Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1985, Síða 2
30
DV. LAUGARDAGUR 5. JANUAR1985.
Afmælisbarn
vikunnar
Afmælisbarn vikunnar er Kristín S.
Kvaran og á hún afmæli í dag. Hún er
fædd 1946. Hún er fóstra aö mennt og 1.
landskjörinn þingmaöur. Hún er kjörin
á þing sem frambjóðandi fyrir Banda-
lag jafnaöarmanna. Hún hefur veriö í
fríi undanfariö.
I afmælisdagabókinni stendur:
Hreinskilni, góðvild og ást á bömum
eru einkenni þeirra sem fæddir eru í
dag. Heimilislifiö er þeim mikilvægt.
Þeir eru sannleikselskandi en geta átt
til aö vera hlutdrægir í áliti sínu á
kunningjunum. Þeir þurfa aö þroska
meö sér þolinmæði.
Bindismet
Líklega vill Hallvor Heggtveit ekki
hafa mikiö með slifsi aö gera í nánustu
framtíð. Hann hefur fengiö nóg af
þeim. Það mætti allavega ætla þvi
fyrir skömmu fékk hann 1400 stykki.
Hann rekur verslun og hvatti fólk til
aö koma með gömul bindi til sín. Fyrir
hvert bindi fékk síðan hver og einn 40
króna úttektarmiöa. Það er skemmst
frá því aö segja að til hans streymdu
bindi úr öllum áttum. Þau uröu að lok-
um 1400 og í öllum regnbogans litum.
Hann gerir sér nú vonir um aö kom-
ast i heimsmetabókina.
Hann ætlar að láta vefa teppi úr
bindunum. Fyrra metið er teppi úr 800 ■
bindum. Það var 7,9 metra langt og 1,3
metrará breidd.
Fleiri morðtilræði
Amerískir stjörnuspámenn spá því
að á þessu ári muni ríöa yfir mikil
bylgja drápstilrauna. Meöal þeirra
sem þeir telja að ráðist veröi á er páf-
inn, Reagan, Thatcher og meölimir úr
bresku kóngaf jölskyldunni.
Þeir hafa varaö Reagan viö forseta-
vígslunni sem veröur nú í janúar. Þeir
segja reyndar aö CIA muni komast aö
því í tæka tíö aö einhverjir sækist eftir
lífi forsetans viö þetta tækifæri. Hins
vegar mun draga til tíöinda í þessum
málum seinna í vor.
Þá segja pessir spekingar aö nýr
leiðtogi muni taka við í Kreml. Meira
verður um hamfarir á árinu. Þá er
ljóst að Diana mun bera sigur af hólmi
í sambandi við uppeldi á litla prinsin-
umHenry.
Svo benda stjömur á að bæði franski
forsetinn og vestur-þýski forsætisráð-
herrann veröi aö segja af sér á þessu
ári.
ALGJÖR
ALBERT
„Ert þú algjör Albert?” er nýtt oröa-
tiltæki sem virðist vera aö festast í
mállýsku skólabama. Eins og flestir
vita er mjög blómlegt mál sem þróast í
skólum hér á landi. Sérstaklega á þetta
viö um þéttbýlið. Þar eru mörg orðatil-
tæki sem böm nota en foreldrar eiga í
miklum erfiöleikum meö aö skUjja.
Þetta meö Albert er sagt þega r menn
erualgjörirafglapareöa „algjörir”.
HEIMSMET
HEIMSMEISTARA
Vafasöm
aftaka
Aftaka Alpha Otis Stephens var
rnikiö hneyksU fyrir rUcisfangelsiö í
JacksoníGeorgia.
Hann var dæmdur í rafmagnsstól-
inn. I tvær mínútur var settur á hann
2000 volta straumur sem á að vera nóg
til aö eyða lífi.
Sex mínútum seinna var hinn
dauðadæmdi enn á lifi.
Enn einu sinni var straumurinn
settur í gang. Þaö var ekki fyrr en eftir
20 mínútur sem fangelsislæknirinn gat
staöfest aö Alpha væri látinn.
Hættulegt
vodka
Rétt fyrir jól vom tvær rússneskar
vodkaflöskur sprengdar í loft upp í
Washington.
Það vom sprengjusérfræðingar í
bandaríska hemum sem sprengdu
þær. Flöskurnar vora jólagjafir frá
rússneska sjóhernum og grunur lék á
því að þetta væm tvær litlar sprengjur.
Svo reyndist ekki vera og allt vodkað
fór til spillis.
Hræðilegt
heimsmet
Mexíkanskur vömbílstjóri setti ný-
lega óhugnanlegt heimsmet. Hann
missti stjórn á stórri bifreið sinni og ók
inn í trúarhóp sem var meö útisam-
komu.
Viö þaö létust 19 menn og 30 særöust.
„EFTIR TÍU
ÁR SVELTUR
ENGINN...
Um þessar mundir heyrum viö
mikið um hungur í Afríku. Þetta er
ekki nýtt vandamál. A seinasta ári
og á þessu nýja ári líka er taliö aö
hvem dag fái 500 þúsund manns ekki
magafylli. Um 40 þúsund börn deyja
daglega vegna næringarskorts.
Fyrir tíu árum sagði Henry
Kissinger á heimsmatvælaráöstefn-
unni: „Eftir tíu ár munu engin böm
leggjast til svefns hungmö.”
A þessu ári vogar sér enginn aö
segja þessi orö. I mesta lagi vona
menn aö eftir tíu ár verði færri sem
svelta.
Nú er Eþíópía mikiö í fréttum. En
því miöur er þaö ekki eina landiö
sem líöur skort. Talið er að um þess-
ar mundir séu þaö 35 milljónir sem
þurfa nauösynlega hjálp. Sagt er að
þessir langvarandi þurrkar í Afríku
hafi leitt til verstu hamfara í þessum
heimshluta.
Það hefur ekki farið fram hjá nein-
um að heimsmeistaraeinvígið í skák er
farið að dragast á langinn. Kasparov
og Karpov settu heimsmet þegar þeir
voru búnir að tefla 34 skákir.
Fyrra metið er frá árinu 1927. Þá
varö Aljechin aö tefla 34 skákir viö þá-
verandi heimsmeistara, Capablanca.
Hann vann 6—3.