Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 30
30
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
Myndbönd
Myndbönd
Rannsóknin á myndbandaleigunum tveimur:
Teknir fyrir 2 spólur
en300
ólöglegar fundust
Rannsókn sú sem Rannsóknarlög-
regla ríkisins vinnur nú aö á ólöglegu
efni hjá tveimur myndbandaleigum og
greint var frá hér á „myndbandasíð-
unni” í síöustu viku hefur leitt í ljós aö
viðkomandi aöilar voru meö um 300
ólöglegar spólur í fórum sínum. Upp-
haflega voru þeir hinsvegar kærðir
fyrir aðeins 2 spólur.
Amar Guömundsson, deildarstjóri
hjá RLR, sem stjómar rannsókninni,
sagöi í samtali viö DV í síðustu viku aö
„máliö heföi vaxið í meöförum
embættisins” en samkvæmt heimild-
um DV var sá vöxtur upp í 300 spólur.
Ríkissaksóknari fékk málið til meö-
feröar í sumar en sendi þaö aftur til
RLR til frekari rannsóknar. Búist er
viö aö hann fái það svo aftur endursent
á næstunni.
-FRI
Falcon
Crestá
myndbönd
hérlendis
Nýstofnað fyrirtæki, Ismann sf.,
mun hefja dreifingu á bandarísku
sjónvarpsþáttunum Falcon Crest á
myndböndum hérlendis í lok mánaöar-
ins og verða tveir þættir á hverju
myndbandi en alls hefur verið samiö
um dreifingu á 98 þáttum.
Þættirnir gerast á vínræktarbúinu
Falcon Crest og fjalia um auöuga fjöl-
skyldu sem þar býr. Fjölskyidan
kemur öll saman eftir aö einn meölim-
ur hennar hefur látist á dularfullan
hátt. Meöal leikara í þáttunum er Jane
Wyman sem m.a. er þekkt fyrir aö
hafa veriö gift Ronnie Reagan en leik-
ferill hennar var meira og minna í
molum þar til þessi fyrrverandi eigin-
maöur náöi í forsetastólinn í Banda-
ríkjunum.
Ismann sf. er aö mestu í eigu þeirra
Rolf Johansen og Jóns Ragnarssonar
(Regnboginn).
Fjölskyldan í Falcon Crest. Neðst fyrir miðju situr Jane Wyman sem
fer með eitt aðalhlutverkið, Angelu Channing, í þáttunum.
T f \
J' v í M
1 tM
fltHCOCK'S
1. THE EMPIRE STRIKES BACK
2. THE NINJA MASTER (1—3)
3. FLIGHT 90
4. BLOODLINE
5. SILKWOOD
6. MASTER OFTHEGAME
7. AIRWOLF
8. BLUE THUNDER
9. DYNASTY
10. UNDERFIRE
Vinsældalisti DV er unninn í samvinnu við 10 stærstu mynd-
bandaleigumar innan SlM auk Video-sport (3 leigur) og Mynd-
bandaleigu kvikmyndahúsanna( 6 leigur).
JOE
Aðalhlutverk»Peter Boylo, Dennis Patrick.
Peter Boyle fer á kostum sem Joe,
ekta miöstéttarbandaríkjamaöur með
lífsviöhorf í stíl við eplaköku mömmu
og bandarísku leiðina. Af þessum or-
sökum er honum meinilla við svert-
ingja, hippa, og yfirleitt alla sem ekki
eru sama sinnis og hann.
Joe eignast kunningja á bar einum
en sá hefur nýlega skotiö vin dóttur
sinnar en bæði voru þau háö fíkniefn-
um. Þeir taka tal saman og komast aö
því aö báðum þykir „eplakakan” góö.
Þeir ákveöa annan fund saman og af
þeim fundi er svo stefnan sett á
„hippaskyttirí” í samkvæmi nokkru í
húsi í grenndinni.
Það sem vinur Joe veit ekki er að
dóttir hans hefur frétt af morði vinar
síns, trylist af bræði, og er hún stödd í
húsi því sem þeir Joe ætla aö hreinsa
út með haglabyssum.
Myndin Joe er ágæt lýsing á því er
tveimur ólíkum lífsviöhorfum lýstur
saman á þann hátt aö ekki veröur gert
út um málin ööruvísi en meö ofbeldi.
-FRI
GOIN’ SOUTH
Loikstjóri: Jack Nicholson. Aðalhlutverk-.Jack
Nícholaon, Mary Stoonburgen.
Jack Nícholson leikur hér þriðja
flokks útlaga, Moon, sem hengja á.
Honum er bjargað úr snörunni af ein-
mana ungfrú með þeim skilmáium
aöhann giftist henni.
Moon hugsar gott til glóöarinnar
en er til kemur reynist hjónabandiö
honum enn meira púl en glæpimir
voru því ungfrúin á gullnámu sem
hún lætur hann strita í dag og nótt.
Þetta mun vera fyrsta myndin sem
Nicholson leikstýrir og ekki er annað
hægt aö segja en honum takist vel til.
Myndin er full af fyndnum og léttum
atriöum og sjálfur er Nicholson létt-
geggjaður í hlutverki Moon á sinn
yfin'egaöa hátt. Steenburgen í hlut-
verki ungfrúarinnar á einnig góöan
dag í því hlutverki og fyrir þá sem
vilja trausta gamanmynd er rétt að
kýla á eintak af Goin’ south.
-FRI
Ránfuglarnir (Birds Of Pray)
Leikstjóri: William A. Graham.
Aðalhlutverk: David Janson og Ralph Meeker.
Þaö er fátt gott hægt aö segja um
Ránfuglana. Hún er dæmigerð B-mynd
þar sem aöaláherslan er lögö á fimleg-
ar sveiflur þyrlna. Fer megniö af
myndinni fram í loftinu og það bjargar
því sem bjargaö verður. David Jansen
leikur gamlan stríösflugmann sem
hefur þá atvinnu að fljúga þyrlu fyrir
útvarpsstöð eina og útvarpa beint
ástandi á hraðbrautum ásamt rövli um
veörið og eitt og annaö. Dag einn
verður hann vitni aö bankaráni. Hann
eltir bankaræningjana, sem fyrst eru á
bíl en fara svo um borö í þyrlu, og heEst
nú mikill eltingarleikur í háloftumun
Sýna þyrluflugmennirnir oft á tíöum
mikla fimi í stjóm þessara véla.
Ræningjamir eru með einn gísl, unga
stúlku, sem um síðir tekst aö losna frá
þeim meö peningana. Bjargar David
Jansen henni um borö í sína vél og
snúast nú hlutimir við, nú eru þaö
ræningjamir sem elta. Endar myndin
á gömlum flugvelli þar sem flugskýlin
eru jafnt notuð sem háloftin. Eins og
áður sagöi er þaö eina athyglisverða
viö Ránfuglana þyrlurnar og meöferö
þeirra. Söguþráöur og leikur eru á lágu
plani. hk.
DUEL
LoikstjórltStovon Spiolborg.
Aðalhlutverk: Dennis Weover, Lucillo
Benson.
Þetta er fyrsta myndin sem Steven
Spielberg leikstýröi en upphaflega
var hún gerð fyrir sjónvarp.
Dennis Weaver komst á blað kvik-
myndasögunnar meö leik sínum í
henni en hann leikur mann á
viðskiptaferðalagi sem lendir í úti-
stööum viö geggjaðan ökumann
stórs dísil-trukks sem reynir allt
hvaö hann getur til að kála Weaver.
Þessi mynd er ágætt dæmi um
hvernig gera má góðan þriller úr ein-
földu efni meö notkun klippingar og
ákveðinnar niðurrööunar mynd-
skota. Meö þessari mynd sýndi Spiel-
berg strax hvaö í honum bjó en hann
hefur síðan gert myndir á borö viö
Jaws, Close Encounters og E.T.
-FRI
The Osterman Weekend
Leikstjóri: Sam Pockinpah.
Aðalhlutvork: Rutger Hauer, John Hurt og Burt
Lancaster.
The Osterman Weekend er gerð eftir
skáldsögu Robert Ludlum. Eins og í
öörum skáldsögum hans er „plottiö”
mjög flókiö og því miður hefur hinn
gamli harðjaxl úr kvikmyndaheimin-
um, Sam Peckinpah, ekki getaö komiö
því nægilega vel til skila, sem er
skiljanlegt, því The Osterman Week-
end veröur að teljast með verri bókum
Ludlums. Fjallar hún um frægan
sjónvarpsmann sem deilir hart á ríkis-
stjóm sína og hernaðaryfirvöld. Þetta
breytist þegar CIA boöar hann á fund
sinn og sýnir honum fram á aö þrír
bestu vinir hans eru allir sovéskir
njósnarar. Er hann beöinn um aö
aðstoða CIA við að hjálpa þeim að
koma upp um svokallaða Omega
áætliui. Eins og i öllum bókum Robert
Ludlum er söguþráðurinn hinn flókn-
asti þannig aö margt fer öðruvísi en
ætlaö var og er áhorfandinn í hinum
mestu vandræðum meö að koma öllu
heim og saman. I heild má samt sem
áöur hafa nokkurt gaman af The Oster-
man Weekend, sérstaklega er hún
fyrir þá sem unna flóknum sakamála-
myndum. HK.