Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Page 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÖBER1984.
35
Fréttaútvarpið Fréttaútvarpið Fréttaútvarpið
/ upphafi útsendinga Fróttaútvarps-
ins var sent út úr þessum jeppa. Hér
er hann ofan viö Breiðholtsbyggð-
ina.
Fréttaþulurinn kveikti loks á útvarp-
inu og heyröi sér til skelfingar aö verið
var aö lesa síöustu fréttina sem send
hafði veriö. Seinni fréttaspólan var
hins vegar enn í segulbandstæki tækni-
manna. Máliö bjargaðist þó með
háskaakstri vakthafandi fréttastjóra
og persónulegu meti hans í 100 metra
hlaupi eftir göngum ritstjómarinnar.
Kvartanir heyröust ekki frá hlustend-
um sem vonandi hafa haldið að þetta
væri ein af nýjungum Fréttaútvarps-
ins!
önnur atriði gerðu starfsmönnum
Fréttaútvarpsins erfitt fyrir, sérstak-
lega sérkennilegt háttalag símans.
Þannig voru truflanir á símakerfi rit-
stjómarinnar og átti það sérstaklega
við skiptiborðssímann. I eitt skipti
duttu allir simar ritstjómarinnar út
samtimis, skiptiborðið og allar beinar
línur. Samband náðist nokkru síðar án
þess að skýring fengist á ástandinu. Á
meðan á þessu gekk var eðlilegt sam-
band við hinn aðalsíma Frjálsrar fjöl-
miðlunar og DV, þ.e. þann síma er not-
aður er af auglýsingadeild, dreifingu
og skrifstofum. Símadraugur þessi átti
því ekki jafnsökótt viö alla!
Andstaða BSRB
Ljóst var að Fréttaútvarpið náði
mjög fljótlega til fóksins og hlustun
var almenn. Viðbrögð fólks voru mjög
góð og fjölmargir sem hringdu í síma
útvarpsins til þess að lýsa yfir sam-
stöðu og stuðningi. Þá voru viðmælend-
ur útvarpsins almennt mjög fúsir að
tjá sig og koma skoðunum sínum á
framfæri en með einstaka undantekn-
ingum þó. Stöku stjórnmálamenn töldu
ekki við hæfi að koma fram I útvarps-
stöð sem ekki hefði leyfi yfirvalda til
útvarps. Forysta BSRB var einnig
andvíg þvi að tjá sig í fréttatímum
Fréttaútvarpsins. Fréttamenn þess
uröu því að leita annarra leiða til þess
að koma sjónarmiöum BSRB-manna á
framfæri sem nauösynlegt var til þess
að gæta jafnvægis í fréttaflutningi.
Neyðarréttur
Eftir því sem dagar Fréttaútvarps-
ins urðu fleiri því betur gekk starfið.
Hver maður þekkti nú sitt sviö, auglýs-
endur vissu að útvarpið náði til fjöld-
ans og dagskrá batnaði. Yfir starfs-
mönnum vofðu þó alltaf hugsanlegar
aðgerðir yfirvalda sem töldu stöðina
ólöglega. Starfsmenn töldu hins vegar
að hér væri um neyðarrétt að ræða í
mjög óvenjulegu ástandi. Sú skoðun
var studd af ákaflega mörgum. Tómas
Ámason, alþingismaður og fyrrum
ráðherra Framsóknarflokksins, lýsti
því m.a. yfir í viötali við Fréttaútvarp-
ið að hann liti svo á að neyðarréttur
gilti um starf hinna frjálsu útvarps-
stöðva eftir að ríkisútvarpiö hætti út-
sendingum skyndilega.
Fyrri heimsókn rannsóknar-
lögreglu
Fréttaútvarpið varð að hætta út-
sendingum einn eftirmiðdag þar sem þá
var búist við áhlaupi lögreglu. Svo
varð þó ekki og starfsemin hófst því að
nýju fyrir kvöldfréttir. Rannsóknar-
lögregla ríkisins hafði til meöferðar
kærur á frjálsu útvarpsstöðvarnar og
varð ritstjóri DV m.a. að mæta til yfir-
heyrslu er Fréttaútvarpið hafði starf-
Málin rædd
á Alþingi
Framhald útvarpsmálanna hefur a(
miklu leyti farið fram í sölum Alþingis
eftir að hinu frjálsa útvarpi lauk. Fjöl-
margir þingmenn hafa rætt þessi mál
og sýnist sitt hverjum. Ellert B.
Schram, sem nú hefur tekið sæti sitt é
þingi að ný ju, ræddi þessi mál ítarlega
Hann ræddi þá byltingu sem oröit
hefur í upplýsingaheiminum sem líkjs
má við iðnbyltinguna og lífskjara-
byltinguna. Islendingar sitji hins
vegar uppi með úrelta löggjöf um út-
varp og sjónvarp og allar tilraunir til
að brjóta þá löggjöf á bak aftur sév
kæfðar í fílabeinsturninum á Alþingi.
Ellert B. Schram sagöi síðan orðrétl
í ræðu sinni: „I gær var frjálsum út
varpsstöðvum lokað. Lögreglunni vai
sigað. Afturhaldið i landinu náöi sint
fram. Og nú er þögnin skerandi. Þagn-
armúrinn hefur verið reistur. Rikisút
varpiö er eitt um hituna. Tvisvar á dag
fáum við allranáðarsamlegast að vita
hvort bylting hafi verið framin í land-
inu eða ekki, hvort ríkisstjómin sitj:
enn að völdum eða ekki, hvort verk
föllin séu að leysast eða ekki, hvort
fréttamönnum Ríkisútvarpsins þókn-
ist að leyfa stjómmálamönnum eða
málsvörum í kjaradeilum að tjá sig
Enginn segir að fréttamenn þessa eina
og lögvemdaöa fjölmiðils séu hlut-
drægir. En hver segir að þeir séu þaf
ekki? Hvar er aðhaldið? Hvar er lýð
ræðið?”
Lýðræðið braust fram
Þá ræddi Ellert nokkru síðar í ræðu
sinni frásögn ríkisútvarpsins af því
þegar hinum frjálsu útvarpsstöðvum
var lokað og sagði: „Hvernig var sagt
frá þeim atburði í gær þegar Fréttaút-
varpinu var lokað meö lögregluárás?
Jú, þjóðin fékk að vita að „ólöglegum’ *
útvarpsstöðvum hefði verið lokað en
áður haföi Ellert B. Schram alþingis-
maður flutt ávarp. Punktur og basta.
Það var ekki greint frá því, af
hundmö manna söfnuðust saman
utan við ritstjómarskrifstofur DV til
að láta i ljós mótmæli sin gegn þessari
aðgerð. Það var ekki sagt frá því að
allar símalinur á blaðinu uröu rauögló-
andi þar sem aftur hundruö manna
lýstu stuðningi sinum við Fréttaút-
varpið og vanþóknun sinni á athæfi
stjórnvalda. Það var ekki sagt orð um
það að hér austur í bæ hafi komið til
svívirðilegrar aðfarar gegn frjálsræð-
inu og lýðræðinu. Aldrei í mínu minni
hef ég orðið var við jafnsterkan þjóðar-
vilja til að brjóta á bak aftur einokun
ríkisútvarpsins. Fólk lét ekki í ljós hug
sinn til að standa vörð um Fréttaút-
varpið eingöngu. Það var einfaldlega
að standa vörö um mannréttindi sín,
öryggi sitt, lif sitt í siðuðu þjóðfélagi.
Þaö var lýðræðið sem braust fram þeg-
ar þessi atburöur átti sér stað.
Og hvað gerðu alþingismenn? Þeir
sátu hér í sínum fílabeinsturni, drukku
sitt kaffi og gömnuöu sér við aö kasta
f jöregginu á milli sín meðan opinberir
starfsmenn funduöu hér fyrir utan í
þágu lífskjara sinna og þjóðin mót-
mælti í nauövöm þegar frelsi fjölmiðla
var fótumtroðið.
Eg kalla löggjafarvaldið til ábyrgð-
ar á þessum atburðum og ástandi. Eg
kalla ríkisstjómina og stjómarflokk-
ana til ábyrgðar á þessu athæfi.
Það voruð þið, háttvirtir þingmenn,
sem létuð loka frelsiö niður í innsigluö-
um plastpokum rannsóknarlögregl-
unnar. Það eruö þiö sem hafið einangr-
að ykkur sjálfa frá fólkinu, kjósendum
og þjóðinni, með því að láta þetta við-
gangast,” sagði Ellert.
Fréttaútvarpið — almenn-
ingshlutafélag
Ljóst er að framþróunin verður ekki
stöðvuð. Það er ljóst að almennings-
hlutafélag verður stofnaö um Fréttaút-
varpið. Undirbúningur er í fullum
gangi þannig að þetta verður gert á
næstunni. Það mál er betur kynnt í sér-
frétt um málið. Af undirtektum manna
er það ljóst að að því útvarpi munu
ekki standa þúsundir manna heldur
tugþúsundir.
- Jónas Haraldsson.
var ekkert við því að gera. Hins vegar
þótti rétt að láta þá menn ekki hafa síð-
asta orðið. Það var því tilbúið ávarp og
tilkynning til áheyrenda um það að
yfirvöld hefðu gripiö til sinna ráða.
Og sú síðari
Og síöari heimsóknarinnar var ekki
langt að bíða. Strax daginn eftir heim-
sókn Erlu og hennar manna bankaði
Þórir Oddsson, vararannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins, upp á. Honum til
aðstoöar var bílfarmur af rannsóknar-
lögreglumönnum. Raunar er rangt að
segja aö Þórir hafi bankað upp á.
Hann nánast gekk yfir þá dyraverði
sem gættu útidyra útvarpsstöðvarinn-
ar og áttu að sjá til þess að óboðnir
gestir héldu sig utandyra. Þórir og
hans menn höföu auövitaö réttar heim-
ildir til heimsóknarinnar en lá á aö
komast í hlýjuna.
Strax og rannsóknarlögreglan var
komin inn í húsið var séö til þess að út-
varpa ávarpi Ellerts B. Schram rit-
stjóra þar sem hann greindi frá komu
lögreglunnar sem hlaut aö leiða til lok-
unar stöövarinnar. Jafnframt voru
menn hvattir til þess að sýna stuðning
sinn meö frjálsum útvarpsstöðvum.
Stuðningur almennings
Fjölda fólks dreif þegar að ritstjóm
DV og fyllti brátt ganga auk fjölda
manna sem biðu utandyra. Mannfjöld-
inn var mestur viö herbergi þaö sem
geymdi tækjabúnað og sendi stöðvar-
innar. Þar settust þeir niöur rann-
sóknarlögreglumennirnir, ritstjórar
DV, framkvæmdastjóri, fréttastjóri og
fleiri. Þegar rannsóknarlögreglu-
mennimir höfðu gengið frá tækjunum í
poka og ætluðu sér út var fólkið alls
ekki á því að hleypa þeim burt. Það
þétti hópinn þannig að enginn mátti sig
hræra. Ritstjórar DV báðu menn þá að
stilla sig. Lögreglumennirnir heföu
heimild til verka sinna. Þeir komust
því út úr húsinu en máttu þola ýmsar
glósur reiöra meðborgara sinna.
Fjöldi manna haföi nú safnast í
Síöumúlann, fótgangandi og á bílum.
Mannf jöldinn þrengdi að bíl rannsókn-
arlögreglumannanna þannig að hann
komst ekki úr stæði sínu. Þá óku bíl-
stjórar nokkurra bíla i veg fyrir bfl
lögreglumannanna. Jafnframt ýttu
nokkrir vegfarendur við bílnum þann-
ig að hann dúaöi hressilega. Starfs-
menn DV gripu þá enn í taumana og
fengu menn til þess að gæta stillingar.
Rannsóknarlögreglumennirnir komust
því á brott án þess að til átaka kæmi.
Þar meö lauk sögu Fréttaútvarps-
ins að sinni. Hitt verður þó að telja Uk-
legra að hér hafi verið skrifaður upp-
hafskafli nýrrar fjölmiðlunar á Is-
landi. Undirskriftasöfnun hófst þegar
þar sem menn kröfðust frelsis í út-
varpsrekstri. Þegar hefur mikill fjöldi
manna skrifað á slíka undirskriftar-
lista og enn bætast við undirskriftir
víða af landinu.
Þá var og sent frá einbýiishúsi i
Breiðholti. Hár koma tæknimenn
loftnetum fyrir.
að í eina viku. Rannsóknarlögreglu-
menn birtust svo á ritstjóm DV með
húsleitarheimild og var þeim vel tekið.
Þar var komin Erla Jónsdóttir deildar-
stjóri við þriðja mann. I hópnum var
tæknimaöur og skráði hann hjá sér
númer á sendi stöðvarinnar. Við svo
búið hurfu rannsóknarlögreglumenn af
vettvangi. Það má segja þeim til hróss
að svo varlega gengu þeir um að út-
sendingin truflaðist alls ekki. Hlust-
endur nutu því ljúfra tóna meðan þeir
unnu sín embættisverk.
En þessi heimsókn boðaði þó
breytta tíma. Vitað var að rannsóknar-
lögreglan vann að rannsókn þessara
mála með miklum flýti. Það mátti því
vænta nýrrar heimsóknar og ekki var
víst að útsendingin gengi þá alveg
ótrufluð. Starfsmenn bjuggu sig því
undir þá heimsókn en héldu starfinu
áfram eins og ekkert hefði í skorist. Ef
lögregla hygðist stöðva útsendingar
Starfsmenn ritstjórnar DV hlusta hár á fróttir Rikisútvarpsins skömmu eftír
að Fréttaútvarpinu var iokað og hundruð manna þyrptust að ritstjórnar-
skrifstofum DV. Þær fréttir voru heidur snubbóttar.
Almenningshlutafé-
lag um Fréttaútvarpið
— þegar komnar yf ir tíu þúsund undirskrif tir
Fréttaútvarpið heyrir ekki sögunni
til þótt útsendingum hafi verið hætt i
bili. Á næstunni verður stofnað
almenningshlutafélag um Fréttaút-
varp DV-manna. Reynslan af starf-
semi Fréttaútvarpsins er mjög góð
og hljómgrunnur fyrir útvarps-
stöðina um allt land.
Undirskriftalistar voru settir í
umferð strax eftir að rannsóknarlög-
reglan lokaði útvarpsstöðinni. Nú
þegar hafa yfir tíu þúsund manns
skrifaö sig á lista þar sem þeir lýsa
yfir stuðningi við Fréttaútvarpið —
íslenskt þj óöarútvarp.
öllum gefst kostur á að gerast
hluthafar í Fréttaútvarpinu. Innan
skamms munu þeir sem þegar hafa
skrifað sig á undirskriftalistana fá
heimsent bréf þess efnis. Þá munu
áskrifendur DV, þ.e. þeir sem ekki
hafa þegar skrifað sig á listana, fá
heimsend slík bréf.
Undirskriftalistamir liggja
frammi á skrifstofum DV, Síðumúla
12—14, Síðumúla 33 og Þverholti 11.
Þá eru listamir einnig á blaðsölu-
stöðum og helstu verslunum um land
allt. Þá er tekið á móti stuöningsyfir-
lýsingum í símum 68-66-11 og 2-76-22 í
Reykjavík.
Vilji menn láta sækja til sín lista,
sem útfylltir hafa veriö éða fá nýja,
þá ber aö hafa samband við síma 2-
70-22. Listar verða þá sóttir og
sendir. -JH.