Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Blaðsíða 1
Kjarasamningarnir og hækkun tryggingabóta: Hækka nkisútgjöld um 1.500 milljónir Þær launahækkanir sem samið var um og hækkun daggjalda og tryggingabóta í samræmi við þær munu hækka útgjöld fjárlaga ríkisins um nálægt því 1.500 milljónir króna, samkvæmt heimildum DV. Sé reiknaö með venjulegum áhrifum í veltu og verðlagi er búist við 1.000 milljóna auknum tekjum á móti. Þessar tekjur koma fyrst og fremst inn í óbeinum sköttum eins og toUum og söluskatti vegna aukinnar neyslu með auknum kaupmætti hjá almenningi. En eftir verður gat upp á 500 miUjónir sem ekki verður brúaö nema með erlendum lánum eða niðurskurði á framkvæmdum. Beinist athygU þá einkum að frestun á varanlegri vegagerð. En það er nánast eini framkvæmdaliður ríkisins sem ekki hefur verið krukkaðínúþegar. Þá eru uppi umræður um að milda verðbólguáhrif kjarasamninganna með toUa- eða skattalækkunum, sem myndu að sjálfsögðu stækka gatið í fjárlögunum. Þegar fjárlaga- frumvarpið var lagt fram nam út- gjaldaáætlun þess 22,5 mUljörðum króna og þá var reiknað með að tekjur yrðu 22 miUjarðar. 500 mUljóna halla þar var ráðgert aö brúa með lánum. Einsogfyrr segirbætastnúaðrar 500 miUjónir við sem halU og jafnvel hærri upphæð ef veltutekjur ríkisins verða skertar. -HERB. Upphituniná göngugötunni á Akureyri deilumál: Skrúfað fyrír heita vatniö Upphitun göngugötunnar á Akur- eyri er orðiö deiluefni bæjaryfir- valda og hitaveitustjóra. Bæjarráð viU láta nota hitalögnina í götunni eins og til er ætlast en hitaveitustjór- innekki. I frostakaflanum á dögunum skriplaöi fólk á svelU á þessari fín- ustu götu í landinu. Ekki batnaði ástandið í gær þegar hláka kom meö tUheyrandi vatnseig og slabbi. I síðustu viku var hita hleypt á götuna í einn dag. WUhelm V. Stein- dórsson hitaveitustjóri lét snarlega skrúfa fyrir. Á bæjarráðsfundi í gær kom fram að tU að gera það hefði þurft heimUd hitaveitustjómar. Hitaveitustjóri mun telja að vatn- ið sem notað er til upphitunar göt- unnar þurfi á varmadælumar sem teknar vom í notkun í sumar. Vatnið kólni of mikið ef það fari fyrst í göt- una. Ef þetta vatn fáist ekki þurfi fimm sekúndulítra úr borholunum viö Laugaland tii viðbótar. Þar er vatn mjög af skornum skammti. Stjórn hitaveitunnar kemur saman í dag eða strax eftir helgina tU aö ráða fram úr þessu máli. JBH/Akureyri Þannig var umhorfs á göngugötunni i gær eftir aö hitaveitustjóri haföi skrúfaö fyrir heita vatnið sem ó að halda götunni snjó- og ísiausri. D V-mynd JBH Akureyri. Þjófaflokkur unglinga tek- inn á ísafirði Lögreglan á Isafirði hefur upprætt þjófaflokk sem hefur verið allat- kvæðamikiU þar að undanfömu. Aðal- menn í flokknum voru þrír piltar á aldrinum 15 til 18 ára. Höfðu þeir brot- ist inn á mörgum stöðum á Isafirði og nágrenni að undanförnu. Litlu höfðu þeir náö að stela en aftur á móti valdið skemmdum f yrir tugi þúsunda króna. I fyrrinótt brutust þeir inn í Blikk- smiðju Erlendar. Þar var lítið að hafa en þó fundu þeir þar lykla að bíl sem var fyrir utan húsið og tóku þeir hann traustataki. Bmgðu þeir sér á honum til Þingeyrar og bmtust þar inn í Kaup- félagið þar sem þeir náðu sér í sitt h'tið af hverju — smámynt, kjúklinga, tölvuúr og vinnuvettiinga. Þeir komust síöan óséðir heim aftur til Isafjarðar en lögreglan þar komst á slóð þeirra daginn eftir og handtók þá. Viðurkenndu þeir öll innbrot á Isafirði síðustu vikumar og lækkaði skýrslu- bunkinn hjá lögreglunni þar all- veruiegaviðþað. -klp- Kröflureikning- urinn árslaun tsuþúsund verkamanna — sjá bls. 2 • Litlarverð- breytingará heimilistækjum — s já bls. 9 • Múrararekkií verkalýðshöUina\ — sjá bls. 3 Atli fyrirliði gegn Wales Víkingaráframí Evrópukeppnina j — sjá íþróttir í opnu Fanginn svarar ísímann — sjá bls. 2 Vinsæ/da- listamir — sjá bls. 32

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.