Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Qupperneq 11
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. 11 —segir Málmf ríftur Sigurðardóttir þingmaður „ Jú, vitanlega eru þetta viðbrigði að skipta svona alveg um starfsvett- vang,” segir Málmfríður Sigurðardótt- ir sem í síöustu viku settist í fyrsta sinn í stól þingmanns á Alþingi. Situr hún fyrir Samtök um kvennalista sem varamaður Guðrúnar Agnarsdóttir. I tilefni af þingsetu í fyrsta sinn er hún tekintali. Málmfríður er frá Jaðri í Reykja- dal; var þar bóndakona í nærri þrjátíu ár. Síðastliðin sextán sumur hefur hún unnið sem ráðskona hjá Vegagerð ríkisins. Undanfama vetur hefur hún svo unnið sem aðstoðarráðskona í Kristnesi við Eyjafjörö. Og þaö eru viðbrigði aðskipta um starf, segirhún. „Það er líklega of fijótt að kveða upp úr um hvernig mér líkar en þessi vinnustaður hér er ákaflega áhuga- verður. Vinnuálagið hefur verið mikiö því ég hef þurft að setja mig inn í mál í hvelli.” Aðstöðumunur til menntunar „Þau mál, sem mér eru einkar hug- leikin, eru menntunarmál og sér- staklega aöstööumunur til menntunar í dreifbýli og þéttbýli en sá munur er mikill. Það hefur veriö tilhneiging hjá ríkinu að koma skólakostnaöi yfir á sveitarfélögin. Eg veit að rekstrar- kostnaður eins skóla í litlu sveitar- félagi hefur farið í 90% af tekjum sveit- arfélagsins. Þetta er litlum sveitar- félögum þungur róður sem erfitt er að standa undir nema þau fái einhverja nýja tekjustofna á móti. Aðstöðumunur nemenda til menntunar í dreifbýlinu er mikill og kostnaöarsamt aö afla sér hennar. Þetta er það mál sem efst var í hugum flestra þeirra kvenna er mættu á fund- um með konum á ferð með Kvennarút- unniísumar.” Málmfríður er spurð hver hafi veriö kveikjan að áhuga hennar á kvenna- baráttu. Uppeldið „Ætli þaö sé ekki uppeldið,” svarar hún. „Móöir mín var mikil kvenrétt- indakona.” „Eg haföi aldrei haft nein afskipti af pólitík áður eða fyrr en konur komu með sérframboð. Eg var á lista hjá Alþýðubandalaginu einu sinni en var ekki flokksbundin þar.” Og Málm- fríður heldur áfram: „Mér sýndist á þeim tíma að það hefði þau mál á lista sem ég vildi styðja. Eg studdi stóriðju- andstöðu þess og ýmislegt sem brann á dreifbýlinu en mér sýnist nú aftur seinna að ekki hafi verið fylgt eftir. Mér sýnist það ekkert vera fúsara til að hleypa konum til áhrifa en aörir flokkar. Eg hef greinilega fundið á konum í þeim fiokki að þær eru ekki ánægöar.” Halinn Nýlega heyrðust þau ummæli að þingmenn Kvennalistans væru eins og hali aftan úr Alþýðubandalaginu. Málmfríður er spurð um þau ummæli. „Sjálfstæðisflokkurinn segir það. Eg veit ekki, kannski er þetta ótti við þaö að þeim finnist að okkur sé aö vaxa fiskur um hrygg,” svarar hún. „Það sagði við mig einn alþýðubandalags- maður i kosningabaráttunni að þeir vildu ekki vera vondir við okkur og bætti við aö við yröum eins og fallegur grænn blettur í hlaðvarpanum hjá þeim eftir kosningar. Við höfum sýnt það að við ætlum ekki aö vera grænn blettur í hlaðvarpanum hjá neinum.” Spurningaþættir í útvarpi Málmfríður Sigurðardóttir varð landsfræg í spumingaþáttum í útvarpi veturinn ’82-’83. Þá tók hún þátt í níu þáttum og vakti verðskuldaöa athygli fyrir hversu f jölfróð hún er. „Eg hef lesiö mikið, haft þó minni tíma í seinni tíð,” segir Málmfríður um fróðleiksfýsn sína. „Eg les mér til hvíldar og afþreyingar. Efnið er ekki bundiö við neitt sérstakt öðru fremur, þó hef ég alltaf haft afskaplega gaman af öllu sögulegu efni.” Málmfríður Sigurðardóttir er ekkja og á sjö uppkomin börn. Jómfrúræðu sína á Alþingi tslendinga flutti hún síðastliðið fimmtudagskvöld í útvarps- umræðum. Hún er spurð hvemig henni Heilsurækt á Selfossi Nýlega var opnuð heilsuræktarstöö að Austurvegi 2, Selfossi, hinu gamla kaupfélagshúsi KÁ. Þessi heilsurækt- arstöö fékk nafnið Heilsusport. Er húsnæðið 350 fermetrar. Hafsteinn Þorvaldsson, kona hans, tengdaböm Haustrall: Leiðrétting Þau mistök urðu i frétt DV á mánudaginn af haustralli Hjólbarða- hallarinnar aö nafn sigurvegarans misritaðist. Hann heitir Bjarmi Sigur- garðarsson og er hér með beðist vel- virðingar á þessum mistökum. hafi liðið þau augnablik í ræðustól Al- þingis. „Mér leiö ágætlega,” svarar hún. „Það virðist vera orðin „tradisjón” hjá þingmönnum Kvennalistans að flytja jómfrúræður sínar í útvarpsum- ræðum.” MáJmfríður Sigurðardóttir, þingmaður Samtaka um kvennalista. og barnabörn komu stöðinni af stað. Binda Selfossbúar miklar vonir við þessa stöð. Eg skrapp nýlega með Hafsteini og frú að skoöa þessi fiottu húsakynni sem iðuöu af mannlifi. Áöurgreind hjón sögðu mér að eftir að þau fengu húsnæðið leigt hefði verið flutt inn í það eftir tvo mánuði. Húsnæðið er bjart og hlýlegt og mikil aðsókn. Svo fá allir framsóknarkaffi úr bláu pökkunum eins og þeir geta í sig látiö. Þama eru mörg fullkomin tæki en einna hrifnust varð ég af róðrarvél einni sem var eins og árabátur. Já, þaö er mikið hægt aö gera ef viljinn er með. Regína Thorarensen, Selfossi. MIÐ BJODUNl METRINU BYRGINN1 StfílDCESTOnE Sagt er að allir tali um veðrið, en enginn geri neitt í því.Við hjá BRIDGESTONE get- um að vísu ekki gert neitt við veðrinu, en við bjóðum stóraukið öryggi í vetrarakstri með hinum heimsþekktu ÍSGRIP vetrar- hjólbörðum. ÍSGRIP hjólbarðarnir eru úr sérstakri gúmmíblöndu, sem harðnar ekki í kuldum, þeir haldast mjúkir og gefa því einstaklega góða spyrnu í snjó og hálku. Tryggðu öryggi þitt og þinna í vet- ur, keyptu BRIDGESTONE ÍSGRIP undir bílinn — þeir fást hjá hjólbarðasölum um land allt. Sérlega hagstætt verð. ISGRIP BILABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 „EKKIFALLEGUR GRÆNN BLETTUR í HLAÐVARPAN- UM HIÁ NEINUM”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.