Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 1
Frjálst, óháð dagblað
BRENNDIST
DAGBLAÐIÐ — VISIR
248. TBL.—74. og 10. ÁRG.—FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984.
Apamaðurínn kom drekunum
ábragðið
— allt um landsleikinn á bls. 20-21
Heimsókn íHeiömörk
— sjá bls.6
Spennandi formannskjör
— sjá bls. 13
Fæðibama
-sjábls.7
Vaxandi andstaða gegn
reykingum
— sjábls. 10
Tölvurogtónlist
-sjábls. 34-35
Lagðar verða hömlur á hækkun verð-
lags sem heyrir undir Verðlagsráð
ogeinnigopinberaþjónustu. öEF
— sjá efnisatriði úr stefnu-
ræðu forsætisráðherra á bls. 4.
Stefna
stjómvalda:
gengis■
ánæsta
„Það eina sem liggur ljóst fyrir
varðandi viöbrögð ríkisstjórnarinn-
ar við nýgerðum kjarasamningum
er að gengið verður fellt,” sagöi einn
stjórnarþingmanna í samtali við DV
ígær.
Ríkisstjómin leitar nú leiða til að
koma í veg fyrir að væntanleg
gengisfelling eða hratt gengissig um
12 til 14% hirði að fullu kaupmátt
samninganna. I þvi sambandi er gert
ráð fyrir lækkun vaxta og endur-
skipulagningu á fjármögnun hús-
næöislánakerfisins. Ríkisstjómin
ætlar að tryggja að byggingar-
sjóðirnir hafi til útlána það fé sem
lánsfjárlög gera ráð fyrir. Gert er
ráð fyrir að 40% af ráðstöfunarfé líf-
eyrissjóðanna gangi svo til óskipt til
byggingarsjóðanna og hefur verið
rætt um að setja sérstök lög um ráð-
stöfun fjármagns lífeyrissjóðanna.
Einnig er rætt um að sameina undir
hatt Húsnæðisstofnunar það láns-
fjármagn sem lífeyrissjóðir og bank-
amir ver ja til húsnæðismála.
Ætlunin er að lækka tolla og vöru-
gjald af nauðsynjavörum og vinnur
nefnd manna að því að kanna á
hvaða tollflokka lækkunin skuli
koma. Ný tollskrá verður væntan-
lega lögð fram á þingi innan
skamms. Þáhefurfjármálaráðherra
ákveðið að hækka ekki neysluskatta
til að vega upp á móti lækkun tekju-
skatts um 600 milljónir. Tekjuskatts-
lækkunin gæti þá jafngilt um 4%
kauphækkun.
Þetta er talið geta vegið talsvert
upp á móti áhrifum gengisfellingar á
kaupmáttinn. Einnig verður elli- og
örorkulífeyrisþegum svo og einstæð-
um foreldrum bætt kaupmáttar-
skerðingin með hækkun lífeyrisbóta.
„Eg spái því aö gengisfellingin
nú verði um 12—14 prósent,”
sagði forystumaður í stjómarliö-
inu í viðtali viö DV seint í gær-
kvöldi. Slík gengisfelling gæti
orðið allra næstu daga. Ríkis-
stjómarfundur f jallar um málið í
dag og síðan verða þingflokks-
fundir síðdegis. Niöurstöður gætu
því legið fyrir í kvöld.
„Gengið hefur þegar sigið um
3—4% siöustu vikur. Eftir gengis-
fellingu næstu daga munu menn
sennilega reyna að sitja á sér og
freista þess að halda gengis-
lækkun á næsta ári á bilinu 5—
8%,” sagði þessi forystumaður.
Gjaldeyrisdeildir bankanna
kunna að fara að loka og hafa
sumir spáð að það yröi strax á
morgun þótt óvíst sé.
k -HH
Vinnuslys varð í gær í Reykjavík.
Rafvirki.sem var að vinna við raf-
magnstöflu, brenndist í andliti og á
höndum þegar skammhlaup varð í töfl-
unni. Maöurinn er illa brenndur en líð-
an hans var sögö eftir atvikum í morg-
un.
-klp
Þegar stjórnarandstaðan lýsti
yfir vantrausti sínu á ríkisstjórnina
vom margir sem létu í sér heyra.
Einn þeirra var Guðmundur J.
Guðmundsson. Hann sagði m.a. aö
verðhækkanir hefðu orðið meiri en
marga grunaði. Því til sönnunar
varpaöi hann þeirri spumingu fram
um það hvers vegna verð á tvinna-
kefli væri 50 krónur. Þessi upphæð í
dag er eða var 5000 krónur fyrir
myntbreytingu.
DV hafði samband viö einn aðila
sem bæði flytur inn tvinnakefli og
selur í smásölu og spurðist fyrir um
verðið. Þá kom í ljós að bómullar-
tvinnakefli með 500 metrum á kostar
ekki 50 krónur heldur 59
krónur.Frjáls álagning er á þessari
vöru og þykir þessi álagning ekki há
fyrir svona smávöru vegna mikils
kostnaðar við að selja hana.
APH.
BÚIST m 12 TIL14%
GENGISFELUNGU
—lækkun skatta, tolla og vörugjalds