Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985. 25 e Sandkorn Sandkorn Sandkorn Þessi mynd átti að birtast með augiýsingunni sem aldrei varð til. Erfið Sem menn muna tók Þjóð- viljinn góða syrpu á sviss- nesku konfekti i kjölfar um- mæla Geirs Gunnarssonar al- þingismanns á þingi. Sá hamagangur átti eftir að koma Þjóðviljamönnum skemmtilega í koll. Fáeinum dögum eftir kon- fektsyrpuna hringdi stúlka af auglýsingadeUd blaðsins tU eiganda verslunarinnar Sviss, Ingibergs Þorkelsson- ar. Erindið var að fá hann tU að auglýsa konfekt í blaðinu. Ingibergur taldi það aUt i góðu. Stúlkan yrði bara að hafa svolítið fyrir auglýsing- unni. Fyrst yrði hún að hringja í Geir Gunnarsson og fá hann með i leikinn. Síðan að fara upp á DV og fá mynd af þingmannlnum smakkandi konfekt. Myndin átti að fara i auglýsinguna ásamt textan- um: „Geir Gunnarsson segir að konfektið frá Sviss sé ekk- ert venjuiegt. — VUt þú ekki prófa? Inn á þetta gekkst stúlkan á auglýsingadeildtnnl. Kjarkurinn brast En konfektraunirnar voru ekki þar með úr sögunni. Fá- einum minútum seinna hrlngdi stúlkan á auglýsinga- deUdinni aftur í Ingiberg. Spurði hún hvort hann gæti ekki bara hringt í Geir Gunn- arsson og fengið leyfi tU að setja hann i augiýsinguna. Ingibergur kvaðst því mið- ur ekki hafa tíma tU þess, hann væri upptekinn við ann- að. Stúlkan sagði þá annrikið á auglýsingadeUd ÞjóðvUj- ans vera slikt að hún hefði heldur éngan tima tU að hringja i Geir. Versiunareigandinn sagði að þá yrði líklega að hætta við auglýsinguna úr þvi sem komið væri. Það samþykktl stúikan aUs hugar fegin og lagðiá. Sigurjón Rist. íshús var það, heillin Jöklarannsóknafélag ís- iands er blómstrandi félags- skapur þótt nafnið sé kannski heldur kaldranalegt. Félagið efndi tii árshátíðar á dögunum. Var hún vel sótt og mcnn hressir. i ræðu sinni minntist formaðurinn, Sigur- jón Rist, meðal annars á hús- næðísvandamál félagsins. Því væri nauðsynlegt að eiga afdrep í höfuðborglnni, sagði hann. Ef engln yrði jöklastof- an í nýju bókhlöðunni yrði að kveðja saman aUa sem við is- rannsóknir fengjust og bvetja tU átaka við að koma upp skjala- og heimUdasafni, svo og vinnustofum. Undirstrik- aði Sigurjón nauðsyn þess að koma upp „ishúsi” tU ofan- greindra nota. Veislustjóri, Magnús HaU- grímsson, taldi hugmyndina þegar i höfn. Það útskýrði hann þannig: „Nú, sjáið þið tU. tshús stendur næstum fuUsmíðað. Þar á ég við svo- nefnt Scðlabankahús. Það stendur að minnsta kosti á ís- húsgrunni.” Ráðuneyti segir stopp Lögreglan á Akrancsi er sögð ófúsari tU smásnúninga nú en áður. Mælist þetta illa fyrir ef marka má frásögn gamals manns i Skagablað- inu nýlega. Maðurinn hafði lagt bifreið sinni í miðbænum en gleymt að slökkva ljósin á henni. Þegar hann kom tU baka var billinn orðlnn vita rafmagns- laus. Þennan dag var hifandi rok og rigning. Maðurinn ákvað þvi að ieita á náðir lögregl- unnar. Hafði hann samband við hana og spurði hvort möguleiki væri á að hún vOdi draga vandræðabUinn heim, aðeins stuttan spöl. Við þess- ari málaleitan fékk gamU maðurinn þvert nei. Ekki mun þó um að ræða mannvonsku hjá vörðum lag- anna. Þeim hefur sumsé bor- ist fyrirskipun frá ráðuneyt- inu fyrir sunnan. t henni er þeim bannað að ganga slíkra erinda fyrir almúgann. Skýr- big er gefin sú að lögreglubil- arnir séu sjálfskiptir og þeim því ekki hoilt að hafa aðra í eftirdragi. Vafalaust gUdir vitleysan um allt land. l.’msjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Mjólkurdreifing á fyrstu dögum Mjólkursamsölunnar. . . . en nú er öldin önnur. HÚN Á AF- MÆU í DAG — f immtug Mjólkursamsala Mjólkursamsalan í Reykjavík á hálfrar aldar afmæli í dag. Hún var stofnuð 15. janúar 1935 á grundvelU afurðasölulaganna en setning þeirra var viðleitni bænda og verka- manna til að bæta kjör sín á erfiðum krepputímum. Nú er Mjólkur- samsalan umfangsmikið og öflugt fyrirtæki sem hefur 254 starfsmenn í þjónustu sinni og framleiðir fjöl- breytt úrval af mjólkurvörum fyrir svæði sem á eru um 150 þúsund íbúar. Skipu/agsleysi og ringuireið Mjólkursamsalan var stofnuð vegna þess að algjört skipulagsleysi og ringulreið ríkti í mjólkursölu- málum á höfuðborgarsvæðinu. Um og upp úr 1930 varð þróun mjólkur- iðnaöar ör hér á landi og mjólkur- framleiðslan jókst hrööum skrefum. 1936 voru komin á fót sjö mjólkurbú sem öll reyndu að selja mjólk og mjólkurvörur í Reykjavík og Hafnarfiröi. Afleiðingin varð sú aö samkeppnin varð geysihörð og bændur fengu sífellt lægra verð fyrir mjólkina þar sem undirboð voru tíð og dreifingar- kostnaður óeðlilega hár. Flest þessara mjólkurbúa mynduðu með sér bandalag, Mjólkurbandalag Suðurlands, en fékk Utlu áorkaö þar sem hagsmunir rákust mjög á. Það var svo árið 1934 að afurðalögin voru sett og á grund- velli þeirra var Mjólkursamsalan stofnuð. Átti eð duga til aldamóta Mjólkursamsölunni óx fljótt fiskur um hrygg. Fyrst var hún til húsa að Lindargötu 14 og síðar Snorrabraut 54. Arið 1942 var svo farið að byggja að Laugavegi 162. Var húsið vígt 7 árum síðar og þótti meiriháttar viðburður í bænum á þeim tíma. Þótti húsið svo stórt í sniðum, enda mjólkurneyslan þá orðin 12 miUjónir Utra á Reykjavíkursvæðinu, að sagt var aö húsnæði þetta hlyti að duga til aldamóta. Nú er mjólkumeyslan um 30 mUljónir Utra á ári. Mjólkin og stjórnmálamennirnir Mjólk hefur verið afgreidd með ýmsum hætti í þessi fimmtíu ár. Fyrst var hún seld í lausu máli, flutt í verslanir í stórum brúsum sem síðan var ausið úr í þau Uát er kaupendur komu með. Síðar var mjólkin seld í glerflöskum þar tU pappaumbúöir komu tU skjalanna, fyrst hyrnur og síðan femur. Um langt skeið rak Mjólkursamsalan mjólkurbúðir, hátt í 80 talsins, en árið 1976 var tekin sú ákvöröun að loka þeim. Tveir stjórnmálamenn eru sagðir hafa átt drýgstan þátt í að leggja lagalegan gmndvöU Mjólkur- samsölunnar. Það var Hermann Jónasson, sem hafði forgöngu um setningu afurðasölulaganna, og ViUi jálmur Þór, sem kom á lýðræðis- legu samvinnuskipulagi hjá MjóUcur- samsölunni 1943. Fimm menn hafa verið forstjórar MjóUcursamsölunnar frá upphafi. Fyrstur var Arnþór Þorsteinsson en núverandi forstjóri er Guðlaugur Björgvinsson. Hundrað vörutegundir Miklar breytingar hafa orðið á mjólkurmálum síðan Mjólkur- samsalan var stofnuö fy rir hálf ri öld. Samsölusviðið hefur stækkaö tU muna og margar nýjar vörutegundir bæstíhópinn. Að vísu hefur neysla á hinum hefðbundnu mjólkurvörum dregist saman síöustu ár en neyslan í heild sinni hefur þó haldist hin sama með tilkomu nýrra vörutegunda. 1949 voru vörutegundirnar aðeins ellefu, nú eru þær orðnar um hundrað tals- ins. Og í tilefni afmælisins eru ýmsar breytingar á döfinni. „Við höldum áfram byggingu nýja hússins okkar á Bitruhálsi,” sagði Guðlaugur Björgvinsson forstjóri aðspurður um það mál. „Um mitt næsta ár ráðgerum við aö flytja þangað. Þá munum við gera andUts- lyftingu á mjólkurumbúðunum og koma með nýjar vörur á markaöinn á sviði brauð- og isgerðar. Allt fyrir neytandann,” sagðiGuðlaugur. -KÞ í tilefni afmælisins vom tveir starfsmenn Mjólkursamsöiunnar heMraðir, til vinstri Helgi Jónasson verkstæflisformaður og til hægri Aðalsteinn Vigmundsson bilstjóri. Þessir heiöursmenn hafa unnifl i Mjólkursam- sölunni fró upphafi. Rannsóknarstyrkir EMBO í sameindalíff ræði Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Organization, EMBO) styrka vísindamenn, sem starfa í Evrópu og Ísrael, til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rannsóknarstofnanir á sviöi sameindaliffræði. Nánari upplýsingar fást um styrkina í mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og þar eru einnig fyrir hendi skrár um fyrirhuguð námskeiö og málstofur á ýmsum sviðum sameindalíffræði sem EMBO efnir til á árinu 1985. — Umsóknareyðu- blöð fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology Organization, Postfach 1022.40. D-6900 Heidelberg 1, Sam- bandslýöveldinu Þýskalandi. Umsóknarfrestur um styrki til 3ja mánaða eða lengur er til 20. febrúar og til 15. ágúst en um styrki til skemmri tíma má senda umsókn hvenær sem er. MenntamálaráðuneytiA 9. janúar 1985. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK 85001 Stálsmíði 66 og 132 k V háspennulín- ur. Opnunardagur 5. febrúar 1985 kl. 14.00. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 15. janúar 1985 og kostar hvert eintak kr. 300,00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að- viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Reykjavík, 14. janúar 1985 Rafmagnsveitur ríkisins Auglýsing um styrki og lán til þýðinga á erlendum bókmenntum Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerö nr. 638/1982 um þýöingarsjóð, er hlutverk sjóösins aö lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaöra erlendra bókmennta á ístensku máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum. 4. Eðlileg dreifing sé tryggð. 5. Otgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til þýðingarsjóðs I fjárlögum 1985 nemur 1150 þúsund krónum. Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 10. febrúar. Reykjavík, 7. janúar 1985. Stjórn þýflingarsjófls

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.