Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985. 15 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Okkar besti ambassador „Hér á landi eru líklega um 15 þúsund manns sem stunda hesta- mennsku. Síöustu þrjú til fjögur ár hefur fjöldi þeirra aukist um þrjú þúsund,” sagði Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri Landssambands hestamanna, í viðtali við DV. I könnun sem gerð var í grunnskól- um á höfuðborgarsvæðinu kom í ljós að fimmti hver unglingur stundaði hesta- mennsku reglulega. Það er ljóst aö hestamennska á Islandi á vaxandi vinsældum að fagna. Nú um þessar mundir er talið að í landinu séu um 52 þúsund hross. Reyndar eru hestamenn sammála um að nauösynlegt sé aö grisja þennan fjölda. Of mikið af hrossum ógnar beitarþolilandsins. En framtíðin blasir við hestamönn- um. Nú eru miklar vonir bundnar við væntanlega reiðhöll sem að öllum líkindum verður reist í Reykjavík. Þar er gert ráð fyrir að aðstaða verði fyrir sýningar á íslenskum gæðahestum. Einnig aö þar verði aðstaða fyrir reið- kennslu. A síðasta ári fengu hestamenn inn- göngu í ISI, sem hefur verið kappsmál hestaíþróttamanna. Við þaö opnast ýmsir möguleikar þeirra sem stunda ' ■ :S Ptílf Hvað er hægt að hugsa sér betra en reiðtúr um hina stórbrotnu nóttúru islands? vilja hestamennsku sem íþrótt. Hestaútflutningur hefur verið í lægð undanfarið. Islenski hesturinn á miklum vinsældum að fagna erlendis og margir vilja kaupa hesta hér á landi. I mars veröur stór hestasýning í Þýskalandi þar sem m.a. íslenskir „Islenski hestar verða sýndir. Þá verður önnur ambassador sýning I Svíþjóð á íslenskum hestum. Ragnarsson. hesturinn erlendis,” DV-mynd EJ. er okkar besti segir Sigurður APH Það besta fyrirblý- antsnagara „Eg er búinn að eiga hesta í átján ár. Ég er algjörlega forfallinn og það er ekkert sem getur læknað mig. Þetta fer versnandi með árunum. En þessi „sjúkdómur” er ekki kvöð heldur bara skemmtun,” segir Halldór Halldórs- son, skrifstofumaður hjá Sambandinu og greinilega forfallinn hestamaður. „Þetta er alveg hiklaust það besta sem blýantsnagarar eins og ég geta gert. Það er mikil lífsfylling að geta verið með hestunum. Þegar klukkan fer að nálgast fimm á daginn er hugurinn farinn að reika til hestanna.” Halldór segir aö i raun fari ekki mik- ill tími í hestana. Þeir eru f jórir sem eru með hesthúsið. Tvo hesta hver. Þeir skiptast á að koma upp eftir og hefur hver eina viku í hvert skipti. Þannig aö þetta er eins og best verður ákosið. „Það er mikil útivera samfara hestamennskunni. Og það er meðal annars útiveran sem gefur þessu gildi.” APH Þafl besta fyrir blýantsnagara. „Þafl gengur mikifl nifiur af þeim. Þetta eru stórir skrokkar." Þórflur Bogason ásamt gœflingum sínum. KOMST A BRAGÐ » FYRIR10 ÁRUM „Þetta er stórhættuleg baktería,” segir Þórður Bogason hestamaður, slökkviliðsmaður, nemi og meðlimur í hljómsveit og fjölskyldumaður. Fyrst hann er í svona mörgu er kannski ekki ráðlegt að spyrja hann hvort hesta- mennskan sé tímafrek. Hann segir reyndar að hún sé „ferlega bindandi”. „Eg komst á bragðiö fyrir 10 árum. Það var á Hrafnhóli í Skaga- firði. Þar keypti ég minn fyrsta hest. ” Og nú eftir 10 ár á Þórður þrjá hesta. Og hann langar í enn fleiri hesta. „Mann langar alltaf í nýtt blóð. Eg hef áhuga á aö fá mér hryssu og láta j góðan stóöhest f yl ja hana. ” Þórður heyjar sjálfur fyrir hestana. Hann hefur aðgang að jörð úti á Nesi. Það sem hann heyjar þar nægir til vetrarins. Fyrir þá sem ekki þekkja til hesta- mennsku þá er vert að skýra út hvern- ig árinu er háttað hjá þeim sem halda hesta. Á vorin er hestunum hleypt út í sumarbeit. Það gerist oft í maí. Þegar tekur að hausta eru þeir settir í haust- beit. Stundum er það annar staöur en þeir hafa verið á sumarbeit. Þegar hestarnir fara í haustbeitina eru skeifumar teknar af þeim. Þennan tíma fá þeir aö vera í friði fyrir eigend- um sínum. Þegar tekur að vetra eru hestarnir teknir inn í hús. Margir tóku hesta sína inn fyrir jól í fyrra. Fljót- lega eftir að þeir eru komnir inn í hús verður að járna þá. Upp úr því geta menn farið aö ríða út. En fyrst er hestunum leyft að jafna sig og byrjað er með því að fara í stutta túra. Það er yfir vetrartimann sem hestamennskan er hvað mest bindandi og eigendur hestanna verða að huga að þeim dag- lega. Þá er þeim gefið, hreinsaö hjá þeim, þeir kembdir og viöraðir. Stundum er farið í smáreiðtúra. Það eru sem sagt um fimm mánuðir sem hestamir eru í húsi. Þennan tíma verður að vitja þeirra daglega. Algengt er að eigendurnir reyni að skiptast á að gefa. „Eg er hérna svona um einn og hálfan tíma á dag,” segir Þórður.” Hestamir eru nýkomnir inn Eg ætla að fara að járna þá bráðum og leyfa þeim að jafna sig.” Þórður segir að hestamennskan sé ekki svo ægilega dýrt fyrirtæki. Það sé reyndar byrjunarkostnaður. En svo er þetta viðráðanlegt. En hvemig samræmist þetta fjöl- skyldulífinu? „Konan mín er að smitast. Eg er sem sagt að ná mínu fram. Og svo er ég að venja fimm ára son minn við hestaíþróttina. Hann hefur mikinn áhuga.” APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.