Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Page 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985.
SKORTUR Á HEIMIUS-
LÆKNUM í REYKJAVÍK
— reyntað
sinna öllum
bráðatilfellum
íheimahúsum
„Sannleikurinn er sá að það er skort-
ur á heimilislæknum í Reykjavík,"
sagði Lúðvík Olafsson borgarlæknir í
samtali viðDV.
Nokkuð hefur borið á því að fólk
kvarti yfir því að illa gangi aö fá lækni
heim til sjúkravitjana á þeim tímum
sem næturlæknir er ekki á vakt en það
er frá klukkan 17 til 8 á morgnana.
„Það er heilsugæslustöðvanna aö
halda uppi þessari þjónustu,” sagði
Lúðvík. „Þar er hins vegar oft á tíöum
skortur á fólki tii að sinna þeim skyld-
um. Þeir fáu sem þar starfa reyna þá
frekar að fá fólkið tU að koma til sín til
að nýta sinn tíma betur og geta þá
sinnt fleirum. Það er auðvitað reynt að
sinna öUum bráöatilfellum með því að
fara í heimahús. Ég var til að mynda
að fá skýrslu frá heilsugæslustöðinni í
Asparfelli og þar kemur fram aö 7,3
prósent aUra samskipta lækna og
sjúklinga á síðasta ári voru heimavitj-
anir.
Annars er þetta oftast samkomu-
lagsatriði miUi viðkomandi sjúklings
og læknis, það er hvort læknirinn fer til
sjúkUngsins eða öfugt.”
— Hvemig stendur á þessum
heimUislæknaskorti ?
„Eg held aö skýringin liggi fyrst og
fremst í því að uppbygging heUsu-
gæslustöðvanna hefur gengiö hægt.
Því hefur aðstaða fyrir þessa lækna
ekki verið sem skyldi og ekki freist-
andi fyrir unga menn að ganga að
þeim samningum er heimUislæknar
búa við. Svo hafa margir þeir er lært
hafa heimiUslækningar fariö út á land
þar sem aðstaðan er oft á tíðum betri
en hér á höfuðborgarsvæðinu,” sagði
Lúðvfc.
Hann sagðist þó vona að úr þessu
rættist á næstu tveimur árum en marg-
ir ungir læknar væru að nema heimiUs-
lækningar erlendis, ernkum í Svíþjóð.
Námið tekur f jögur og hálft ár eins og
annað læknasérnám.
-KÞ
ísland aftur á forsíður heimsblaða:
Fyrst reykingabann
— nú blessað veðrið
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DVí Belgíu:
Island var í annað sinn á þessu ný-
byrjaða ári á forsíðum dagblaða hér í
Belgíu í gær. Fyrst var það vegna
reykingabannsins en í gær var það
vegna veðurfarsins.
Fyrirsögnin í einu blaðanna hljóöaði
t.d. þannig: Heitasti bletturinn í
Evrópu er á Islandi. Segja blöðin frá
því að á meöan Evrópubúar séu aUir
að krókna úr kulda sé 10 stiga hiti á
tslandi. Þar fái enginn botn í þessa
góðu veðráttu sem sé þar nú í janúar
enda Islendingar öðru vanir á þessum
árstíma.
Mikill kuldi er hér í Belgíu eins og
annars staðar í Evrópu. Samgöngu-
erfiðleikar eru mikUr og mikill kuldi í
húsum enda þau ekki byggð fyrir
svona frosthörku. Sem dæmi um kuld-
ann hér í Lokeren þá náði einn hús-
ráðandi ekki að láta renna úr
baðkarinu hjá sér því frosið var í
leiðslunum. Þegar hann kom heim
síðar um daginn var vatnið í baðkarinu
frosiö. Segir það sína sögu um hversu
kalterhérnúna.
Á nóttunni sefur fólk kappklætt og
Islandspeysur seljast hér nú eins og
heitar lummur. Ekki mun þó þarna
vera um Islandspeysur aö ræða þótt
þær séu auglýstar sem slíkar. Munu
þær vera úr íslenskri ull en prjónaðar
erlendis. Eru þær seldar tun aUa
Belgíu á um 1500 franka sem er meira
en helmingi lægra verð en á peysum
prjónuðum á Islandi.
-KB/-klp.
Fisksjúkdómanefnd á fundi með ráðherra:
Óvíst hvort seiðunum
verður öllum slátrað
Jón Helgason landbúnaðarráðherra
boðaöi fisksjúkdómanefnd á sinn fund í
gær vegna seiðasýkingar hjá Sjóeldi
hf. í Höfnum.
Eins og greint var frá í DV í síðustu
viku hefur nýrnabaktería fundist í
laxaseiðum hjá Sjóeldi. Sýktu seiöin
voru í keri ásamt um þrjú þúsund
öðrum sem keypt voru í laxeldis-
stöðinni í KoUaf irði sl. sumar.
Hjá Sjóeldi eru um tuttugu og átta
þúsund seiði aUs, keypt frá Kollafirði
og Hólum í Hjaltadal.
Grunur leikur á að sýkingin komi f rá
KoUafirði.
Fyrir helgi lagði fisksjúkdómanefnd
fram tiUögur fyrir iandbúnaðar-
ráðherra þar sem tryggast er talið að
slátra öllum seiðum í laxeldisstöðinni í
Höfnum.
Beðið var ákvörðunar eða viðeigandi
ráðstafana þar til eftir boðaðan fund í
gærmeðráðherra.
„Það var fjallaö um vandann sem
hefur komið upp í eldisstöðinni,” sagði
Sveinbjöm Dagfinnsson, ráðuneytis-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, eftir
fundinn.
„Engin afgerandi ákvörðun var
tekin. Málið verður rannsakað áfram
og þegar frekari niðurstöður Uggja
fyrir verður tekin ákvörðun um hvað
gera skal. Þaö verður vonandi næstu
daga.”
Ef yfirvöld fyrirskipa seiðaslátrun í
eldisstöðvum eru tryggingafélög und-
anskiUn bótaskyldu. Kaupverð laxa-
seiðanna hjá Sjóeldi er á miUi sex og
sjö hundruð þúsund krónur. Sölu-
verðmæti framleiðslufisksins skiptir
mUljónumkróna.
-ÞG.
41. einvígisskákin í Moskvu fór íbið:
Karpov var nábegt sigri
En nú spá flestir jaf ntef li ef Kasparov teflir nákvæmt
Það var eins og Moskvu-búar
hefðu á tilfinningunni að eitthvað
myndi gerast i einvíginu í gær, því
skákhöUin var þéttskipuð áhorf-
endum. Þar voru menn Karpovs
greinUega fleiri því honum var
fagnað innilega er hann gekk í
salinn, eins og áhorfendur vUdu
segja: „Faröu nú að ljúka þessu
Anatólý!”
Og heimsmeistarinn virtist í víga-
hug er hann lék kóngspeði sínu fram
um tvo reiti í fyrsta leik, eftir langt
hlé. Leikurinn kom Kasparov á
óvart, sem hugsaði í 8 minútur og valdi
síöan Petrovs-vöm. Fór þar að dæmi
heimsmeistarans sem beittl þeirri
byrjun í 28. og 30. skák einvígisins.
Sikileyjarvömin þykir þó hæfa skák-
stíl áskorandans betur heldur en
þessi rólyndislega byrjun, enda fór
svo að Kasparov lenti í erfiöleikum.
Honum tókst þó að flækja taflið en
eftir þvingaða leikjaröð og mikil
uppskipti var Karpov kominn með
peði meira í endatafli. Þá virtist
stefna í sigur hans og þar með enda-
lok þessa maraþon-einvigis.
I framhaldi skákarinnar náði
Kasparov hins vegar mjög virkri
stöðu og gerði Karpov erfitt um vik.
Þeir lentu báðir i tímahraki og þá fór
frelsingi Karpovs á skrið. I 33. leik
héldu spekingar að hann gæti gert út
um einvígið með snoturri fléttu en
hún fór framhjá honum. Áhorf-
endur létu óspart í sér heyra í tíma-
hrakinu og skiptu sér lítt af leiftrandi
ljósaskilti með orðinu, ,þögn”.
Er skákin fór í bið á Karpov hrók,
riddara og tvÖ peð, en Kasparov,
hrók, biskup og eitt peö. „Sennilega
jafntefli, en ekki auðvelt fyrir
svartan,” sagði stórmeistarinn
Tajmanov. Flestír spá þó jafntefli
ef Kasparov teflir nákvæmt.
Hvítt: Anatoly Karpov.
Svart: Garrí Kasparov.
Petrovs-vöm.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Re4 5. d4 d5 6. Bd3 Be7 7. 6-0 Rc6 8.
c4!
Fyrr í einvíginu lék Kasparov 8.
Hel eins og algengast er. Karpov fer
ekki að ráðum hans heldur velur til-
tölulega ókannað framhald. E.t.v.
tekst honum að hleypa nýju blóði í
þessa jafnteflisbyrjun.
8. - Rb4 9. Be2 dxc410. Bxc4 0-011.
Rc3 Rd612. Bb3 Bf613. h3.
Hvitur hefur komið betur út úr
byrjuninni en þessi leikur er full
hægfara. Til greina kemur 13. Re5
13. — Bf514. Be3 He815. a3
Skák
Jón L. Ámason
15. — Rd3!?
Þama er stílnum rétt lýst. Til aö
gera leikinn enn hvassari stóð
Kasparov snöggt upp og hratt stóln-
um aftur á bak. Hins vegar er 15. —
Rc6 mun öruggari leikur og þá er
svartur reyndar ekki langt frá því að
jafna tafliö. Dortman og Tal töldu að
Kasparov hefði misreiknað fram-
haldið.
16. Hbl c5.
Annars á riddarinn djarfhuga ekki
afturkvæmt.
17. dxc5 Re418. Bc2!
A einfaldan hátt nær Karpov að
þvinga fram betra endatafl. Nú
höfðu báðir notað 1 klst. og 45
mínútur.
18. - Rxb2 19. Dxd8 Haxd8 20. Hxb2
Bxc3 21. Hxb7 Rxc5! 22. Bxc5 Bxc2
23. Hxa7 Bdl!
Snjall leikur. Karpov kemur ekki
hróknum i leikinn og á erfitt meö að
f<era sér umframpeðið i ny t.
24. He7 Hxe7 25. Bxe7 Hd3 26. Rg5
Bb2 27. Bb4 h6 28. Re4f5.
Kasparov átti nú aðeins lOmínútur
eftir á klukkunni én Karpov 22
mínútur. Karpov hefur náð að rétta
úr kútnum og þess er ekki langt að
bíöa að frelsinginn geti farið af staö.
29. Rc5 Hd5 30. Hel f4 31. a4 Hd4 32.
a5! Hxb4 33. Hxdl?
Karpov lék þennan leik án um-
hugsunar, enda átti hann nú aðeins 5
minútur eftir (Kasparov 6 mínútur).
Hann missir af mjög skemmtilegum
möguleika, 33. a6! og ef 33. — Ba4 34.
a7 Bc6 35. He6 Bd5 36. Hd6 á
biskupinn hvergí griðland og hvítur
vinnur. Ekki dugir heldur 33. — Hd4,
vegna 34. He8+ Kf7 35. a7 og vinnur.
Ef svartur neyðist til aö s vara 33. a6!
með 33. — Hb8 er hann kominn með
óvirka stöðu og hvítur ætti að vinna
létt.
33. - Bd4! 34. Re6 Ba7 35. Hd7 Hbl+
36. Kh2 Bxf2 37. Rxf4 Hal 38. Re6
Hxa5 39. Hxg7+ Kh8 40. Hf7 Be3 41.
Kg3
Biðskák. Kasparov (svartur) lék
biðleik.
Flökkukonan handtekin
sinn á Þingvöllum
í f jórda
Lögreglunni í Arnessýslu hafa borist
tilkynningar um að brotist hafi verið
inn í fimmtán sumarbústaöi við Þing-
vallavatn undanfarnar tvær vikur. I
öllum tilvikunum virðist sem útigangs-
fólk hafi verið að leita sér að svefnstað
yfir nótt og einhverju matarkyns til að
seðja hungrið.
„Þetta er fólk sem hvergi á höfði
sínu að halla, — fólk sem á í erfiðleik-
um með sjálft sig,” sagði Jón I.
Guömundsson, yfirlögregluþjónn á
Selfossi.
„Við höfum farið nær daglega til
Þingvalla undanfarið,” sagði yfirlög-
regluþjónninn.
Síðastliðinn föstudag handtók Sel-
fosslögreglan konu nokkra í sumarbú-
staðalandi. Þetta var í fjórða sinn sem
þessi sama flökkukona var handtekin
við Þingvallavatn á skömmum tíma.
Henni hefur verið ekið til Reykjavíkur
og sleppt þar lausri. Jafnharðan hefur
hún haldiö aftur austur í Þingvalla-
sveit. Hún er á fertugsaldri og talin
eiga við sálræna erfiðleika aðstriða.
Lögreglan hefur vitneskju um
annan mann sem verið hefur á flækingi
milli sumarbústaöa við vestanvert
ÞingvaUavatn. Ekki hefur tekist að
góma hann.
Bústaöir hafa lítið veriö skemmdir.
Helst að rúöa hafi verið brotin til aö
komast inn.
-KMU
Tilkynnt hefur verifl um innbrot í fimmtán sumarbústafli við Þingvallavatn
undanfarnar tvœr vikur.