Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1985, Blaðsíða 13
ec JR. RAY PARKER JR. RAY PARKER JR. RAY PARKER JR
DV. LAUGARDAGUR 5. JANUAR1985.
41
RAY PARKER JR. RAY PARKER JR.
CHOSTBUSTERS
DRAUGABANAR
Ray Parker hinn ungi og hógværi. Á innfelldu myndinni íhópidraugabananna.
Maður er nefndur Ray
Parker hinn yngri
eða junior upp á
ameríska vísu. Hann er
blakkur maður á húð og
hár og skrúfhærður eins
og títt er um kynbræður
hans. Parker er hagur
maður á hljóðfæri og
rödd og fæst einnegin við
tónsmíðar. Síðasta afurð
hans á því sviði er lagið
Ghostbusters, titillag
samnefndrar kvikmynd-
ar sem nú fer mikinn
sigurgang um veröld
alla. Draugabanarnir
eins og Ghostbusters eru
nefndir upp á íslenska
vísu eru nú til sýnis í
Reykjavík sem og í
öðrum stórborgum
heimsins.
Parker hinn yngri er borinn og
barnfæddur í bílaborginni víöfrægu
þar vestra, Detroit, en þaðan eru
runnir margir knóir tónlistar-
menn. A sama tíma og Parker var
aö slíta barnsskónum í
Dexter/Davidson hverfinu í
Detroit voru the Temptations,
Diana Ross og George Clinton aö
gera slíkt hiö sama í næsta ná-
grenni.
Snemma beygöist hugur hins
unga Parkers til tónlistar. Og
vart stóö hann fram eöa aftur
úr hnefa er hann vann til verðlauna
í hæfileikakeppni á sviöi hljóðfæra-
leiks í heimaborg sinni. Þá lék
hann af innlifun á klarinett en
lagöi þaö hljóöfæri á hilluna
skömmu síöar er ungar meyjar
geröu aö honum gys. Þær bentu á
þá óþægilegu staðreynd aö
hljóöfæriö var stærra en sá sem á
því hélt. Þá sneri hann sér að
gítarnum enda samsvaraði þaö
hljóöfæri mun betur vexti Parkers
litla.
Og ekki reyndist Parker litli
lakari hljóöfæraieikari á gítarinn
en klarinettiö. Þegar á tánings-
árum var hann orðinn fastamaöur í
húshljómsveit eins virtasta nætur-
klúbbs Detroitborgar. Ennfremur
var Parker eftirsóttur undirleikari
á hljómplötur og má heyra hann
strjúka gítarstrengina á velflestum
meiri háttar Motown hljómplötum
um miöjan sjöunda áratuginn.
■K JHeöal þeirra sem Parker
■ «#lstarfaöi mikiö meö voru
■ W ■ smellasmiöirnir Holland,
Doizer, Holland, víðfrægir á
þessum árum. Og er þeir yfirgáfu
Motown, fylgdi Parker meö og þaö
eru hans fimu fingur sem heyra má
gæla við gítarinn í klassískum
smellum á borð viö Band Of Gold
og Give Me Just A Little More
Time, auk margra annarra
Holland, Doizer, Holland-smella.
Nú kemur til sögunnar Stevie
nokkur Wonder. Hann varð stór-
stjarna ungur aö árum. Og áriö
1972 er virðing hans orðin svo mikil
aö hann er beðinn um aö leggja
land undir fót meö ekki ómerkari
mönnum en Rolling Stones. Þekkt-
ist Wonder boöiö og hóaöi saman
nokkrum valinkunnum mönnum til
aö sjá um hljóðfæraslátt meö sér á
ferðunum. Gítaristinn var enginn
annar en vinur okkur Ray Parker
hinn yngri.
Eftir á var Parker spuröur hvort
þessi ferö heföi haft áhrif á hann
tónlistarlega, þaö er aö segja hvort
rokk og ról heföi upp frá þessu
spilað stærri rullu í tónsmíðum
hans en áöur. Parker svaraði af
alkunnri hógværð og kvaö svo ekki
vera enda heföi hann þekkt tónlist
Rollinganna um langa hríð og hefði
hún alltaf höföaö til sín.
Víkur nú sögunni vestur til
Hollywood þess alkunna
glaumbæjar. Þar settist
Parker hinn ungi aö eftir túrinn
með Wonder og Rollingunum. Og i
Hollywood var ekki slegiö hendinni
á móti jafnsleipum gítarista og
Parker og brátt var hann kominn á
fulla ferö í undirspili með mörgum
víöfrægum mönnum. Þar á meðal
voru Boz Scaggs, Barry White,
Labelle og fleiri. I hjáverkum
dundaöi Parker viö að semja lög
sem hann gaf síðan vinum sínum til
flutnings, lög eins og Keep On Doint
It, sem Herbie Hancock flutti, og
You Got The Love, sem Chaka
Khan geröi frægt. Parker hirti ekki
um aö flytja þessi lög sjálfur, hóg-
væröin sat í fyrirrúmi.
Ekki voru allir jafnhrifnir af
þessari hógværö Parkers og
meöal þeirra var öldruð móö-
ir hans. Hún haföi lengi haft ímug-
ust á tónlistarbrölti og öldurhúsa-
mennsku sonarins og fannst hann
vel geta glatt sig með því að láta nú
af því veröa aö flagga sinni fögru á-
sjónu framan á plötuumslagi, fyrst
hann var orðinn svona forframaður
í þessum bransa á annað borð.
Og aö sjálfsögöu varð Parker
hinn ungi við þessum óskum móöur
sinnar, annaö hvort væri nú. Hann
lét innrétta einkahljóðstofu fyrir
sig enda orðinn nokkuö loðinn um
lófana. Stofu þessa nefndi hann
Ameraykan Studio. Þar hljóöritaði
hann sína fyrstu breiöskífu,
Raydio, en á henni er aö finna
smellina Rock On, Two Places At
The Same Time og You Can’t
Change That. Þaö vakti sérstaka
athygli á þessari plötu aö Parker
hinn ungi lék á flestöll hljóöfæri
sjálfur og sá um útsetningar og
upptökustjórn að auki.
Aðspuröur kvaöst hann fíla
þetta best svona, hann þekkti því
miöur enga sem spiluöu eins og
honum líkaöi.
En Raydio varö ekki upphafiö
aö langri runu af breiöskífum
eins og margur gæti ætlaö.
Parker er hógvær sem fyrr og
hefur aöeins gefið út eina aöra
breiöskífu, Woman Out Of Control.
En hann hefur gefið út þó nokkrar
smáskífur og þekktust þeirra er aö
sjálfsögöu Ghostbusters.
Þaö lag varö annars til á þann
hátt aö Columbia Pictures, sem
framleiöir kvikmyndina Ghost-
busters, haföi á sínum snærum
heila hersingu af tónlistarfólki sem
fékk það hlutverk að semja lag
fyrir myndina. Ekkert laganna
hlaut náö fyrir eyrum forstjóranna
og þá var þaö aðstoðarmaður
nokkur sem þekkti Parker hinn
unga sem baö hann aö hlaupa undir
bagga. Parker skoraöist ekki und-
an frekar en fyrri daginn og veittist
þetta létt verk og löðurmannlegt.
Og í ofanálag hlaut hann heims-
frægö, en þaö er honum sama um.
-SþS-
BMUVd AVM ‘Uf KBMHVd AVd 'Mf
RAY PARKER JR. RAY PARKER