Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
239.TBL, —74. og 10. árg. — MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1984.
r
„Við höfum viku, mest tvær vikur,” segir Ólafur G. Einarsson um f ramtíð st jórnarinnar:
ÞORSTEINN RÆR
NÚ LÍFRÓÐUR
Meiriháttar umbrot eru á döflnnl
innan þingflokks sjálfstæöismanna
varðandi framtíð stjórnarsamstarfs-
ins við framsóknarmenn. Meiningar
eru mjög deildar. Teflt verður um
uppstokkun í ráðherraliði flokksins,
hugsanlega vikkun stjórnarsam-
starfsins, óbreytta stööu og kosning-
ar. Ljóst er að Þorsteinn Pálsson,
formaður flokksins, rær nú lífróður í
þingflokknum.
„Það er ýmislegt i deiglunni, ég
dreg enga dul á það. Ég tel að þing-
flokkurinn verði að gera ýmis stór
mál upp við sig í þessari viku. 1
mesta lagi höfum við tvær vikur til
þess að ákveða okkur um framhald-
iö. Og við skulum ekki gleyma þvi að
framsóknarmenn eru með ýmsar
uppákomur þessa dagana,” segir
Oiafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks s jálfstæðismanna.
Samkvæmt traustum heimildum
DV telja forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins nú afar mikilvægt, ef ekki
alveg nauðsynlegt, að þeir komi inn í
rikisstjórnina, annaöhvort í áfram-
haldandi samstarfi við Framsóknar-
flokkinn eða í viðtækara rikis-
stjórnarsamstarfi. Núverandi ráö-
herrar Sjálfstæðisflokksins eru hins
vegar ekki á náttbuxunum, en þó
misjafnrar skoðunar um hvort for-
ysta flokksins verði að taka sæti i rik-
isstjórn. Aö svo komnu er enginn nú-
verandi ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins reiöubúinn til þess að vikja sæti.
Þaö er þingflokkur sjálfstæöis-
manna sem ræður því einhliða hvort
skipt veröur um ráðherra flokksins i
núverandl ríkisstjóm. Miðstjóm og
flokksráð koma þvi aöeins til skjal-
anna aö til greina komi annað eöa
viötækara stjórnarsamstarf. En
heimildir DV lúta aö þvi að til þess
geti einnig komið „á næstu dögum”
ef ekki hreinlega til þingkosninga
upp úr áramótum. Þær eru þó ólfk-
legastikosturinn.
HERB
Virðuleg bálför Indiru
Þórír Guðmundsson, blaðamaður DV, lýsir bálförinni ogþeirri morðöldu sem
Misrétti gagnvart heimavinnandi húsmæðrum:
Fá IvMfwi trv0irin0ah»ti ir
r %M focgf f if jrggfffgcmicc tifi
Rúmlega tuttugu og fimm þúsund
króna mismunur getur veriö á álögð-
um gjöldum tveggja fjölskyldna meö
sömu árstekjur sem fer eftir þvi
hvort fyrirvlnna heimilisins er ein
eöa tvær. Lœgri élögur eru ef tvær
fyrirvinnur vinna fyrir sömu upp-
hæö.
Þetta kom meðal annars fram á
fundi Bandalags kvenna í Reykjavík
sem haldinn var á laugardag á Hótel
Sögu. Hagsmunamál heimavinnandl
húsmæðra voru til umræðu á fundin-
um, framsöguerindi voru um skatta-
mál eigna- og erfðarétt í óvigöri sam-
búð auk ofangreindra mála.
Ef árstekjur fjölskyldunnar eru
396 þúsund krónur og fyrirvinnumar
eru tvær eru álögö gjöld 84.204 krón-
ur. Ef ein fyrirvinna helmilis vinnur
fyrir sömu upphæð hækka álögð
gjöld um 25.728 krónur eða í 109.932
krónur.
Fæðingarorlof frá Trygginga-
stofnun riklslns ér 15.866 krónur á
mánuði, í þrjá mánuöi, til kvenna
sem eru í fullu starfi utan heimilis.
Til útivinnandi kvenna í hálfu starfi
er þessi mánaðargreiösla 10.577
krónur en til heimavinnandi kvenna
er fæðingarorlof aðelns 5.289 krónur
ámánuðL
Sjúkradagpeningar frá sömu
stofnun eru 37,86 krónur á dag til
heimavinnandi og með hverju bami
sem sjúklingur hefur á framfæri
greiðist lfka 10,72 krónur á dag. Til
útivinnandi í fullu starfi eru sjúkra-
dagpeningar 151.44 krónur á dag og
41.40 króna meö hverju bami. Dag-
peningar til veikra kvenna i hálfu
starfi utan heimilis eru 75,72 krónur
ádag.
Bifför Indiru Gandhi. Rajiv, sonur Indlru, stondur tll vinstri með logandi spýtu í handi. ViO likbðrumar standa ainnig sonur Rajivs, aiginkona og
dóttir. D V-mynd: Þórir GuOmundsson — simsend fri Nýju Doihi.
Umsögnum
Carmen
— sjá bls. 14
Dagbók Önnu
Frank:
Máttugsýning
- sjá bls. 14
BiturtáríAI-
þýðuleikhúsinu
— sjá leikdóm
bls.32
Rættum
þjóðmálinog
prjónaðá
landsfundi
- sjá bls. 2
Heimsmeistara-
einvígið:
Enneitt
jafnteflið
- sjá bls. 4