Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1984, Blaðsíða 13
Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn
DV. LAUGARDAGUR 24. NOVEMBER1984.
Nú standa síldveiðar yfir en þó er
söltun víða lokið. Það er því um að
gera að taka til hendinni og útbúa
nokkra síldarrétti fyrir jólin. I
Skandinavíu, sérstaklega þó Dan-
mörku, er síld snædd um jólin og þykir
raunar ómissandi á jólaborðið. Þennan
sið mætti taka upp hér á landi. Þaö ætti
að vera ágætis tilbreyting að fá síldar-
bita á hádeginu um hátíöisdagana.
Pantið sildina hjá fisksalanum og biöj-
ið hann um að flaka fyrir ykkur síld-
ina. Nú, hér kemur uppskrift aðsíldar-
rétti sem er sérlega gómsætur. Þessi
uppskrift er dönsk-sænsk. Það sem
þarfer:
Lögur:
1 dl tómatkraftur (úr dós, helst
ítalskur)
1 dl rauðvínsedik
1/2 dl vatn
2msk. sykur
piparúrkvörn.
Hrærið öll efnin saman og sjóöið lög-
inn örstutta stunda og látið hann kólna.
6 kryddsíldarflök (það þarf að útvatna
þauí 12 klst.)
4—5 sykursúrsaðar agúrkur (litlar),
skomar í sneiðar
3msk.kapers
2 smátt saxaðir litlir laukar.
Síldarflökin em skorin í hæfilega
bita og þeim raðað á fat. Hellið
leginum yfir síldina og dreifið svo
gúrkunum, kapersnum og lauknum
yfir síldina. Rétturinn er svo geymdur
á köldum stað í u.þ.b. sólarhring áður
en hann er borinn á borð.
— Verðiykkuraðgóðu.
rnwmm
■blöm^Avextir
Hafnarstræti 3.
FjötekvWutrvggíng
Við hjá Sjóvá viljum að þú hugsir sem best um sjálfan
þig og fjölskylduna. Pess vegna leggjum við til að þú
sameinir allar nauðsynlegar og sjálfsagðar vátryggingar
í eina fjölskyldutryggingu.
Við skiptum vátryggingum í tvennt grunnvernd og
viðbótarvernd.
Með því að taka þrjár af fjórum vátryggingum
grunnverndar hefur þú náð fjölskyldutryggingu.
Aðrar vátryggingar eru viðbót enda kallaðar
viðbótarvernd.
Með fjölskyldutryggingunni bjóðast hagstæðari
kjör.
”gerðu Sjóvá að þínu félagi”
Umboðsmenn um land allt _ _ X. .£
SJOVA
Suóurlandsbraut 4 -Sfmi 82500