Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1984, Blaðsíða 26
34
DV. FÖSTUDAGUR 23. NOVEMBER1984.
Guðveig Stefánsdóttir lést 13.
nóvember sl. Hún fæddist í Málmey í
Skagafirði 12. júlí 1906. Foreldrar
hennar voru hjónin Stefán Pétursson
og kona hans Dýrleif Einarsdóttir.
Guðveig giftist Agli Egilssyni en hann
lést áriö 1982. Þeim varð ekki barna
auðið. Utför Guðveigar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag kl. 15.
Hólmgeir G. Jónsson lést 16. nóvember
sl. Hann fæddist í Reykjavík 6. septem-
ber 1910. Foreldrar hans voru Jón
Jónsson og Aðalbjörg Jónsdóttir.
Ungur hóf Hólmgeir að vinna að
verslunarstörfum fyrir réttum 60
árum. Fyrst. ann hann hjá versluninni
Vaðnesi og síðar í Kiddabúð og fleiri
verslunum. Sl. 28 ár starfaði hann hjá
Hörpu hf, sem yfirmaður í vöruaf-
greiöslunni. Hólmgeir var giftur Unni
Guöfinnu Jónsdóttur er lést í janúar sl.
Þau hjónin eignuöust tvær dætur. Út-
för Hólmgeirs verður gerð frá Nes-
kirkjuídagkl. 13.30.
Otti Vilberg Jónsson reiöhjólasmiöur,
Dalseli 6, lést í I>andakotsspítala að-
faranótt 22. nóvember sl.
Þórunn Guðbrandsdóttir frá Ix)ftsöl-
um, Mýrdal, andaðist 21. nóvember.
Guðný Magnúsdóttir frá ívarshúsum,
Dvalarheúnilinu Höfða Akranesi, sem
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 18.
nóvember, veröur jarðsungin frá
Akraneskirkju laugardaginn 24.
nóvemberkl. 11.30.
Guðmundur Heigason, Túngötu 18
Keflavík, sem lést 14. þ.m., verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 24. nóvember kl. 14.
Vigfús Jónsson, Ásbraut 13 Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 26. nóvember kl.
13.30.
Guðmundur Jónsson, Grímsey, sem
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 19. nóvember sl., verður jarösung-
inn frá Miögarðskirkju, Grímsey,
sunnudaginn 25. nóvember kl. 13.30.
Tilkynningar
Út er komið almanakshapp-
drætti Landssamtakanna
Þroskahjálp
fyrir árið 1985. Almanakið hefur komið út
árlega á undanfömum árum en er nú með
mjög breyttu sniði, bæði hvað varðar útlit og
vinninga. Að þessu sinni prýða almanakið
grafíkmyndir eftir 13 íslenska listamenn, ein
fyrir hvem mánuð, auk forsíðu, og birtist hér
árangur samvinnu Landssamtakanna
Þroskahjálp og félagsins Islensk grafík.
Myndimar sjálfar, þ.e. frummyndirnar,
verða til sölu fyrir milligöngu skrifstofu
Þroskahjálpar.
I vinninga em: Fiat Uno, sem dreginn
veröur út 31. janúar nk., og eitt Sharp-lit-
sjónvarpstæki hvem mánuö frá febrúar—
desember. Almanakið, sem er meginfjár-
öflunarleið Landssamtakanna Þroskahjálp,
er gefið út í 16 þúsund eintökum sem seld
verðaá200kr. hvert.
Félag ráðgjafarverkfræðinga
Dagana 6.-7. september héldu stjórnarmenn
félaga ráðgjafarverkfræðinga árlegan sam-
ráðsfund, svokallaðan RINORD-fund, að
hótel Esju í Reykjavík. Margt bar á góma.
Einna forvitnilegust verður þó afstaöa
danskra stjórnvalda til ráðgjafarverk-
fræðinga að teljast. Dönskum rannsóknar-
stofum sem njóta fjárveitinga af opinbem fé
er t.d. óheimilt að taka að sér verkefni sem
venja er að vinna á almennum verkfræði-
stofum nema ganga úr skugga um að þær geti
eða viiji ekki taka að sér verkefnið. Hinu
danska félagi ráðgjafarverkfræðinga er
iöulega boðið að eiga fulltrúa í viðskiptasendi-
nefndum til þróunarlanda. Samkomulag er
um það milli danska félagsins og nokkurra
opinberra stofnana að útflutningur verkfræöi-
ráðgjafar sé í höndum einkafyrirtækjanna en
þau geti aftur á móti fengið lánaða starfsmenn
hinna opinberu stofnana sem búa yfir þekk-
ingu á þröngu sviöi. Að frumkvæði danska
ráðgjafarverkfræðingafélagsins hefur
danska þingið veitt fé tíl undirbúnings því að
hugbúnaður vegna notkunar tölva í
byggingariðnaði verði samræmdur. Danska
félagið hefur með höndum skipulagningu
þessa verkefnis og býst við áframhaldandi
fjárveitingum til þess næstu árin. Hin Norður-
löndin geta ekki státað af svo mikilli velvild
og skilningi stjórnvalda sem í Danmörku og
Svíar kvarta jafnvel undan andúð stjórnvalda
á einkarekstri verkfræðistofa.
Auk fundarstarfa heimsóttu fundargestir
og makar þeirra forseta Islands aö Bessa-
stöðum og ferðuðust nokkuð um Suður- og
Vesturland.
Námskeið fyrir starfsfólk á
uppeldis- og viststofnunum
Irski uppeldisfræöingurinn dr. Roy
McConkey er væntanlegur til Islands á vegum
nokkurra kennslustofnana og félagasamtaka
í byr jun desembermánaöar nk.
Dr. McConkley hefur um áratugi fengist við
rannsóknir á kennslu vangefinna, bæöi viö
Hester Adrian stofnunina í Manchester og St.
Michaels House stofnunina í Dublin. Hann er
kunnur sem höfundur bókanna: ,,Let me
play”, „Let me speake”, ,,Teaching the
handicapiæd child” og „Breaking barriers”.
Einn megintilgangurinn meö komu
McConkeys er aö kynna starfsfólki á
uppeldis- og viststofnunum þar sem vangefnir
eru, svo og foreldrum og ööru áhugafólki,
þrjú vídeónámskeiö sem hann hefur nýlega
gert ásamt samstarfsmönnum sínum í
Dubíin.
Námskeiöin eru þessi:
1. Let’s Play sem fjallar um þaö hvernig hag-
nýta má leik á kerfisbundinn hátt í uppeldis-
starfinu.
2. Putting two words together sem fjallar um
hagnýtar aðferðir til málörvunar vangefinna.
3. Community Attitude to Retarded Adults
sem er kynning á lífi fullorðinna vangefinna,
prógrameraö sem 5 kennslustundir í fram-
haldsskóla.
Dr. McConkey mun flytja erindi í Kennara-
háskóla Islands þriöjudaginn 4. desember kl.
16.00. Heiti erindisins er: Teaching the
mentally handicapped. Sama dag kl. 20.30
flytur hann erindi á vegum Félags ísl. sér-
kennara og Félags talkennara og talmeina-
fræðinga sem nefnist „Teaching language to
mentally handicapped”.
Á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar
og Styrktarfélags vangefinna flytur dr.
McConkey erindi í Norræna húsinu miðviku-
daginn 5. desember kl. 20.30. Erindið nefnist
„How to change the community attitude to
mentally retarded people”.
Fimmtudaginn 6. desember heldur
McC'onkey námskeiö í Borgartúni 6 sem
einkum er ætlaö kennurum sérskóla og starfs-
liöi viststofnana þar sem vangefnir dvelja.
Þar mun hann fjalla um videonámskeiöin
„Let’s play” og „Putting two words
together”.
Uppskeruhátíð Breiðabliks
í Háskólabíói
Næstkomandi laugardag, 24. nóvember,
heldur knattspyrnudeild Breiðabliks upp-
skeruhátíð í Háskólabiói. Hátíðin hefst
klukkan 14.00 og mun Skólahljómsveit Kópa-
vogs taka á móti gestum með lúðrablæstri frá
kl. 13.45.
A uppskeruhátíöinni verður tilkynnt um
val leikmanns hvers flokks og jafnframt um
val á flokki ársins. Hinum útvöldu verða
afhent verðlaun og sömuleiðis mun 2. flokkur
félagsins fá afhent verðlaun sín fyrir árangur
i Islandsmótinu si. sumar. Formaður knatt-
spyrnudeildar heldur ávarp og ekki er ólík-
legt að fleiri góðir menn muni troða upp.
Uppskeruhátíðinni lýkur svo með kvik-
myndasýningu fyrir alla fjölskylduna og er
vonast til þess að foreldrar muni fjölmenna
meö börnum sinum til samkomunnar, eldri
félagsmenn og aðrir velunnarar láti sig ekki
vanta og að sem allra flestir sjái sér fært að
fagna góðum árangri yngri flokkanna á sl.
sumri og gera uppskeruhátíöina sem myndar-
legasta.
Jólamarkaður
Jólamarkaöur félags cinstæöra foreldra
verður í Traðarkotssundi 6 laugardaginn 1.
desember nk. Fólk er beöiö aö koma munum
á skrifstofuna fyrir 30. nóvember í síöasta
lagi.
Jólakveðja með vinningsvon
Gigtarfélag Islands efnir nú til óvenjulegs
happdrættis. Hver happdrættismiði er um leið
jólakort. Vinningar eru 8 ferðavinningar eftir
vali.
Það er von félagsins að þessu korti verði vel
tekið. öilum ágóða veröur varið til að greiða
kostnað við Gigtlækningastöðina sem nú er
I gærkvöldi
í gærkvöldi
í ELDHÚSINU
Þaö er vel til fundiö hjá ríkisfjöl-
miölunum að útvarpa stefnuræöu
forsætisráöherra og umræöum um
hana á fimmtudagskvöldi. Ef aðrir
dagar væru notaöir til þessara eld-
húsumræðna á kostnaö annarra dag-
skrárliöa yröi forsætisráöherra svo
og ríkisstjórnin öll aö segja af sér.
Svo leiðinlegt er þetta.
Enda sat Sverrir Hermannsson og
las enska pappírskilju í ráðherra-
stól sínum á meðan. Sýndist hún
vera eftir Theresu Charles.
Annars er alltaf gaman aö sjá lif-
andi svipmyndir frá alþingi. Nýju
þingmennirnir eru taugaóstyrkir og
þaö má alltaf búast viö aö þaö líöi
yfir þá í ræöustólnum og gömlu þing-
mennirnir hafa elst frá því síöast. Eg
sá þingmenn Bandalags jafnaöar-
manna bora í nefiö og ekki var annað
aö sjá en einn kommi og þingmaður
af Kvennalista væru aö rugla saman
reitum sínum. Þessar eldhúsdags-
umræöur voru spennandi á köflum.
Stjómarandstaöan beindi spjótum
sínum aöallega aö Seðlabanka-
byggingunni og harmaöi í leiðinni aö
allar kjarabætur hefðu verið teknar
af fólki meö einu pennastriki.
Stjórnarþingmenn voru aftur á móti
meö Gallup-könnun upp á vasann
sem sýndi svo ekki varö um villst aö
Islendingar væru hamingjusamir,
trúgjamir en blankir.
Þaö var skemmtileg tilviljun að
hinn nýi formaður Alþýöuflokksins
skyldi taka til máls næstur á eftir
forsætisráöherra. Með því móti fékk
þjóöin góöan samanburö á því sem
er og hinu sem koma skal. Þaö liggur
viö aö Jón Baldvin sé myndarlegri en
Steingrímur og hann á örugglega
eftir að veröa forsætisráðherra ef
hann lætur klippa sig og raka og
byrjar aö nota gleraugu.
Megum viö biöja um meira af
svona útvarps- og sjónvarpsefni. En
helst bara á fimmtudögum — og þá
fyrir hádegi.
-EUt.
örnólf ur Thorlacius:
Slæmt málfar auglýsinga i sjonvarpi
r ■ r
Það eina sem ég hlusta reglulega á
í útvarpinu eru fréttir og veðurfregn-
ir. Eg er ekki meö útvarp í vinnunni
þannig aö ég hlusta helst á kvöldin á
annað efni sem vekur áhuga minn.
Rás 2 hef ég þar af leiðandi ekki
hlustað á svo aö neinu nemi enda er
ekki FM bylgja á útvarpstækinu
mínu.
1 sjónvarpi horfi ég yfirleitt á frétt-
ir ef ég er kominn heim frá vinnu. í
kjölfar þeirra koma svo alltaf
auglýsingar meö sínu miður góöa
málfari. Þaö sem er mér hvaö
mestur þyrnir í augum þessa stund-
ina er hin mikla ofnotkun á orðinu
gæöi þegar talaö er um ýmsar vöru-
tegundir. Þetta mætti lagfæra. Af
ööru efni sjónvarps horfi ég á ýmiss
konar fræðsluþætti og einstaka fram-
haldsþáttum fylgist ég einnig með.
Nýi myndaflokkurinn um Indland,
sem sýndur var á sunnudaginn, var
t.d. alveg ágætur.
I heild er ég sáttur viö dagskrá
ríkisfjölmiðlanna þó að í dagskrá
bæöi útvarps og sjónvarps sé margt
sem mér fellur ekki í geð. Það er líka
ógjörningur aö hafa dagskrá þessara
fjölmiðla þannig að öllum líki.
komin í fullan gang. Kortin fást hjá Gigtar-
félagi Islands, Ármúla 5, og hjá félags-
mönnum víða um landiö.
Stjórnin.
Sérfræðingur í kennslu al-
varlega fatlaðra barna
staddur hér á landi
Andreas Fröhlich, yfirkennari skólans fyrir
fatlaða í Landstuhl í V-Þýskalandi, dvelur hér
á landi dagana 22.-28. nóvember í boði For-
eldra- og kennarafélags Safamýrarskóla og
Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis.
A. Fröhlich mun halda námskeið fyrir
starfslið þjálfunarskóla ríkisins á Kópavogs-
hæli og Safamýrarskóla en auk þess mun
hann flytja erindi fyrir almenning í Borgar-
túni 6 mánudagúin 26. nóvember kl. 20.30. 1
erindi sínu mun hann segja frá niðurstöðum
þróunarstarfs sem fram fór í skólanum í
Landstuhl á árunum 1976—1982 til þess að
frnna og þróa þjálf unar- og kennsluaðferöir til
að beita við ofurfötluð böm. Erindið verður
túlkað á íslensku.
Jólabasar
Vinahjálpar
Jólabasar Vinahjálpar veröur haldinn aö
Hótel Sögu (Súlnasal), sunnudaginn 25. nóv.
’84, kl. 2 e.h. Glæsilegt hapjxirætti. Kaupiö
jólagjafirnar hjá okkur um leiÖ og þiö styrkið
gott málefni.
Árlegt símahappdrætti
lamaðra og fatlaðra
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra efnir nú til
hins árlega símahappdrættis, en eins og al-
kunna er gilda símanúmerin jafnframt sem
númer happdrættismiðanna. I þessu sérstæða
happdrætti er því ekki um það að ræða að gefa
út ótakmarkaðan miðafjölda, heldur miðast
fjöldi útgefinna miða algerlega við skráö
símanúmer.
Vinningar í símahappdrættinu að þessu
sinni 'eru mjög glæsilegir: 5 mismunandi
tegundir vinsælla bifreiða frá TOYOTA að
verðmæti rösklega 2 milljónir króna. Verði
happdrættismiðanna er stillt í hóf og kosta
þeirkr. 150,00.
Að sögn Sigurðar Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Styrktarfélagsins, er síma-
happdrættinu alltaf tekið með vinsemd af
símnotendum í öllum þeim aragrúa happ-
drætta og fjáraflana sem jafnan eru í gangi.
Þannig ættu símnotendur góöan þátt í upp-
byggingu og eflingu félagsins.
Jafnframt er ástæða að leggja á það
áherslu að drætti er aldrei frestað. Avallt
dregið á Þorláksmessu og vinningsnúmer birt
opinberlega daginn eftir og einnig er hægt
strax á aðfangadag að hringja í símsvara sem
tilgreindur er á miðunum og fá þannig
upplýsingar um vinningsnúmer.
Heiisugæsla
Heilsugæslustöðin á Seltjarnamesi hefur frá
1. október sl. tekið upp kvöld- og helgarvaktir
fyrir þjónustusvæði sitt, sem er Seltjarnames
og vestasti hluti Reykjavíkur.
Kvöldvakt er alla virka daga frá kl. 19.30—
22.00. A laugardögum, sunnudögum og al-
mennum frídögum er bakvakt frá 09.00—12.00
og frá 17.00—22.00 síðdegis.
Sími bakvaktar er 19600 (Landakot).
Ferðalög
Ferðafélag Islands
Dagsferð sunnudaginn 25. nóvember:
Kl. 13, varðaða leiðin á Hellisheiði—Hellis-
skarð—Kolviðarhóll (gamla gönguleiðin).
Þetta er létt og skemmtileg gönguleiö.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna. Verð kr. 350,-
Skák
Skákþing UMSK
Skákþing UMSK verður haldið 24. og 25.
nóvember nk. í félagsheimilinu Fólkvangi á
Kjalamesi. Hefst taflið kl. 13.00 báða dagana.
Tefldar veröa 6 umferðir eftir Monradkerfi
í tveimur flokkum, 16 ára og yngri og 17 ára
og eldri. Umhugsunarfrestur er 45 min. á
mann.
Vegleg verðlaun era í hvoram flokki sem
gefin eru af sveitarfélögunum á Kjalamesi og
íKjós.
Rétt til þátttöku hafa allir þeir sem eru
félagsbundnir í einhverju af aðiidarfélögum
UMSK eða eiga lögheimih á sambands-
svæðinu, sem er: Bessastaðahrippur,
Garðabær, Kópavogur, Seltjarnames, Mos-
fellssveit, Kjalames og Kjósarhreppur.
Þátttökugjald er kr. 50 fyrir yngri flokk og
kr. 100 fyrir eldri flokk. Frestur til að skrá inn
keppendurá mótið rennur út þann 22. nóv. nk.
Hægt er að tilkynna þátttöku og afla nánari
upplýsinga á skrifstofu sambandsins að
Mjölnisholti 14 í síma 16016 og hjá Kristni G.
Jónssyni Brautarholti í síma 666044.
Sovétmenn með
örugga f orystu
I fjóröu umferö ólympíuskákmóts-
ins í Saloniki tóku Ungverjar sig á,
eftir 0—4 tapið f yrir Sovétrík junum, og
unnu Puerto Rico með sama mun.
Helstu úrslit í fjóröu umferð eru þau aö
Israelsmenn og Júgóslavar skildu
jafnir, meö 2 vinninga hvor, og sama
er aö segja um Svía og Frakka og
Finna og Indónesa. Tékkar unnu
Zimbabwe, 4—0, en flestum öörum viö-
ureignum erólokiðog t.d. fóru allar
fjórar skákir Bandaríkjamanna og
Filippseyinga í bið.
Sovétmenn eru í efsta sæti meö 13
vinninga og 3 biðskákir, Englendingar
eru í ööru sæti meö 12 v. og 1 bið. Síðan
koma Tékkar meö 11,5 og Islendingar
og V-Þjóðverjar meö 11 vinninga og 1
biöskák og í 6.-8. sæti eru Júgóslavar,
Israelsmenn, Ungverjar og Svíar, með
11 vinninga.
Eftir fjórar umferöir í kvenna-
flokki er sveit Búlgara efst meö 11
vinninga, Indverjar og Kínverjar
næstir meö 9 v. og Rúmenar og
sovésku stúlkurnar meö 8,5 og eina biö.
Siglingar
HULL/GOOLE: LENINGRAD:
Dísarfell 19/11 Patria 4/12
Dísarfell 3/12
Dísarfell 17/12 LARVIK:
Jan 26/11
ROTTERDAM: Jan 10/12
Dísarfell 20/11
Dísarfell 4/12 GAUTABORG:
Dísarfell 18/12 Jan 27/11
Jan 11/12
ANTWERPEN:
Dísarfell 21/11 KAUPMANNAHÖFN:
Dísarfell 5/12
Dísarfell 19/12 Jan 28/11
Jan 12/12
HAMBORG:
Dísarfell 23/11 SVENDBORG:
Dísarfell 7/12 Jan 28/11
Dísarfell 21/12 Jan 13/12
HELSINKI: ÁRÖSAR:
Patria 30/11 Jan 29/11
Hvassafell 14/12 Jan 13/12
LUBECK: GLOUCESTER, M-
Arnarfell 29/11 ASS.:
Skaftafell 19/11
FALKENBERG: Skaftafell 18/12
Arnarfell 1/12
Hvassafell 17/12 HALIFAX, KANA-
DA:
Skaftafell 19/12
BELLA
Ég er orðin þreytt á því hvað
Hjálmar á erfitt með að ákveða
sig. . . nú er ég búin aö spyrja
hann 14 sinnum hvað ég eigi að
fara í í kvöld.