Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985. 11 Þriðji heimurinn og við Við neyðumst til að trúa tölum og upplýsingum alþjóðastofnana um 3. heiminn: Tugmilljónir deyja eða örkumlast vegna hungurs og næring- arskorts á hverju ári, tugþúsundir deyja í styrjöldum og skærum, milljónir gerast flóttamenn og um 10.000 manns deyja árlega vegna iðnaöarmengunar og eiturefna. Allt stendur þetta í æpandi mótsögn við nokkra velmegun iðnrík janna. Allar úrbætur sem máli skipta hljóta að taka rnið af orsökum hörm- unganna í 3. heiminum. Skoðanir eru skiptar um þær og einnig um það hverjar þeirra séu þungvægastar. Mestu ræður hvort hagsmunir og for- dómar móta skoðanir fólks eða þá eigin orð fræðimanna og ráðamanna 3. heimsins. Hagsmunamenn í iðnríkjunum halda oftast á lofti skýringum af þessu tagi; Ráðamenn i 3. heiminum eru spilltir; alþýða 3. heimsins er fáfróð og löt; 3. heims ríkin skortir tækni og athafnamenn (þ.e. menn sem stofna fyrirtæki til þess aö geta lifað af annarra vinnu); frumstæð trúarbrögð sundra 3. heims ríkjunum. Margir, sem ekki hafa neinna teljandi hagsmuna að gæta í 3. heiminum, taka undir þess- ar skoðanir. Þar er kominn sá stóri hópur sem hefur fordóma gagnvart 3. heiminum, gjarnan í bland viö meðaumkun og dálítinn hjálparvilja. Eg tel minnihluta Islendinga fylla þann flokk sem tekur skýringar 3. heimsins sjálfs gildar í meginat- riðum: Nýlendustefnan, skjót frelsun márgra ríkja, handahófs- landamæri, áframhaldandi arðrán (lágt verð á útflutningi 3. heimsins, en hátt á innflutningi frá iðn- ríkjunum) og þvinguð einhæfni í framleiðslu ríkjanna. Hér fer ekki tilraun til að hreykja sér hátt, heldur staðreynd. Rök fyrir því að kenna heims- valdastefnu og auðhyggju í aðalat- riðum um eymd í fjölmörgum 3. heimsríkjum eru margþætt. Þau taka ekki einungis til sannferðugra upplýsinga um ofangreind atriði, heldur verða þau líka að viðurkenna bresti 3. heimsins (sem notaðir eru til að búa til afstöðu meginhlutans) og sanna að þeir geti ekki vegið þungt. Sjónvarpsþættir Basil David- sons um Afríku eru dæmi um hve mikið og mikilvægt verkefni þetta er, — og erfitt! Viðbrögðin hér Islensk alþýða og sérstaklega þá verkalýðshreyfingin hefur ekki verið vakandi fyrir vanda 3. heimsins. Stjórnvöld hafa eðlilega verið enn aftar á merinni: Framlag ríkisins til 3. heimsins er lægra hér (miöað við þjóðarframleiðslu) en í flestum iðn- ríkjum. Það þarf helst stórslys eða mikla hungursneyð til að hrista upp í okkur. Og félagshyggjufólkið á þar e.t.v. mesta skuld að gjalda, þegar á heildina er litið. Þar er sjaldnast um forgöngumenn að ræða. Vissulega er kennsla í útgerð mikilvægt framlag, ef ekki fylgir kvöð um að íslensk fyrirtæki geti hafið gróðastarfscmi í löndum 3. heimsins. Vissulega eru safnanir Rauða krossins og Hjálpar- stofnunar kirkjunnar góðra gjalda verðar, ef komið er í veg fyrir að þær séu nýttar í pólitískri refskák og þess minnst að þær eru aðeins smyrsl á sár en engin lækning. Vissulega má vinna þarft starf við trúboðsstöðvar, ef virðing er borin fyrir trú og siðum manna, sem hafa jafngild trúarbrögð og kristnir menn, þrátt fyrir sjálfsupphafningu og staðhæfingu þeirra krístnu um hiö gagnstæða. Vissulega er gagn að stuðningshreyfingum við einstök ríki, ef þær eru ekki stofnaðar í pólitísku eiginhagsmunaskyni og ekki bundnar við einn eða fáa flokka. En þetta er ekki nóg. Tvö dæmi Hér skulu nefnd til tvö dæmi um hjálparstarf sem betur mætti fara. Annaö varðar ríkisvaldið, hitt tvö stríðshrjáð ríki: E1 Salvador og Afganistan. 1) Þriðja heims ríkin þarfnast viðskiptaaðila sem ekki leitar eftir skjótfengnum gróða, heldur aðila sem lætur 3. heims ríkin ákvarða hvaðkeypt skuli og tekur við hagnaði til jafns við þau. Almenningur á Islandi á að gera kröfu til ríkis- valdsins um allt að 10—20 falt hærri upphæð en nú til verkefna í 3. heiminum á sviði jarðhita, fiskveiða og landbúnaðar. Slíkt gæfi af sér minni hagnað en fjárfesting í of- hlöðnum iðnríkjum en alþýöa manna er væntanlega tilbúin til að umbera það. Annað eins gerir hún á heima- velli! Þetta er árangursríkasta aðstoðin við3. heiminn. 2) Svo eru það ríkin við fætur beggja risaveldanna. Þegar eftir innrásina í Afganistan reyndu kommúnistar (já, kommar) aö mynda breiðfylkingu allra stjórn- málaflokka (sem hafa að lokum allir fordæmt aðgerðir Sovétmanna í landinu). Okkur mistókst, ekki hvað sist vegna þess aö flestir flokkanna vildu blanda öllum skollanum í málið. Sjálfstæðisflokkurinn neitaöi samvinnu vegna þess aö samvinnu- boðendurnir voru marxistar — en þeir eiga víst allir heima í Kreml (eða Peking — eða núorðið kannski bara Kreml?). Núna nota sjálf- stæðismenn Afganistan sem áróður- verkfæri í heimabaráttunni. Þeir kalla Babrak Karmal og kó marx- ista, hæla þjóðfrelsishreyfingunni (sem inniheldur bæði marxista og múslimska ofsatrúarmenn svo dæmi séu nefnd) og fordæma rettilega annað risaveldið. Reyndar nær stuöningurinn ekki lengra en til heimboöa manna frá Afganistan með réttan stimpil og orða á pappír. Auðvitað vantar breiðfylkinguna og beinan stuðning! En Sjálfstæðis- flokknum er eigið skinn og stríðið við einhvem imyndaöan einsleitan marxisma heilagt. Og hvað gera vinstri menn. Þeir fara kurteisisorðum um stríöið í Afganistan og ekkert meir. Þrjár milljónir flúnar og 7—800 þús. dauðar duga ekki til að lyfta þeim upp á aðgeröaplanið. Eða er þaö virðing fyrir sérhagsmunarisanum sem kúventi frá sósíalisma? Þeir eiga sér hins vegar sitt „Afganistan”. Það er smáríki undir jámhæl Bandaríkjanna; eitt af tugum ríkja sem risaveldið hefur fótum troðið. Um þau segir Morgunblaðið fátt nema hvað ekki megi bera saman Afganistan og E1 Salvador (og er það rétt um margt). En Guatemala, Grenada eða Víet- nam .. . Engin fortíð getur vakið óbragð á tungu þeirra sem styðja annað risaveldið. En flestir vinstri menn kunna sama „trixið”. Þeirra gleymda stríð er t.d. í Kampútseu og fyrir þeim er fjöldadráp A- Þjóðverja, Sovétmanna, Kúbana og S-Yemena í Eþíópíu liklega ,,al- þjóðlegt bræðralag”. Þeir hafa sér þó til varnar að hafa náð að mynda stuðningsnefnd við E1 Salvador sem nær út fyrir einn stjórnmálaflokk. En Mið-Ameríka dugar ekki sem viðfangsefni og risaveldin eru tvö. ARITRAUSTI GUÐMUNDSSON, KENNARI, MENNTASKÓLANUM VIÐ SUND Viðbárurnar Gömlu viðbárurnar duga ekki. Það er rétt aö Islendingar geta ekki haldið uppi virku stuðningsstarfi við þjóðfrelsismenn hvarvetna í heiminum. En þeir eru nú að velja sér hörmungar til að vinna gegn eftir eigin hagsmunum! Það er rétt að ekki eru öll stríð ranglát og ekki allar innrásir fordæmanlegar; meðan þær leiða ekki til afnáms á sjálfræði þjóða. En innrásin í Grenada var ekki af þeiri tegund, Morgunblaðsmen, og stríðið í Eritreu er a.m.k. jafnmikilvægt og átökin í E1 Salvador, þið Þjóðvilja- menn! Og svo framvegis. Fyrr en upp rís stuðningshreyfing við baráttu 3. heimsins gegn báðum risaveldunum, og höfðar til fylgis- manna margra flokka, verður starf að þjóðfrelsismálum í 3. heiminum tómstundagaman eða grár hrá- skinnsleikur flokkspólitíkurinnar. Það eru til allmargir vinstri menn og kommúnistar sem eru andsnúnir báðum risaveldunum. Þeir gætu átt næstaleik. Ari Trausti Guðmundsson. Stöðva verður misréttið í eigna- og tekjuskiptingunni Alþýðuflokkurinn hefur sett fram þá kröfu að stöðvuð verði sú látlausa tekjutilfærsla sem einkum á undan- förnum 1—2 árum hefur átt sér stað frá launafólki til fjármagnseigenda. Tekjutilfærslan hefur verið svo mikil að framfærslubyrðin er að sliga fjölda heimila i landinu og hefur lagt rekstrargrundvöll margra þeirra í rúst. Alþýðuflokkurinn telur að það sé grundvallaratriði að jafna eigna- og tekjuskiptinguna í landinu sem er forsenda fyrir því að ná fram þjóðfélagslegu réttlæti og þjóðar- sáttum um nýjar leiðir til bættra lífs- kjara. I þessari grein ætla ég einungis aö draga fram þrjú mikilvæg atriði í þeirri stefnu sem Alþýöuflokkurinn hefur sett fram til aö ná þessum markmiðum. Tekjuskiptingin 1 apríl 1980 var samþykkt þings- ályktunartillaga frá þingmönnum Alþýðuflokksins um að könnun skyldi fara fram á tekjuskiptingu og launakjörum í þjóðfélaginu sem mætti verða grunnur að sann- gjamari tekjuskiptingu og hag- kvæmara launafyrirkomulagi. Þessi úttekt átti sérstaklega að miðast við að gera grein fyrir hvort vissir hópar hefðu ekki öðlast þá hlutdeild bætts þjóöarhags sem almennt getur talist réttmæt og þannig unnar að á grund- velli þeirra mætti ákveða hvaða aðferðum hægt væri að beita til að auka laun og tekjur þeirra ein- staklinga eða hópa sem verst eru settir. Sett voru fram 12 atriði er upplýsa átti í könnuninni og nefni ég aðeins þrjá þeirra. 1. Að upplýsa hlutfall hinna ýmsu launakerfa í launakjörum almennt þannig að hægt væri að sjá hvaða þáttur launakjara sé mest ákvarð- andi um launakjör hverrar starfs- stéttar, svo sem dagvinnutaxtar, yfirvinnutaxtar, afkastahvetjandi launataxtar, yfirborganir og aðrar duldar greiðslur eða kjaraþættir, svo og að upplýsa hvemig aldurs- og kynskipting væri eftir launatöxtum, yfirborgunum og starfsgreinum. 2. Að athuga hvort uppbygging launataxta og annarra launakjara kalli fram mismun í kjörum karla og kvenna. 3. Að kanna hvaða möguleikar felast í tilfærslukerfum ríkisins, t.d. skatta- og almannatrygginga- kerfinu, til að jafna tekju- skiptinguna og stuðla að aukinni hlutdeild láglaunafólks og annarra minnihlutahópa í vaxandi þjóðar- tekjum. Tvöfalt launakerfi Alkunna er að við búum við tvöfalt launakerfi. Annars vegar kauptaxt- ana sem samið er um við samninga- borðið sem láglaunafólkiö þarf að lifa af og hins vegar er stór hluti tekjuskiptingarinnar í þjóðfélaginu ákvarðaður einhliöa af atvinnu- rekendum eftir þeirra eigin geð- þótta. Af því má sjá að meira er til skiptanna en atvinnurekendur vilja vera láta við samningaborðið. Þessi þróun hefur tvímælalaust orðið til þess að láglaunahópamir hafa orðið undir í kjarabaráttunni, ekki síst konurnar. Því taldi Alþýðu- flokkurinn mikilvægt að fá fram slíka úttekt eins og hér hefur verið lýst, þannig að hægt væri að beita raunhæfum aðgerðum til að bæta kjör láglaunahópanna í þjóðfélaginu. Svo bregður við að þó 4 ár séu liðin frá því að þessi þingsáiyktunartil- laga var samþykkt hefur fram- kvæmdavaldið ekkert aðhafst í málunum. Nokkur von virðist þó að úr rætist og að þessi þingsályktunartiilaga Al- þýðuflokksins komist til fram- kvæmda því síðustu vikumar hefur formaður Sjálfstæðisflokksins tekið undir þá kröfu Alþýðuflokksins að nauðsyn beri til að úttekt fari fram á tekjuskiptingu og launakjörum í þjóðfélaginu. Skattsvikin Alþýðuflokkurinn hefur lagt á það gifurlega áherslu á undanförnum árum að stóraukið yrði allt eftirlit og aðgerðir gegn skattsvikum. Á fyrri hluta síðasta árs voru síðan samþykktar tvær þings- ályktunartillögur frá þingmönnum Alþýðuflokksins. I fyrsta lagi um aö úttekt yrði gerð á umfangi skattsvika og í hvaða at- vinnustéttum og atvinnugreinum skattsvik eigi sér helst stað. Starfs- hópur hefur þegar verið skipaður sem hefur þetta verkefni með höndum. I öðru lagi var samþykkt ítarleg þingsályktunartiliaga frá Alþýðu- flokknum um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum. Meginefni þeirrar tillögu var eftirf arandi: 1. Stofnuð verði sérdeild við Sakadóm Reykjavíkur sem tæki til meðferðar: Skattsvik, bókhaldsbrot, gjaldeyrisbrot, faktúrufalsanir, verðlagsbrot og fleira. 2. Fjölgun og sérhæfing skatt- rannsóknarmanna. 3. Hert viðurlög við bókhalds- brotum og beitingu sjálfvirkra sekt- arákvæða í auknum mæli. 4. Breyting á bókhaldslögum er tryggi gleggri og áreiðanlegri fylgiskjöl. 5. Breyting á lögum um tekju-og eignarskatt, er tryggði fjölþættari upplýsingar um fyrirtæki og ein- staklinga í atvinnurekstri, sér- staklega að því er varðaði frádrátt frá tekjum þar með talinn risnu- kostnað, bifreiðafríðindi, launamat o. fl. og endurskoða fyrirkomulag söluskattskerfis, einkum með fækkun undanþágu í huga. 6. Aukin hagræðing á tölvu- væðingu og upplýsinga úr úrvinnslu gagna. 7. Stóraukið verði allt fjármagn til skattrannsókna og margfaldaöur yrði fjöldi skattframtala fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri sem ítarlega athugun fengju hjá skatta- eftirliti árlega. Hér er á ferðinni mjög mikilvægt mál þegar líkur eru að því leiddar að skattaundandráttur nemi mörgum milljörðum króna árlega. Miöað við þær forsendur sem gefnar haf a verið má áætla að til að mynda á árinu 1983 hafi skattaundandráttur numiö 5,3 milljörðum kr. og eru þá sölu- skattssvikin ekki meðtalin. Hér er um að ræða 33% af áætluðum heild- artekjum rikissjóös á árinu 1984. Þingmenn Alþýðuflokksins munu fylgja því fast eftir að tillaga sú sem samþykkt var á Alþingi og áður er greint frá komist til framkvæmda því í skattsvikum liggur eitt hrika- legasta misréttið og ein helsta mein- semdin í þjóðfélaginu. Eignarskattsauki á stóreignamenn A Alþingi er nú til meðferöar tillaga frá þingmönnum Al- þýðuflokksins um að leggja eignarskattsauka til tveggja ára á JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR ÞINGMAÐUR FYRIR ALÞÝÐUFLOKKINN stórfyrirtæki og stóreignamenn. Því fé sem þannig fengist (um 1 milljarður á ári) leggur Al- þýðuflokkurinn til að varið verði til að gera stórátak í húsnæðismálum unga fólksins. Á meðan unga fólkið berst í bökkum og vinnur myrkranna á milli til að koma sér upp húsnæði er aug- lýst að í skjóli verðbólgugróöa hafi mikill gróði og eignir safnast á fárra manna hendur, sem best sést á því að 2—3 tugir einstaklinga eiga eignir sem metnar eru á 600 millj. kr. og sumir þeirra skattlausir. Þannig var Ld. um einstakling sem átti eign upp á 35 millj. en greiddi engan tekjuskatt og nýttist 29.500 persónuafsláttur að fullu upp í greiðslu eignarskatts. Á sama tíma er það ekki óalgengt dæmi hjá þeim sem nú eru aö eignast þak yfir höfuöið að þurfa að standa undir 20—25 þús. kr. greiðslubyrði á mánuði vegna afborgana og vaxta af húsnæðislánum. Þessi fjármagnstil- færsla, sem hér hefur verið lýst, á því fyliilegaréttásér. Krafa Alþýðuflokksins er að ráðist verði af hörku gegn sívaxandi misrétti í eigna- og tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Jóhanna Sigurðardóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.