Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Síða 12
12
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985.
Spurningiri
Kaupir þú
hijómplötur?
Sigurbjörg Ámundadóttir bankastarf s-
maður: Ég kaupi ekki mikið af plötum,
ætli ég kaupi ekki svona 1—2 á ári. Það
fer nú kannski að aukast núna því ég er
búin að fá mér hljómflutningstæki.
ína Gissurardóttir, starfskona
Kvennalistans: Eg kaupi bara hljóm-
plötur þegar ég er erlendis. Þær eru
mikiu ódýrari þar heldur en hérna
heima.
Holberg Másson kerfisfræðingur: Já,
ég er nýbyrjaður á því. Ég hef fram að
þessu aöeins átt segulband.
Einar Vilhjáimsson tollvörður: Ég
geri litið að því að kaupa hljómplötur.
Þó hef ég mikinn áhuga á tónlist. Þaö
er svo margt annað sem þarf aö kaupa.
Guðmunda Þorsteinsdóttir nemi: Nei,
ég kaupi lítið af plötum því þær eru svo
dýrar. Ég á samt nokkrar plötur, aðal-
lega þungarokk.
Lóa Helen Óladóttir nemi: Ég kaupi
mér plötur þegar ég á peninga. Þá
kaupi ég þær plötur sem vinsælastar
eru á hverjum tíma og svo auðvitað
plötur með Peter Gabriel.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„Þörf fyrír merking-
ar á áfengisflöskuP’
Kona að norðan skrifar:
I DV fimmtudaginn 3. janúar er
viðtal við Albert Guðmundsson um
merkingar á vindlingapökkum. Þar
segir hann að ef landlæknir getur
sannaö það sem á pökkunum stendur
muni ríkið hætta aö selja tóbak. Það
vita allir að reykingar eru mjög
skaðlegar en þó tel ég að reykingar
séu hreinn barnaleikur miðað við
áfengi og allt sem því fylgir. Hér á ég
ekki við þá sem nota áfengi í hófi en
því miður er sá hópur í miklum
minnihluta. Það verður enginn
vitlaus af því að reykja en það er
hrikalegt hvemig vín fer með fólk og
ekki bara þá sem vínsins neyta
heldur bitnar þetta einnig á aöstand-
endum.
Ég tala af reynslu því ég er gift
alkóhólista og þekki margar fjöl-
skyldur sem eiga við áfengisvanda
að stríða. Þetta er hreint og beint
grátlegt að sjá hvernig þetta fer meö
fólk. Að mínu mati er alveg eins
mikil þörf fyrir merkingar á áfengis-
flöskur eins og á vindlingapakka.
Vínið er mun meiri skaövaldur.
Það væri fróðlegt aö fá aö vita hve
margir deyja árlega af völdum
áfengis og hve margir lenda í slysum
sem rekja má til áfengisneyslu. Það
mætti vera meira um áfengismál í
fjölmiðlum og hér á ég ekki við bein-
an áróður heldur viðtöl við óvirka
alkóhólista og aðstandendur
drykkjumanna. Fólk sem ekki hefur
lent í drykkju gerir sér nefnilega
enga grein fyrir hvert vandamáliö er.
Aö lenda í ofdrykkju getur komið
fyrir alla,Iíkaþig.
„Vín er mun meiri skaflvaldur en tóbak," segir kona m.a. í grein sinni. Hún hvetur til þess að áfengis-
flöskur verði merktar líkt og sigarettupakkar.
„ÞVi VAR BJARNI
EKKIÍÞROTTA-
MAÐUR ÁRSINS?”
Herdis Sörensen skrifar:
Ég vil mótmæla kjöri „íþróttamanns
ársins”. Mér finnst siðferðilega rangt
að láta Bjarna Friðriksson ekki njóta
þess heiðurs. Vorum við annars ekki
heppnir, Islendingar, að fyrir leyndan
áhuga eins fréttamanns DV á júdói var
hann staddur á staðnum þegar Bjarna
tókst að krækja sér í OL-verðlaun fyrir
Islands hönd eftir 28 ára hlé? (Það sást
ekki einu sinni frá verðlaunaafhend-
ingunni í sjónvarpinu). Mér þótti sem
Islendingi afskaplega vænt um er ég
heyrði í morgunfréttum útvarpsins um
afrek Bjarna á þessum ólympíuleik-
um. Meira að segja fylltist ég miklu
þjóðarstolti og var hreykin af því aö
vera íslensk. Ég var örugglega ekki
ein um þaö.
Þetta sama gerðist í sumar er ég fór
á landsleikinn Island-Wales. Þá var ég
„Duran Duran
eru bestir”
Duran Duran aðdáendur skrif a:
Við viljum hér koma með þá tillögu að
Duran Duran aðdáendur taki sig til og
fari á hljómleika með hljómsveitinni.
Ef ferðaskrifstofur byðu slíka ferð
erum við vissar um að slegist yrði um
miðan a .m.k. myndum við gera það.
Ef marka má lista rásar 2 yfir árið
voru þrjú lög með Duran Duran í sex
efstu sætunum. Þetta finnst okkur
góður árangur þó auðvitað gæti hann
verið betri. Það hefur verið farið í ferð
á hljómleika með Queen og David
Bowie. Því ekki með Duran Duran?
Þeir eru bestir
hreint að rif na úr monti. Þar lék núver-
andi íþróttamaður ársins með og skilst
mér aö þetta sé eini leikurinn sem
hann lék fyrir Islands hönd á árinu
1983 og stóö hann sig að mínu mati
engu betur en hinir landar mínir. I
Þýskalandi er hann ekki að skora fyrir
Island heldur fyrir lið sitt þar og pen-
inga. Það skiptir kannski ekki máli
nema í þessu tilfelli, þar sem við eigum
sannar hetjur til aö fá þessi verölaun,
t.d. Bjama og Einar Vilhjálmsson.
Ég beini mótmælum mínum til
þeirra íþróttafréttamanna sem sáu sig
knúna til að mæla með núverandi
íþróttamanni ársins og vil að þeir láti
koma fram hvaö hann hafði fram yfir
Bjarna sem réttlætir þessa ákvörðun.
Þiö, þessir íslensku íþróttafréttamenn,
sem ákváðuð þetta: Skammist þiö
ykkar ekki gagnvart Bjarna Friðriks-
Hordísi finnst afl velja heffli átt
Bjarna Friðriksson iþróttamann
ársins.
syni?
Vandiðvalið næst.
P.S. Ég vil taka fram að ég hef
ekkert fylgst með júdó gegnum árin en
er mjög mikill fótboltaaðdáandi.
Tónlist
ísjónvarpi
Kristinnhringdi:
Mig langar að beina þeirri fyrirspum
til sjónvarpsins hvort sýna eigi
sjónvarpsþátt með hljómsveitinni
Frankie goes to Hollywood eins og
sýndur var þáttur með Duran Duran á
dögunum. Ég veit að slíkur þáttur var
sýndur í Bretlandi ekki alls fyrir löngu.
Einnig væri gaman að sjá Blue Jean
myndina meðDavid Bowie.
Að lokum vil ég mótmæla þeirri
gagnrýni sem heyrst hefur aö undan-
fömu um lélegt kvikmyndaval sjón-
varpsins. Myndir þær sem sjónvarpið
sýnir eru mjög góðar að mínu mati.
DV hafði samband við Hinrik Bjarna-
son hjá sjónvarpinu:
,,Það er enginn tónlistarþáttur á borö
við Duran Duran þáttinn á dagskrá
sjónvarpsins á næstunni. Hins vegar
gætu lög með þessum flytjendum
hugsanlega birst í Skonrokki. En það
er erfitt að segja nákvæmlega fyrir um
hvað verður í þeim þáttum því þetta
er efni sem okkur berst frá degi til
dags. Við grípum það sem okkur gefst
af þessu tónlistarefni hvort sem þar er
um að ræða einstök lög eða þætti á borð
við Duran Duran hljómleikana. ’ ’
Ósanngjarn útgerðar-
kostnaður sjómanna
Sjómannskona hringdi:
Ég ætla að taka undir orð sjómanns-
konu sem lét í sér heyra á lesendasíðu
DV fyrir skömmu. Hvaða sanngirni er
í því að sjómenn greiði 10% af launun
sínum í útgerðarkostnað? Þetta eru
menn sem vinna mikið og eru þar að
auki mikið fjarri heimilum sínum.
Launin eru heldur ekkert til að hrópa
húrra fyrir og mjög á reiki hvað
sjómaður fær í mánaðarlaun.
Ég hvet sjómannskonur til að taka
höndum saman og mótmæla þessu
óréttlæti. Það er tilgangslaust að sitja
heima með hendur í skauti. Það vinnst
ekkert með því.
Duran Duran afldáendur hvetja til þess afl farinn verfii hópferfl á hljómleika
mefl goflunum.