Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Page 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
253. TBL. — 74. og 10. ARG. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1984.
Enginn vill víkja, f jölgun ráðherra til umræðu:
ÞQRS7BNN TÆPAST
RÁÐHERRA í BRÁÐ
Sú naflaskoðun sjálfstæðismanna í
stjórnarsamstarfinu sem Þorsteinn
Pálsson, formaður flokksins, og
Olafur G. Einarsson, formaður þing-
flokksins, boöuðu fyrir rúmum hálf-
um mánuði í viðtölum við DV er
nánast strönduð. Uppstokkun í ríkis-
stjórninni er í sjálfheldu og Þor-
steinn verður tæpast ráðherra í bráð.
Margir helstu talsmenn stjórnar-
flokkanna, þar á meöal forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra, hafa
lagt áherslu á í viðtölum viö DV að
þeir teldu mjög mikilvægt aö for-
maður Sjálfstæðisflokksins tæki sæti
í ríkisstjórninni. Og Þorsteinn
sjálfur Iagöi þunga áherslu á að
sjálfstæðismenn yrðu að meta ný
viðhorf, efnahagsleg og pólitísk ,,á
næstu dögum” eins og hann sagði.
Viðtöl DV við Þorstein og Olaf ollu
miklu fjaðrafoki í ráðherraliði
flokksins. Enginn þeirra hefur
reynst tilbúinn til þess að víkja sæti.
Þess vegna hefur einnig komið tii
álita uppstokkun i skiptingu
ráðuneyta og fjölgun ráðherra. Sú
hugmynd vefst þó fyrir mönnum.
Um síðustu helgi vakti athygli að
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra og fyrrverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins, mætti með fjár-
málaráðherra til viðræöna viö for-
mann og varaformann Framsóknar-
flokksins um fjárlagadæmið. En ekki
Þorsteinn Pálsson. Geir hefur
raunar verið talsmaður ráðherraliðs
sjálfstæðismanna frá upphafi í al-
mennum skoðanaskiptum við hitt
ráðherraliðið.
„Þessi skipan var sjálfsögð af
okkar hálfu og þar sem Þorsteinn
Pálsson er enn utan ríkisstjórnar,
sem ég tel mjög miður, er for-
mennska Geirs í ráöherrahópnum
rökrétt ráöstöfun,” segir Albert
Guömundsson um þetta mál, „en
Þorsteinn er engu að síöur með í
öllum ráöum.”
-HERB.
USA í Versló
Verslunarskólinn hefur verið málaður i bandarísku fánaiitunum og skreytt-
ur myndum af Ronald Reagan og félögum; allavega ein kennslustofa.
Nemendur fengu leyfi skólayfirvalda tíl þessara skreytínga en illa hefur
gengið að fá upplýsingar um hver tílgangurinn sé. Helst hallast menn að að
þarna séu kenndar enskar bókmenntír. -EIR. /D V-mynd KAE.
Gideon VE104 dreginn til hafnar í nótt:
Sprenging og eldur
í vélarrúmi skipsins
„Olíumælirinn sprakk og það
sprautaðist olía yfir vélina. Þá varð
mikil sprenging og mikill eldur
braust út í vélarrúminu,” sagöi
Pálmi Guðmundsson, stýrimaður á
Gideon VE104, ísamtali við DV.
Báturinn var staddur 6 sjómílur
vestur af Portlandi þegar eldur
braust út í vélarrúmi hans rétt fyrir
miðnætti í gær. „Vélstjórinn var
staddur niðri í vélarrúminu og þurfti
að ryðja sér braut upp. Fyrst
reyndum við að ráða við eldinn með
tveimur slökkvitækjum en svo var
eldurinn orðinn svo mikill að þaö
eina sem viö gátum gert var að loka
vélarrúminu. Síðan létum við
vélamar ganga þar til þær stoppuðu
af sjálfu sér vegna súrefnisskorts en
einnig höfðum við lokað fyrir olíu-
tankinn inn að vélinni, ” sagði Pálmi.
Rúmri klukkustundu eftir að eldur-
inn braust út kom varðskipiö Týr á
vettvang og dró Gideon að bryggju í
Vestmannaeyjum. „Við fórum ekki
niður í vélarrúmið fyrr en við vorum
komnir heim um fimmleytið í
morgun en þá var enn glóð í vélar-
rúminu,” sagði Pálmi.
-EH
Verðbólgan
ferí30-35%
— gengikrónunnar
hefurlækkað um
23,3% á árinu
Verðbólgan fer nú úr 10—15% í 30—
35% og verður á því róli fyrstu þrjá
mánuði næsta árs, samkvæmt
upplýsingum Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra á Alþingi í
gær. Síðan er vonað að verðbólgan
lækki í 20—25% og náist niður að
núverandi stöðu í árslok 85.
Við sama tækifæri, umræður utan
dagskrár um gengisfellingu krón-
unnar, skýrði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaöur Alþýðuflokksins,
frá þvi að gengi krónunnar hefði
þegar veriö sigið urn 11,3% frá ára-
mótum til októberloka og því hefði
meðalgengi hennar lækkað alls á
árinu um 23,3%. Gagnvart banda-
rískum dollar hefði krónan lækkað
enn meira, um 29,6% samtals.
Þá sagði forsætisráðherra frá því
að nýjustu spár Þjóöhagsstofnunar
um þjóðarframleiðslu á næsta ári
væru þannig að aukning yröi um
0,5% í staö 1,8%. 1 ár er gert ráð fýrir
1,2% samdrætti ofan á 5,5% sam-
dráttífyrra. HERB
Fjárlagagatið er
800-900 milljónir:
Bara sammála
umbrennlvfnlð
Fjárlög ríkisins munu hækka um
11% eftir nýgerða kjarasamninga og
gengisfellinguna. Þau verða þvi
rúmlega 25 milljarðar. Eins og fjár-
lagafrumvarpið var lagt fram, upp á
22,5 milljarða, átti að slá hálfan
milijarð til að loka því. Eftir hækkun
vantaði hms vegar annað eins í við-
bót. Samstaöa er um aö hækka
áfengi og tóbak um 150—180 miiljónir
á móti. Fjárlagagatið er því 800-900
milljónir eins og er.
Ekki er samstaða í ríkisstjórn og
stjómarfiokkum um önnur úrræði.
Framsóknannenn vilja hækka
eignaskatta eða draga úr 600
milljóna tekjuskattslækkun. Sjálf-
stæöismenn vilja það ekki. Ekki er
samstaða um að klípa af 1.500 miiij-
óna vegafé. Það stefnir því í að fjár-
lögin verði með 800 milljóna króna
halla, jafnvel 900 milljóna, ef lagt
verður í mildandi aðgerðir vegna
gengisfellingarinnar.
HERB
Ölympíuskákmotið
I annarri umferö ólympíuskák-
mótsins tefldi íslenska kariasveitin
við sveit Hondúras og fóru allar
skákir í bið en þegar biðskákir voru
tefldar áfram unnu Helgi Olafsson og
Margeir Pétursson sínar skákir en
skákir Jóhanns Hjartarsonar og
Jóns L. Árnasonar fóru áfram í bið
og var verið að tefla þær í morgun.
Kvennaliðið tefidi við sveit Dóminí-
kanska lýðveldisins og vann Sigur-
laug Friðþjófsdóttir sína skák en
skákir Guölaugar og Ölafar fóru
tvisvar í bið. Þá lauk skák Margeirs
úr fyrstu umferð með jafntefli en
Helgi Olafsson reynir enn aö vinna
Bouaziz og er sú skák komin í bið í
fjórða sinn en er fræðilegt jafntefli.
Sovétmenn eru efstir á mótinu
eftir tvær umferðir, hafa ekki tapað
skák. -óbg.