Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Qupperneq 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985. Kindunum komifl fyrir á snjóþotum sem vélsleðar drógu til byggfla. BJÖRGUNARSVEIT BJARGAR KINDUM ÚR SJÁLFHELDU „Þaö er ótrúlegt aö kindurnar skuli hafa lifað þetta af. Þama er nánast enginn hagi enda voru skját- umar óskaplega illa á sig komnar,” sagði Baldur Pálsson, formaður Björgunarsveitarinnar Gró á Fljóts- dalshéraði, í samtali við DV en sveit- in bjargaði þremur kindum úr sjálf- heldu fyrir skömmu. „Ferðin var farin að beiðni oddvita Fljótsdælinga, Hjartar Kjerúlf, en hann haföi grun um að fé væri í sjálf- heldu á svonefndum Sultarrana,” sagði Baldur. Sultarrani afmarkast af Sultará að austan en Fellsá að vestan og er að þeim allmikið gil. Fé sem kemur af afrétt og lendir norðan á ranann teppist því við árnar. Þar er gróður nánast enginn en gil þessi eru illfær ef gerir bálku og harðfenni. ,,Við iögöum af stað snemma morguns á bílum og vélsleðum frá Egilsstöðum, en þetta er um 80 kíló- metra leið. Er við komum að gilinu héldum við niöur, búnir ísbroddum og klifurtækjum. Við fundum strax þrjár kindur, eina á og tvö lömb. Tókst fljótlega að ná þeim. Var ann- Björgunarsveitarmenn ýmist báru kindurnar upp gilið eða drógu þær. Það var mjög dregifl af skjátunum þegar komið var afl þeim svo að það tók stuttan tíma afl hand- sama þær. að lambið mjög sárfætt og holdafar vægast sagt afar lélegt á skepnun- um. Þurfti að draga féö eða bera upp úr gilinu. Þar var gengið frá því á snjóþotum. Ferðin heim gekk vel enda var veö- ur mjög gott þegar þetta var,” sagði Baldur. — En úr því bændur vissu af kindunum þarna, hvers vegna reyndu þeir ekki að bjarga þeim fyrr? „Þeir höfðu aðeins grun um aö ein kind væri þarna. Hún hafði verið á þessu svæði í fyrra og hittifyrra, en alltaf skilað sér sjálf heim fyrir jól. Þegar hún kom ekki nú fóru þeir sjálfir á vélsleða aö Sultarrana og sáu för í snjónum. Þaö var þá sem þeir báðu um okkar aðstoð. Það má segja að þetta hafi ekki síður verið gagnleg ferð fyrir okkur en bændur því þama fékk björgunarsveitin góða æfingu,” sagði Baldur Pálsson. -KÞ Heiðruð fyrir 50 ára starf Oddný Guöríður Eyjólfsdóttir, Skólavöllum 14 Selfossi, var nýlega heiðruð af Búnaöarfélagi Islands fyrir 50 ára veru sína hjá sömu hjónunum, að Læk í Holtum í Rangárvallasýslu. Gaf Búnaðarfélagið henni forláta klukku. Guðríöur er 74 ára og er eins og 45— 50 ára heimasæta, ekki nokkur hrukka í hennar andliti og eins og hún hafi stundaö íþróttir allt sitt líf. En ég spyr: Er þaö ekki besta íþróttin að þeir sem hafa heilsu geti unnið? Guöríður er ennþá hjá sömu hjónun- um, Margréti Eyjólfsdóttur, systur sinni, og Sigfúsi Davíðssyni. Eru þrjú ár síðan þau fluttu á Selfoss. SíðastÚðið sumar fóru aldraöir borg- arar til Snæfellsness. Þá fóru systum- ar með og komu við á bemskuheimili sínu, Áiftárstekki, sem nú er komið í eyöi. Þar skoðuðu þær búið sitt sem var ósnert eftir allan þennan tíma. Sagði mér kona, sem kom í heimsókn í gær, að dásamlegt heföi verið að sjá gömlu konurnar skoða bemskuminjar sínar. Þaö var Inga Bjarnadóttir forstöðu- kona sem tilkynnti í opnu húsi sl. fimmtudag að Guöríður hefði verið heiömð af Búnaöarfélaginu. Var síðan hrópað ferfalt húrra fyrir Guðríði. Annars var vísa dagsins í opnu húsi á þessaleið: Mér er kært aö koma hér, kæti fært það hefur mér. Met ég stærst hvað manndáð er, og man og lært hvað þakka ber. Það var Guðmundur skósmiður sem þetta orti. Regína/Selfossi. Ennframkvæmda- stjóralaustáNT Enn er framkvæmdastjóralaust á NT eftir að Sigurður Skagfjörð hætti þar störfum í byrjun mánaðarins. Hákon Sigurgrímsson, stjórnarfor- maður NT, sagöi í samtali við DV að þeir væm að ræða viö ýmsa menn vegna starfans. Hver hlyti hnossið myndi væntanlega skýrast í lok vik- unnar. -KÞ í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Eins og kunnugt er af fréttum úrskurðaði Kjaradómur um laun æðstu embættismanna hins opin- bera. I þeim hópi voru hæstaréttar- dómarar, ráðherrar og þingmenn ásamt með minni spámönnum svo sem ráðuneytisstjórum forstjórum ríkisstofnana og öðrum glansnúmer- um hjá ríkinu. Niðurstaða Kjara- dóms var sú að þessir hávirðulegu og þýðingarmiklu máttarstólpar skyldu fá allt frá 25 upp í 30% kauphækkun. Þingmenn fengu þó sýnu hæst, eða 37% launahækkun frá fyrsta nóvember. Undarlega hljótt hefur verið um þennan kjaradóm og verður sú þögn ekki skilin öðruvísi en svo að almenningur telji þetta réttláta niöurstöðu og sanngjarna sem mennirnir eigi meira og minna skilið. Er gott til þess að vita að stétt- vísi hins óbreytta launamanns sé komin á það stig að hann skilji loks tilgang þeirrar kjarabaráttu sem fæst með verkföilum hjá einum en kjaradómi hjá öðrum. Meðalmaðurinn hjá BSRB, sem þraukaði í verkfalli í nær fjórar vikur í haust, náði í krónutölu aUt upp í f jögur þúsund króna hækkun og taldist góður. Ráðherrann, sem ekki Verkfallið bar árangur þarf að fara í verkfall og má það ekki heldur, fær að manni skilst allt upp í tuttugu þúsund króna hækkun og þingmennirnir um fimmtán þúsund krónur. Þetta hefur aUt verið nákvæmlega tíundað í fréttum án nokkurra mói- mæla eða refja enda í fuUu samræmi við þá stétta- og kjarabaráttu sem felst í því að fleyta rjómann ofan af meðan pupullinn blæðir. Nú er þess að minnast að bæði ráð- herrar og meiri hlutinn á alþingi hélt uppi einhverjum slettirekuskap þegar kjaradeUan við BSRB stóð sem hæst og ríkisstjórnin streittist lengi við að semja. Var því haldið fram, að pólitíkusarnir heföu ekki vUjað ganga tU samninga af því að kröfurnar hafi verið of háar. Nú kemur í ljós hið gagnstæöa. Þeir hafa náttúrlega verið á móti samn- ingum af því að þeir voru ek'ki nógu háir. Þeir vUdu meira enda minnast menn þess að ríkissjóði stóð upphaf- lega til boða að ganga að sáttatillögu sáttasemjara upp á 10% launa- hækkun. Sú tillaga var kolfeUd í rik- isstjórn og að lokum var samið upp á 20 til 25% kauphækkun. Sjá nú allir af hverju. Það er ekki ónýtt fyrir illa haldna þjóðfélagsins að hafa tuttugu þús- ráðamenn og máttarstólpa und krónur upp úr krafsinu, með því einu að etja skrUnum í verkfall, kauplausum og kjökrandi, og hirða síðan allt sitt á þurru þegar upp er staðið. Kenningin um f íflið og foraðið er enn við lýði á íslandi og hefur ekki í annan tíma sannað betur gUdi sitt. Ennþá einu sinni hefur það komið í ljós að verkföU eru ekki háð fyrir þá sem í þeim standa. Alveg eins og stríðin forðum, þar sem fótgöngulið- unum var att út á blóðvöUinn í þágu keisarans og föðurlandsins, er hinum óbreyttu launþegum ætlað nú til dags að heyja sitt launastríð fyrir aðra. í stað keisaranna eru komnir ráðherrar og þingmenn og í stað fööurlandsins höfum við Kjaradóm, sem á sér sitt föðurland i þeim afrakstri og samn- ingum sem fótgönguliðarnir í BSRB og ASt skrifa undir í blóði, svita og tárum kjarabaráttunnar. Sú fórnar- lund sem Kristján Thorlacius og hinar stríðandi sveitir hans sýndu i launaleysinu í október hefur nú loks uppskorið þann ríkulega ávöxt að ráðherrar og þingmenn taka nú við launahækkun sem nemur mánaðar- launum fótgönguliðanna. Svona eiga stríöin aö vera. Segi menn svo að verkfallið í haust hafi verið háð tU einskis! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.