Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1985, Page 32
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frótt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fóru um landið að selja hass — handteknirá Sauðárkróki með 400 grömm Fjórir ungir Reykvíkingar voru handteknir meö 400 grömm af hassi á Sauðárkróki um helgina. Höföu þeir feröast víða um landið aö undanfömu, m.a. komið viö á Akranesi, Dalvík og Olafsfirði og boöiö hass til sölu. Við yfirheyrslu kom í ljós að þrír til viöbótar, tveir karlmenn og ein kona, voru viðriönir málið. Þau voru öll handtekin í Reykjavík. Viöurkenndu þau aö hafa smyglaö einu kilói af hassi til landsins fyrir nokkrum dögum, frá Hollandi. Aö sögn lögreglu hafa 700 grömm af hassinu veriö gerð upptæk. Afganginn er líklega búiö aö selja. Máliö er upp- lýst og ekki farið fram á gæsluvarð- hald. -EH Tillaga Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins: Landsfundurum miðjan apríl Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður liklega haldinn um miöjan apríl í Laugardalshöliinni. Þorsteinn Páls- son, formaður flokksins, boöaði þessa hugmynd á þingflokksfundi í gær. Miö- stjórn mun fjalla um málið á fimmtu- daginn. „Þetta er fyrst og fremst spuming um húsnæði, auk þess sem landsf undur hefur lengst af verið haldinn á vorin og okkur þykir þaö henta betur,” segir Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæöisflokksins. Síöasti lands- fundur varhaustiö 1983. Landsfundur sjálfstæðisinanna er þúsund manna samkoma. Síðustu fundir hafa verið í Sigtúni sem nú er að stórum hluta verið aö breyta í verslun. Þá er ekkert hús nema Laugardals- höllin sem rúmar fundinn. Þar verður að sæta lagi milli æfinga og keppni íþróttafólks. Ymsir tengja bollaleggingar um landsfund Sjálfstæðisflokksins í vor stööu ríkisstjórnarinnar og hugsan- legum þingkosningum í vor. Friðrik Sophusson neitað því að slíkt væri í huga þeirra formannanna. „Eg hef þegar skýrt aðalástæðumar,” sagði hann. HERB Bílstjórarnir aðstoða s m m SZllDIBíLBSTÖÐin Rækjusjómenn á Bfldudal með sendinef nd suður: Deilt um hundrað þúsund á sjómann ,,Ef mennirnir fá sínu framgengt þýðir þaö tekjutap upp á hundraö þúsund krónur á mann á ársgrund- velli og maður tekur því ekki þegj- andi og hljóðalaust,” sagöi Guðmundur Þ. Ásgeirsson, rækju- skipstjóri á Bíldudal, í samtali viö DV í morgun. Átta rækjubátar á Bíldudal hafa ekki róið síðan á föstudag vegna deilu sjómanna og Rækjuvers hf. um uppgjör. Snýst deilan um aðferðir þess síöamefnda við uppgjör á hörpudiski frá því í haust. Hafa út- gerðarmenn og áhafnir ákveðið að hætta veiðum þar til leiðrétting fæst. Er framkvæmdastjóri Rækjuvers í Reykjavík til skrafs og ráðagerða við forráöamennsjávarútvegsins.” „Það eru tveir menn frá okkur á leiöinni suður,” sagði Guðmundur. „Það er ótækt aö maður frá Rækju- veri sé einn fyrir sunnan, hrærandi í stofnunum og segjandi aðeins sína hliöámálinu.” — Er ekkert samkomulag á döf- Innl? „Það er ekki um neitt samkomulag að ræða af okkar hálfu. Við höfum hér strangan matsmann sem við höf- um reyndar oft blótað í sand og ösku en það er eina löglega leiðin til að fara eftir við mat á fiski. Við höfum alltaf farið eftir honum. Það er hins vegar ekki hægt að láta einhverja skrifstofublók breyta mati mats- mannsins eftir að búið er að veiða fiskinn.” . — Áttu von á að þið verðið lengi í landi enn? „Þaö er ómögulegt aö segja á þessu stigi málsins.” — Verður tekjutap ykkar ekki mik- ið ef þið stoppið lengi? „Tekjutapið verður meira ef svona verður á málum haldið, eins og Rækjuversmenn vilja. A ársgrund- velli munum við tapa hálfri annarri milljón í það heila. Það vill segja að af hverju heimili sjómannanna verð- ur tekjumissirinn hundrað þúsund krónur og það látum við ekki við- gangast,” sagði Guðmundur Þ. Ásgeirsson. -KÞ Brotist inn í barnaheimili Innbrotsþjófar heimsóttu bama- heimilið Sólborg við Landspítalann í nótt. Rúða var brotin og hurð. Komust þjófamir með þeim hætti inn í barna- heimilið. Stolið var miðum á skemmtun starfsfólks. Þá var tekinn tappi úr sérríflösku sem þarna var tilfallandi en ekki snert á veigunum. Töluverðar skemmdir voru unnar innandy ra. Að sögn hófst starfsemi með eðlilegum hætti á barnaheimilinu í morgun þrátt fyrir skemmdarverk og vettvangsrannsókn lögreglu. -EH. Stríplastíjanúar He'rtt vatn hefur runnið um Lækinn við Nauthóisvík oft í vetur, mörgum tii yndisauka, þar á meðal þessum strák, sem stríplaðist þarna í gær. Hitastig vatnsins var um 40 gráður en loftsins um 6 gráður. Ekki amalegt um miðjan janúar. DV-mynd KAE. Matarf jöllin stækka stöðugt: Verðlaun f rá ríkinu fyrír að drepa kálfa Það er nægur matur til i landinu. Þjóðin væri í hálft ár að borða sinjör- fjailið og það sáiha iná segja um ostafjallið og nautakjötsfjallið. Aftur á hióíi tæki þáð þjóðiriá röriit ár áð innbyrða þær kindakjötsbirgðir serii til erui landinu. ytfl HiáfladafflótiB HðVéfflBéf-dfes- ember var sriijörfjallið örðið 409 lestir að þyngd. Til samanburðar má geta þess að ársneyslari 1983 vár 918 lestir. Á sama tirtia Háffl tíktafjaUið §8Í! léstúrii en ársrieyslan er rörnlega Í700 lestir. Nóg er af nautakjöti. Birgðirnar nema rúmlega 1000 lestum en árs- flfeýSÍa fer lifti 2ÖÖÖ íéstir. i; dfeSfefflbér VÖrú tii 11.552 lfestir af kindakjöti hér á landi en þjóðin torg- ar ekki riehiá fúihúrii 10.000 ifestúih á áfí: Yfirvöld hafa ráðist að nautakjöts- fjallinu tíg Hyggjast minnka þáðmeð þvi að gffeiöa bændum looo króflur fyrir hvern kálf sem þeir slátra. Má faliþiingi háhs þö ékíd vera yfir 30 kflóúfli tíg þeningarnir eru endúr- greiðsla á kjarnfóðurgjaldi. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.