Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. JANUAR1985.
Peningamarkaður
Innlán með
sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar til
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað
innistæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru meö hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru
verðtryggöir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóöum eða almannatryggingum.
Innistæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextir eru 31% og ársávöxtun 31%.
Sérbók fær strax 3»'%nafnvexti. 2% bætast
síðan viö eftir hveija þrjá mánuði sem
innistæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu
mánuði. Arsávöxtun getur oröið 37.31%
Innistæður eru óbundnar og óverðtryggöar.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxtum
er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs-
ávöxtun sé innistæða óhreyfð. Vextir eru
færðir um áramót og þá bornir saman viö
vexti af sex mánaða verötryggöum reikn-
ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun
bætt við.
Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Iðnaðarbankinn: Á tvo reikninga í
bankanum fæst IB-bónus. Överötryggöan 6
mánaða reikning sem ber þannig 36%
nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og
verðtryggðan 6 mánaöa reikning sem ber
3.5% vexti. Vextir á reikningunum eru bornir
saman mánaöarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir eru færöir misserislega,
30. júní og 31. desember.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
35% nafnvöxtum og 35% ársávöxtun sé
innistæða óhreyfö. Vextir eru færðir um ára-
mót og bornir saman við vexti af sex mánaðá
verðtryggðum reikningum. Reynist ávöxtun
þar betri er mismun bætt við.
Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda
vaxtaleiöréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Samvinnubankinn: Innlegg á Hávaxta-
reikning ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2
mánuöina, 3. mánuðinn 25.5%, 4. mánuðinn
27%, 5. mánuöinn 28.5%, 6. mánuðinn 30%.
Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði
32.5%. Sé tckið út standa vextir þess tímabils
það næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er
35.14%.
Vextir eru bornir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há-
vaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
Verslunai l'Mukinn: Kaskó-rcikningurinn er
óbundinn. l'ni hann gilda fjögur vaxtatímabil
á ári, jnnúar- inars, apríl—júní, júlí—
september, októÍK i— desember. I lok hvers
þeirra fær óhreyföur Kaskó-reiki.i.igur vaxta-
uppbót sem miðast við mánaðarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hag-
stæðasta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist
á óverötryggðum 6 mán. reikningum með
30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á
verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 2%
vöxtum.
Sé lagt inn á miðju tímabili og innistæöa
látin óhreyfö út það reiknast uppbót allan
sparnaðartímann. Við úttekt fellur vaxta-
uppbót niður það tímabil og vextir reiknast þá
24%, án verðtryggingar.
íbúðalánareikningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku.
Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200%
miöaö við sparnaö með vöxtum og
verðbótum. Endurgreiðslutími 3—10 ár.
Utlán eru með hæstu vöxtum bankans á
hverjum tíma. Sparnaöur er ekki bundinn við
fastar upphæðir á mánuöi. Bankinn ákveður
hámarkslán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú
ákvörðun er endurskoðuð tvisvar á ári.
Útvegsbankinn: Vextir á reikningi með
Ábót er annaöhvort 1% og full verötrygging,
eins og á 3ja mánaða verötryggðum spari-
reikningi, eða ná 33.4% ársávöxtun, án
verðtryggingar. Samanburður er geröur
mánaöarlega, en vextir færöir í árslok. Sé
tekiö út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóösvextir, 24%, þann almanaksmánuö.
Sparisjóðir: Vextir á Trompreikningi eru
stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuöina, 4.—
6. mánuð 27%, eftir 6 mánuöi 31.5% og eftir 12
mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út
af reikningi á einhverju vaxtatímabilinu,
standa vextir þess næsta tímabil. Sé
innistæða óhreyfð í 6 mánuði frá innleggsdegi
er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6
mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem
betri reynist.
Ríkissjóður: Spariskírteini, 1. flokkur A
1985, eru bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verötryggö og meö 7% vöxtum,
óbreytanlegum. Upphæðir eru 5.000,10.000 og
100.000 krónur.
Spariskírteini með vaxtamiðum, 1. flokkur
B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau eru verðtryggð og með 6.71 vöxtum.
Vextir greiðast misserislega á tímabilinu,
fyrst 10. júlí næstkomandi. Upph "ðir eru 5,
10 og 100 þúsund krónur.
Spariskírteini með hreyfanlegum vöxtum
og vaxtaauka, 1. flokkur C 1985, eru bundin til
10. júh' 1986, í 18 mánuði. Vextir eru
hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða
verðtryggðum reikningum banka með 50%
álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú.
Upphæðir eru 5,10 og 100 þúsund krónur.
Gengistryggð spariskírteini, 1. flokkur SDR
1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990.
Gengistrygging miöast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæöir eru
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla-
bankanum, hjá viðskiptabönkum, spari-
sjóöum og verðbréfasölum.
Útlán Itfeyrissjóða
Um 90 lifeyrissjoðir eru i landinu. Hver
sjóöur ákveöur sjóöfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóöa aukínn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. lán eru á bilinu 144.000 —600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtími eftir lánum er mjög misjafn,
breytilegur milli sjóða og hjá hverjum sjóði
eftiraðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
IMafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaöir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
veröur þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
24,0% nafnvöxtum verður innistæðan í lok
þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í
því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6-4-6 mánuði á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuðina. Þá er innistæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir
seinni sex mánuðina. Lokatalan verður
þannig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala fyrir janúar 1985 er 1.006
stig, 4.9% hærri en í desember. Miðað er viö
100 í júní 1979.
Byggingarvísitala fyrir fyrsta ársfjórðung
1985 er 185 stig en var 168 stig síöasta árs-
fjórðung 1985. Miðað er við 100 í janúar 1983.
VEXTIB BANKA OG SPARISJÓÐA1%)
INNLÁN með sérkjörum SJA sérlista ilil 11 11 11 !l i ií li )i
innlAn úverdtryggð
SPARISJÓOSBÆKUR Úbunckn imstaða 24.0 24.0 244) 244) 24,0 24.0 24.0 24,0 24.0 24.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaða uppsogn 27J) 28,8 274) 274) 27,0 27,0 274) 26.0 27.0 27.0
6 mánaða uppsógn 38 4) 394 304) 31,5 36,0 31,5 29.0 30.0 31,5
12 minaAa uppsógn 32.0 34,6 32,0 31.5 31.0
18 mánaóa uppsógn 34J) 36,9 34,0
SPARNAOUR LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuði 27 J) 27,0 27,0 27,0 26,0 274) 274)
Sparað 6 mán. og meáa 30,0 30,0 27.0 27.0 29.0 30.0 30.0
INMLANSSKIRTEIMI T1 6 már^ða 31,5 34,0 30,0 31,5 31,5 31.5 30,5 31.5
tEkkareikningar Avisanaraimingar 22,0 224) 18.0 19.0 19.0 19.0 19.0 194) 18.0
Hlauparaðmingar 19,0 16.0 18,0 19,0 19,0 12.0 19.0 19,0 18.0
innlAn verðtrvggd
SPARIREIKNINGAR 3js mánaða uppsógn 4.0 4,0 2,5 0.0 2.5 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mánaða uppsógn 6.5 6.5 3.5 3.5 3.5 3.5 2.0 2.0 3,5
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadolarar 9.5 9.5 8.0 8.0 7.0 7.0 7.0 7.0 8.0
Slortngspund 9.5 9.5 8.5 8.5 8D 8.0 8.0 8,0 8.5
Viwtur þýsk mörk 4J) 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Dsnskar krónur 9.5 9.5 8.5 8.5 8.5 8.5 8.5 8.5 8.5
LitlAn óverdtryggd
ALMENNIR VlXLAR Korvextx) 31,0 314) 31,0 31,0 31.0 31.0 31,0 31.0 31.0
VKJSKIPTAVlXLAR Iforvexta) 32.0 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 32.0 32,0
ALMENN SKULDABRÉF 34,0 34.0 34,0 34,0 34,0 34.0 34.0 34.0 34,0
VIOSKIPTASKULDABRÉF 35,0 354) 35,0 35,0 35.0 35.0
HLAUPAREIKNINGAR Yfirdráttur 32,0 32,0 32.0 32,0 32,0 32.0 32,0 32.0 25,0
íitlAn verðtryggð
SKULDABRÉF Að 2 1/2 án 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Langrien2 1/2 ár 5 4) 5.0 5.0 5.0 5.0 5,0 5.0 5.0 5.0
útlAn til framleiðslu
VEGNA INNANLANDSSOLU 244) 24,0 24,0 24,0 24.0 24,0 24,0 24.0 24,0
VEGNA UTFLUTNINGS SOR raánimynl 9.5 9,5 9.5 9.5 9,5 9.5 9.5 9.5 9.5
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Ámi Blandon leikari:
Meðalmennskan allsráðandi
Ég hlusta fjarskalega lítiö á útvarp.
Þaö er einn útvarpsþáttur sem ég legg
mig eftir aö hlusta á, Uglan hennar
Mínervu heitir hann og er á dagskrá
hálfsmánaðarlega á laugardagskvöld-
um. Svo hef ég hugsað mér aö fylgjast
meö lestri Gísla Rúnars á Morgun-
veröi meistaranna eftir Vonnegut. Aö
mínu mati er alltof mikiö af viðtölum í
útvarpinu, innihaldssnauöum viðtölum
sem ekkert er varið í. Rás 2 hef ég ekk-
ert hlustað á. Ég hef þó hugsað mér aö
hlusta á þátt Jóns Olafssonar um söng-
leiki nk. fimmtudag.
Eg sá Hljómsveitaræfingu Fellinis í
gær. Þetta er ákaflega þunglamalegt
verk og Fellini er greinilega mikið
niöri fyrir. Þema verksins er um
vandamál sem hvarvetna koma upp
þ.e.a.s. vandamál þess aö stjórna
sjálfum sér og öðrum. Ég sá líka á
dögunum þáttinn Spekingar spjalla.
Nauöungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 66. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni öldugötu 22, Hafnarfirði, talinni eign Steins Steinsen, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Innheimtu ríkissjóðs á eign-
inni sjálfri föstudaginn 18. janúar 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 66. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Smárahvammi 1, Hafnarfirði, þingl. eign Ólafs Gíslasonar, fer
fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, og Tryggingastofnunar rikisins á
eigninni sjálfri föstudaginn 18. janúar 1985 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 60., 62. og 66. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Strandgötu 47, Hafnarfirði, þingl. eign Aðalsteins Tryggva-
sonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni sjálfri
föstudaginn 18. janúar 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á Brúnastekk 1, þingl. eign Vilhjálms Ingólfssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 17. janúar 1985 kl. 15.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á hluta í Kaplaskjólsvegi 3, þingl. eign Guðbjargar
Traustadóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Lands-
banka íslands, Ásgeirs Thoroddsen hdl., Baldurs Guðlaugssonar hrl.,
Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17.
janúar 1985 kl. 11.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta I Hjaltabakka 28, tal. eign Skafta Einars
Guðjónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og
Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar 1985
kl. 14.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 43. og 46. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í
Hofsvallagötu 19, tal. eign Andreu Jónsdóttur, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar
1985 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Kríuhólum 2, tal. eign Baldurs Magnússonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 17. janúar 1985 kl. 16.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Dalseli 29, þingl. eign Arnar Guömundssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík og Veðdeildar
Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. janúar 1985 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
í sjónvarpinu
Ekki kom neitt merkilegt þar fram og
var þátturinn eintómt diplómatískt,
yfirborðskennt snakk.
Annars horfi ég mjög lítiö á sjón-
varpið því mér finnst það efni sem þar
er sýnt stefnulaust, bragðlítið og
meðalmennskan allsráðandi. Mér
finnst vanta þætti á borð við viðtalið
við Laurence Olivier sem sýnt var á
dögunum. Það viðtal var tekið úr þætt-
inum South Bank Show sem sýndur er
vikulega í Bretlandi. Þar er líka á dag-
skrá vikulega þáttur sem nefnist Film
85 sem Barry Newman stjórnar. Þar
f jallar hann um nýjar myndir og ýmis-
legt annað sem tengist kvikmynda-
heiminum. Þessa þætti væri gaman að
sjá í sjónvarpinuhér.
Andlát
Ágúst Elíasson lést 2. janúar sl. Hann
var fæddur 25. ágúst 1903 að Berserks-
eyri í Eyrarsveit, Snæfellsnesi, sonur
hjónanna Elíasar Guðnasonar og Gróu
Herdísar Hannesdóttur. Agúst vann
lengst af hjá Vatnsveitu Reykjavíkur.
Hann giftist Maríu Sólveigu Helga-
dóttur, en hún lést árið 1982. Þau eign-
uðust eina dóttur. Utför Ágústs veröur
gerð frá Hallgrímskirkju í dag kl.
13.30.
Sigurbjarni Tómasson lést 9. janúar sl.
Hann fæddist á Gilsstöðum í Hrútafirði
þann 17. september 1910, sonur
hjónanna Sigríðar Bjamadóttur og
Tómasar Jörgenssonar. Sigurbjami
starfaði lengst af hjá Bifreiðastöö
Steindórs. Eftirlifandi eiginkona hans
er Gíslina Guðmundsdóttir. Þau hjónin
eignuðust fimm börn. Útför Sigur-
bjarna verður gerð frá Bústaðakirkju i
dagkl. 15.
Sigurgeir Jónsson.
Kári Einarsson.
Þau leiðu mistök urðu í DV síðast-
liðinn föstudag aö mannamyndir víxl-
uöust í frásögn af ráðningu nýs for-
stjóra Flugleiða. Undir mynd af Sigur-
geiri Jónssyni Seölabankastjóra stóð
nafn Kára Einarssonar verkfræðings
og undir mynd af Kára stóð nafn Sigur-
geirs. Þeir eru, sem kunnugt er, full-
trúar ríkisins í stjóm Flugleiða. Blaðið
biöur þá tvo, svo og lesendur, vel-
virðingar á þessum mistökum.
-KMU.