Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Síða 1
Alþýðubankinn með
hærri vexti en hinir
býður upp f 9% ofan á verðtryggingu og slær ríkinu við líka
Alþýðubankinn er nú í algerum
sérflokki í vaxtamálum. Hann býöur
allt að 157% hærri vexti á verðtryggð
innlán en nokkur annar banki. Meira
að segja 80% hærri en hann má hæst
taka af útlánum. Hæstu vextir
Alþýðubankans ofan á
verðtryggingu eru 9% og þar með
slær hann ríkinu við líka.
Af 3ja mánaða verðtryggðum
sparireikningum fá viöskiptamenn
Alþýðubankans 4% vexti, mest 2,5%
annars staðar. Af 6 mánaða
reikningum 6,5%, mest 3,5% annars
staðar. Mest borgar Alþýðubankinn
9% á verðtryggðan reikning, sem
bundinn er til tveggja ára, hvert
innlegg fyrir sig. Enginn annar
banki býður neitt slíkt.
Ríkissjóður býður nú 5—7% vexti á
verðtryggð spariskírteini sem
bundin eru í 3—5 ár. Einnig 9% vexti
á gengistryggð skírteini til 5 ára.
Þetta eru fastir, óbreytanlegir
vextir. Bankar geta hins vegar
breytt sinum vöxtum á 10 daga
fresti. En ætlar Alþýðubankinn að
lækka sína innlánsvexti?
„Heimildin er fyrir hendi. Við
leggjum áherslu á að breyta vöxtum
-sjá einnigbls. 26
sem sjaldnast og ef við breytum
vöxtum á næstunni verður það varla
fyrr en um mánaðamót. Við höfum
auövitaö ekki efni á að reka bankann
með tapi. Aftur á móti teljum við
okkur siöferðilega bundna af þvi að
fara vægilega í vaxtalækkun, reynist
hún nauðsynleg. Alls ekki niður fyrir
6% með hasstu vextina,” segir Stefán
Gunnarsson bankastjóri.
Nú er 4 og 5% vaxtaþak á útlánum.
Er hægt að borga 4,6,5 og upp í 9% á
innlánin? „Ekki til lengdar. Það er
hins vegar einnig dýrt að skulda
Seölabankanum, það er dýrara.”
Ætlið þið ef til vill meö peningana á
'verðbréfamarkaðinn? „Við höfum
ekki gert það enn, en það er ekki
bannað. Að vísu vildum við heldur
beita okkur gegn því braski sem þar
þrífst, en þaöer ekki bannað.”
-HERB.
„Þotta er ekki samkeppnl milli álversins og heilbrigðisþjónustunnar," sagfll landlæknír þegar byrjafl var afl bólusetja starfsmenn ólversin i við
inflúensu. Ólafur Jónsson lœknir sprautar einn starfsmanninn. DV-mynd K AE.
Álversmenn
sótthræddir:
Bólusettir
gegn norsku
flensunni
„Hér er komin löng biöröö af fólki
sem vill láta bólusetja sig en fyrirtækiö
bauð starfsfólki sínu upp á þessa þjón-
ustu,” sagöi Olafur Jónsson, læknir
starfsmanna álversins í Straumsvík,
en síðdegis í gær sprautaði hann lung-
ann úr starfsfólkinu gegn inflúensu
þeirri sem geisar í Osló. 1 álverinu
starfa milli sex og átta hundruö
manns.
„Hér er ekki um aö ræöa neina sam-
keppni milli álversins og heilbrigðis-
þjónustunnar,” sagði Guöjón Magnús-
son landlæknir í samtali við DV,
aöspurður um þetta. „Fyrirtækið
ákveöur þetta sjálft og á sinn kostnað.
Þeir panta því bóluefni sérstaklega frá
Lyfjaverslun ríkisins svo þetta er
viðbótarmagn.
Við gerðum fólki í svokölluðum
áhættuhópi að láta bólusetja sig og það
fólk gengur auðvitað fyrir. 1 þeim hópi
sem er eldra fólk, það er fólk komið yf-
ir sjötugt, fólk meö langvinna lungna-
og hjartasjúkdóma og einyrkjar. Það
komu nú hins vegar um sjö þúsund
skammtar af bóluefni til landsins, svo
það ætti að vera nóg fyrir alla.”
-KÞ
Skorturá
heimilislæknum
íReykjavík
— sjá bls. 2
JohnMcEnroe
bestur
sjá bls. 16-17
Því varBjarni
ekkiíþrótta-
maðurársins?
>.12
mm
Sovétleiðtoginn
veikur?
— sjá bls. 6
Þarfekkiað
merkja
brennivíniðlíka?
— sjá bls. 12
Hestamennska
— sjá bls. 14-15
Samsalan
fimmtug
— sjá bls.
25
Björgunarsveit
bjargarkindum
úrsjálfheldu
- sjá bls. 4
NærKasparov
jafntefli?