Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 32
32 DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. í gærkvöldi í gærkvöldi Minnstu ekki á það ógrátandi Eg verð að segja alveg eins og er, ég steinsvaf yfir sjónvarpinu í gær- kvöldi. Dagskrá sjónvarpsins, svo ekki sé minnst á útvarpið, er yfirleitt svo drepleiðinleg að það er varla hægt að ætlast til þess af fólki að það haldi út heilt kvöld fyrir framan skjáinn. Um tíuleytið tókst mér þó aö þvinga upp ööru augnalokinu og var það gert af stakri skyldurækni. Þá blöstu viö Rachel Ward og de Bricassart í faðmlögum. Eg hélt hann væri prestur! Væmin og leiðin- leg ástarvella. Ég hef heyrt á það minnst að bókin sé ágætis afþreying en sjónvarpsframleiðendur í Holly- wood eru ekki af baki dottnir frekar en fyrri daginn og tekst að gera úr Þyrnifuglum dúkkulísuþátt líkt og Dallas. Næst vaknaði ég við að einhver karl með rauöan vefjarhött lét móð- an mása á bjagaöri ensku. Hérna var reyndar á feröinni ágætis fræðslu- þáttur um hinn herskáa Bose, vand- ræðasegg og kommúnista, sem sætti sig ekki við aðferðir Mahatma Gand- his í sjálfstæðisbaráttu Indverja. Að Gandhi sæti og spinni á spunavélina allan sólarhringinn taldi Bose að hjálpaöi Indverjum lítið og vildi meiri blóðsúthellingar. Næst hrökk ég upp með andfælum við hljóöið í stillimyndinni en þá slökkti ég á s jónvarpinu. Elín Hirst IngimarEydalkennari: Alæta á allt útvarpsefni Mér gefst aðeins kostur á að horfa á sjónvarp í miðri viku því ég er yfir- leitt alltaf að spila um helgar. Og þegar ég gef mér tíma til að horfa í miðri viku þá verð ég að segja að mér finnst dagskráin oft á tíðum heldur þunn. Það mætti t.d. að ósekju hafa færri dýralífsmyndir. Varðandi útvarp má eiginlega segja að ég sé alæta á allt útvarpsefni. Ég vona líka að Rúvak okkar hér sé á réttri leið með innleggi sínu í dag- skrá rásar 1. Útvarpið verður að leggja áherslu á aö laða fólk að tækjunum með því að reyna að sníða dagskrána að þörfum fólks á hinum ýmsu tímum dagsins meöan sjón- varpið aftur á móti hefur sinn fasta tíma þar sem nánast er um skyldu- neyslu áhorfandans að ræöa. Varðandi hin nýju útvarpslög er það mín skoðun að í þeim efnum eigum við Islendingar að flýta okkur hægt. Vissulega er hvorki útvarp né sjónvarp hafið yfir alla gagnrýni en þessir miðlar veita fólki hvar á landinu sem það býr sömu þjónustu ef undanskilin er rás 2. Þetta eru hlutlausir miölar meö mikiö afþreyingarhlutverk. Mér finnst slæmt til þess að hugsa ef einhverjir aðilar færu aö nota þessa fjölmiðla í skjóli fjárhagslegra yfirburöa. Kristjana P. Helgadóttir læknir lést 8. nóvember sl. Hún var fædd 5. ágúst 1921, dóttir hjónanna Helga Ölafssonar og Þóru Guðrúnar Kristjánsdóttur. Kristjana lauk kandidatsprófi frá Há- skóla Islands 1948. Varð hún fyrst aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum og síðan á Landspítalanum. Áriö 1949 lagöi hún leiö sína til Kanada og fór til Winnipeg. Þar lagði hún stund á sér- nám í barnalækningum. Sumariö 1952 kom hún heim og var starfandi læknir í Reykjavík upp frá því. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Finnbogi Guð- mundsson. Þau eignuðust eina dóttur. Útför Kristjönu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15. Þorsteinn Olafsson tannlæknir lést 6. nóvember sl. Hann fæddist í Reykjavík 21. desember 1920, sonur hjónanna Kristínar Guðmundsdóttur og Olafs Þorsteinssonar. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1940 og kandidatsprófi í tannlækningum árið 1947. Sama ár kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Olöfu Vilmundardóttur. Þau hjónin eignuðust tvö börn. Útför Þorsteins verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Vigdís Hermannsdóttir kennari lést 8. nóvember sl. Hún fæddist að Glitstöð- um í Norðurárdal 12. júlí 1920, dóttir hjónanna Hermanns Þórðarsonar og Ragnheiöar Gísladóttur. Vigdís lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Is- lands vorið 1942 og söngkennaraprófi árið 1951. Síðustu starfsárin starfaði hún í Hlíðaskóla. Útför hennar var gerð frá Fossvogskirkju í morgun kl. 10.30. Rósa Guðmundsdóttir, Þinghólsbraut 34 Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 15. nóvember, kl. 15. Halldór Helgi Jóhannesson frá Móbergi, Lindargötu 62, sem lést í Landakotsspítala 9. nóvember, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 16. nóvemberkl. 13.30. Gimnar Johnsen, Marklandi Garðabæ, sem lést 9. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Garða- bæ, laugardaginn 17. nóvember kl. 13.30. Guðjón Magnússon frá Olafsfirði, Bergstaöastræti 9B Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu á morgun, föstudaginn 16. nóvember, kl. 15. Adam Magnússon, Bjarkarstíg 2 Akur- eyri, lést í Fjóröungssjúkrahúsinu að kvöldi 12. nóvember. Katrín Pálsdóttir frá Hörgslandi á Síðu andaðist 13. þessa mánaðar. Guðmundur Ól. Friðriksson prentari andaðist 13. október í Vancouver í Kanada. Útförin fór fram þar. Guðný Friðbjarnardóttir frá Klaustur- hólum, Njörvasundi 7 Reykjavík, er lést 6. þessa mánaöar, verður jarðsungin frá Stóruborgarkirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 13: Franziska Karólína Sigurjónsdóttir, Vatnsstíg 9 Reykjavík, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 15. nóvember kl. 13.30. Gunnar Baldvinsson, Hæðargaröi 16, andaðist í Borgarspítalanum 5. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðmundur H. Eiríksson trésmíða- meistari, Merkigarði Eyrarbakka, verður jarðsettur frá Eyrarbakka- kirkju laugardaginn 17. nóvember ki. 14. Siglingar Akraborg: Vetraráætlun Akraborgar hefur tekið gildi. Virka daga fer skipið f jórar ferðir á dag milli Akraness og Reykjavíkur. Á sunnudögum þrjár ferðir. Þá er fyrsta ferðin með skipinu kl. 11.30 frá Akranesi og kl. 13 frá Rvík. Þannigeráætlunin. Frá Akranesi Frá Rvik kl. 8.30 kl. 10.00 kl. 11.30 kl. 13.00 kl. 14.30 kl. 16.00 kl. 17.30 kl. 19.00 Yfir vetrarmánuðina eru engar feroir eftir kl. 19.00. Pass með tónleika í Safari Þungarokkshljómsveitin Pass heldur tónleika fimmtudagskvöldið 15. nóvember í Safari. Á efnisskránni er eingöngu frumsamið efni. Pax Vobis á Hótel Borg Hljómsveitin Pax Vobis mun halda tónleika í kvöld á Hótel Borg. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af nýrri plötu sem út kemur á föstudaginn. Húsið verður opnað kl.21. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru Ásgeir Sæmundsson, Skúli Sverrisson, Þorsteinn Jónsson, Þorvaidur Þorvaldsson og Þorsteinn Gunnarsson sem tók sæti Steingríms Ola. Einnig má geta þess að Pax Vobis kemur fram í Safarí á föstudags- og laugardags- kvöld. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudaginn 18. nóvember: Kl. 13: Ekið í Kjósarskarð að Stóra-Sauðafelli, gengið með Laxá að Þórufossi og Pokafossi þar sem bíllinn bíður. Þetta er auðveld göngu- leið og fossar í klakaböndum. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far- miðar við bil. Frítt fyrir börn í fylgd full- orðinna. Verð kr. 350,- Ferðafélag islands. Kaupmálar Eftirtaldir kaupmálar hafa verið skrá- settir við borgarfógetaembættið í Reykjavík í júnímánuði 1984 og er skrásetningardags getið innan sviga. Milli Emils Hilmars Eyjólfssonar, Lindargötu 39, Reykjavík, og Cather- ine Dory Anne Kunslich Eyjólfsson, s.st. (1.) Milli Ingibergs Olafssonar, Nýlendu- götu 7 Reykjavík, og Margrétar Bjömsdóttur.s.st. (12.) Milli Friðjóns Eyjólfssonar, Skaftahlíð 28 Reykjavik, og Guðnýjar Gunnars- dóttur, s.st. (15.) Milli Ragnars Hilmis Ragnarssonar, Hofteigi 36 Reykjavík, og Asu Lindu Guðbjörnsdóttur, s.st. (19.) Milli Eric J. Ericsson, Hörðalandi 2 Reykjavík, og Kristjönu R. Söebech, s.st. (26.) Milli Magnúsar Heiðars Jónssonar, Mýrarási 10 Reykjavík, og Inge Christiansen, s.st. (28.) Milli Birgis Rafns Jónssonar, Vestur- ströndll Seltjarnamesi, oglngibjarg- ar Norberg, s.st. (28.) Milli Sturlu Más Jónssonar, Sund- laugarvegi 9 Reykjavík, og Steinunn- ar Pálsdóttur, s.st. (28). Milli Daníels Oremus, Keflavíkurflug- velli, og Margrétar Amórsdóttur, Bú- landi34 Reykjavik. (29). Milli Sigf úsar Thorarensen, Stóragerði 20 Reykjavík, og Hjördísar Þorsteins- dóttur.s.st. (29.) Eftirtaldir kaupmálar hafa verið skrásettir við borgarfógetaembættið í Reykjavík í maímánuði 1984 og er skrásetningardags getið innan sviga. Milli Valdimars Jóhannssonar, Greni- mel 21 Reykjavík, og Ingunnar Ásgeirsdóttur, s.st. (4.) Milli Skúla Sigurðssonar, Grenimel 42 Reykjavík, og Kristínar Þ. Hauksdótt- ur.s.st (4.) Milli Sævars Péturssonar, Jómfelli 18 Reykjavík, og Ragnheiðar Sigurðar- dóttur,s.st. (4.) Milli Reynis Armannssonar, Fum- gerði 19 Reykjavík og Stefaníu Guð- mundsdóttur, s.st (4.) Milli Þórðar Viöars Magnússonar, Laugavegi 82 Reykjavík , og Sigrúnar Vilbergsdóttur, s.st. (10.) Milli Valdimars H. Jóhannessonar, Miðleiti 1 Reykjavík, og Margrétar Gústafsdóttur, Háaleitisbraut 34 Reykjavík (10.) Milli Þorsteins Héðinssonar, Hraunbæ 116 Reykjavík og Maríu Birnu Gunnarsdóttur, s.st. (11.) Basarar Kvenfélag Hallgrímskirkju Hinn árlegi basar Kvenfélags Haligríms- kirkju verður í félagsheimili kirkjunnar laug- ardaginn 17. nóvember og hefst kl. 14. Tekið veröur á móti basarmunum i féiagsheimilinu á fimmtudag milli kl. 17 og 22, föstudag milli kl. 15 og 22 og fyrir hádegi á laugardag. Tilkynningar Haustfagnaður Átfhaga- samtaka Héraðsmanna verður í Domus Medica föstudaginn 16. nóvember. Hefst kl. 20.00 stundvíslega með félagsvist. H.G. tríó leikur fyrir dansi frá kl. 23.00. Fressköttur í óskilum á Eiðistorgi Ungur grábröndóttur fressköttur með hvíta bringu er í skilum á Eiðistorgi. Hann er ómerktur en greinilega heimilisköttur. Upplýsingar í síma 617016. Bella En þegar þú ert að baksa við þennan bil þinn, þá kvartarðu aldrei yfir því hvað erfitt er að skiljast við hann. „Hlegið í gegnum tárin", sýning í IMýlistasafninu Þessa dagana sýnir Emil Gunnar Guðmundsson ljósmyndaröð „Hlegið í gegn- um tárin” í neðri sal Nýlistasafnsins. Sýningin er haldin í tengslum við leiksýningar Eggleikhússins á leikritinu „Skjaldbakan kemst þangað lika” og er opin öllum almenn- ingi á miðasölutíma leikhússins kl. 17—21. Ljósmyndasýningunni lýkur um leið og sýn- ingum Eggleikhússins. Kirkjudagur Óháða safnaðarins veröur haldinn sunnudaginn 18. nóvember. Kaffi í Kirkjubæ eftir messu. Þeir sem vildu gefa kökur komi þeim i Kirkjubæ milli kl. 10 og 12 á sunnudag. Hjálpræðisherinn, Kirkjustræti 2 I dag og á morgun föstudag veröur almenn samkoma kl. 20.30. Majoramir Elsa og Kar- sten Akerö syngja og tala. Kaffiveitingar á f östudagskvöld. Allir velkomnir. Ný snyrtivöruverslun á Laugavegi Opnuð hefur verið ný og glæsileg snyrtivöru- verslun að Laugavegi 61—63. Þar eru seldar franskar snyrtivörur enda heitir verslunin París. Eigendur verslunarinnar eru Magnea Rögnvaldsdóttir og Bjami Gunnar Gylfason. Áhersla verður lögð á kynningu og sölu á frönsku hágæðasnyrtivömnum Stendhal og Sothys. Edda Ríkharðsdóttir innanhússarki- tekt hannaði verslunina. Minningarkort líknar- sjóðs Áslaugar Maack fást á eftirtöldum stöðum: Pósthúsinu við Digranesveg, Kópavogi, Bókabúðinni Vedu, Hamraborg 5, öglu Bjarnadóttur, Urðarbraut 5, s. 41326, Sigríði Gísladóttur, Kópavogsbraut 45, s. 41286, Helgu Þorsteinsdóttur, Drápuhlíð 25, Rvík,s. 14139. Afmæli 90 ára er í dag, 15. nóvember, Ingjaldur Jónsson fyrrum skipstjóri og húsasmiður, Rauðalæk 13 hér í bæ, nú á Hrafnistu í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.