jöfn skipting milli kynja
og jöfn skipting milli höfuðborgar-
svæðisins og annarra landshluta.
Spurt var: Ertu fylgjandi eöa and-
vígur ríkisstjórninni? -HH
Ummæli f ólks í könnuninni: r
MINNKANDITILTRU
Á STJÓRNINNI
„Ég vil losna við rikisstjórnina sem
fyrst, með góðu eða illu,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu, þegar hann
svaraði spurningunni í skoðanakönn-
uninni. „Leggja ætti niöur stjórnmála-
flokka og velja gott fólk í rekstur þjóð-
félagsins,” sagði kona úti á landi.
„Rikisstjómin á endilega að vera
áfram, þvi að allt sem aflaga hefur
farið er þeim að kenna sem á undan
sátu,” sagði kona á Reykjavikursvæð-
inu. „Stjómin ætti að sjá sóma sinn í aö
segja af sér,” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu. „Ég er farinn að efast
um ágæti ríkisstjórnarinnar upp á síð-
kastið,” sagði kona á Suðurlandi.
„Sami rassinn undir öllum þessum
ríkisstjórnum,” sagði karl á Vestfjörð-
um. „Þetta er allt sama pakkiö. Það
hefur sýnt sig að það skiptir ekki
nokkru máli hverjir stjóma hér,”
sagöi kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Viö verðum að bíða og sjá hvað gerist
á næstu dögum. Þaö er of snemmt að
dæma ríkisstjómina til dauða,” sagði
kona á Reykjavíkursvæðinu.
, .Almenningur er að tala um að þessi
stjóm hafi ekki staðið sig. Hvað hafa
hinir flokkamir gert þegar þeir hafa
verið í stjóm?” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu. „Ríkisstjórnin er að
missa fylgi meðal almennings. Það
hefði hver sem er getaö verið búinn að
minnka verðbólguna með þessum aö-
ferðum,” sagði karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Ríkisstjórnin hefur brugöist
vonum mínum síðustu daga,” sagði
karl á Norðurlandi. „Ég er fylgjandi
Albert Guðmundssyni í ríkisstjórninni.
Hann hefur staöið sig vel,” sagði kona
á Reykjavíkursvæðinu. „Mestu skiptir
að koma Albert úr stjóminni,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. „Góðir
menn í ríkisstjórninni. Islendingar em
einfaldlega að verða brjálaðir,” sagði
kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Eg hef alltaf verið sjálfstæöis-
manneskja, en maður veit ekki hvaö
Talsverðar breytingar yrðu á þingliðinu, afkosið vœri nú.
maöur gerir þegar allt veltist svona
stjórnlaust,” sagöi kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Maður er hálfmglaður
í þessu þessa dagana,” sagöi önnur.
„Kýs engan. Allir fyrir neöan allar
hellur,” sagöi kona á Norðausturlandi.
„Eg veit ekki hvaö ég myndi kjósa.
Þetta er allt sama tuggan,” sagði kona
á Reykjavíkursvæðinu. „Ég hef alltaf
kosið Alþýðubandalagið og geri það
áfram,” sagði önnur. „Sjálfstæðis-
flokkurinn gat stjórnað, en hann getur
þaö greinilega ekki lengur,” sagði karl
á Reykjavíkursvæðinu. „Ég þekki
Steingrím og myndi því kjósa hann ef
kosningar fæm fram í dag,” sagöi
kona á Reykjavíkursvæðinu.
-HH
idagmælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
í daa mælir Daafari
í stríði við þjóðina
Dagfari fór ekki i verkfall en lenti i
þeim ósköpum að verða fyrir barð-
inu á því eins og fleiri. t upphafi stóð
Dagfari í þeirri meiningu að BSRB
hefði farið í verkfall gegn ríkinu og
hafði ekkert nema gott eitt um það
að segja. Við erum jú öll á móti rík-
inu. En svo siökktu þeir fyrir útvarp-
ið og sjónvarpið, stoppuðu strætó,
lokuðu dagheimilunum, hættu að
bera út póstinn og höfðu melra að
segja í hótunum við fólk sem ætlaðitil
útlanda. Þá fór að káraa gamanið og
Dagfara var ljóst að BSRB var ekki
komið í stríð við ríkið heldur allan
almenning í landinu. Óneitanlega
kom þetta flatt upp á marga því ekki
var til þess vitað að venjulegir borg-
arar, gamalt fólk, einstæðar mæður
eða bíllausar f jölskyldur í Breiðholt-
inu hefðu nokkuð það til saka unnið
gagnvart opinberum starfsmönnum
sem kallaði á þessi ósköp.
Maður skilur það vel að blessað
fótkið vilji harra kaup en maður vissi
það ekkl fyrr en í þessu verkfalli að
ráðið til að fá launin hækkuð væri aö
hefna sín á blásaklausum borgur-
unum.
Gamli maðurinn í íbúðinni við hlið-
ina á mér kom stundum á síðkvöld-
um og spurði hvað klukkan væri,
sennilega til að athuga hvort fleiri
lifðu þessa styrjöld af heldur en hann
sjálfur. Vissi hann þó raunar ekki
fyrir víst hvort hann væri lífs eða liö-
inn, enda fór það svo, þegar hann
hrökk upp af um miðjan október, að
kjaradeilunefnd lagði bann við því að
iát hans væri kunngert.
Þaö verður þó að meta það við út-
varpið að það lagði það á starfsmenn
sina að gefa frá sér hljóðmerki á
klukkutímafresti svona rétt til þess
að þjóðln fengi vitneskju um að ailt
væri með felldu. Verður BSRB mönn-
um seint fullþökkuð sú tillitssemi,
enda ekki að efa að íslendingar
kunna nú betur að meta Gufunes-
radíóiö fyrir hina vönduðu dagskrá
hljóðmerkjanna.
í fyrstu átti Dagfari erfitt með að
skilja hvers vegna verkfallsverðir
viidu koma í veg fyrir flugferðir milli
landa. En á því er augljós skýring
þegar betur er að gáð. Auðvitað hlýt-
ur það að vera kappsmál fyrir opin-
bera starfsmenn að sem flestir njóti
þeirrar lifsreynslu að sitja undir
verkfalll þeirra. (Jr því að sú stefna
var tekin upp að beina spjótum sin-
um að fólkinu en ekki ríkinu var auð-
vitað um að gera að halda sem flest-
um í Iandinu, - og útlendingum lika.
Eða hvers vegna ættu eriendir ferða-
langar að sleppa við refslngu úr því
þeir á annað borð leyfðu sér að hafa
samneyti við tslendinga sem vora
vondir við BSRB?
Ekki tókst að stöðva flugið með
öllu en það var ekki verkfallsvörðum
að kenna. Hins vegar náðist sá
árangur að stööva skipin, skólana,
áfenglð, póstinn, strætisvagnana og
útvarpið, ef frá era talin hljóðmerk-
in. Með því að blöðin komu ekki út,
hafði þjóðin gott næði til að lesa yfir
BSRB-verkfallstfðindi sem að sjálf-
sögðu voru full af hlutlausum frétt-
um. En það mun hafa verið megin-
ástæðan fyrir stríðinu gegn frjálsu
útvarpsstöðvunum að þær fluttu
hlutdrægar fréttir. Slíkt gengur auð-
vitað ekki þegar menn vilja fara að
iögum. BSRB hefur svo sannariega
haft lögin sín megin sem sjá mátti á
kröfugöngu löggunnar svo ekki sé
taiað um þá löghlýðni sem kom fram
í því að verkfallsverðir sögðu lög-
reglumönnum fyrir verkum viö hlið-
in á Keflavikurflugvelli.
Enn sér ekki fyrir endann á stríði
opinberra starfsmanna gegn þjóð-
inni. Vonandi lifir þjóðin þetta stríð
af. Það er jú hún sem á að borga
brúsann. Dagfari