Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1985, Qupperneq 4
4
DV. FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR1985.
Urvinnsla úr skoðanakönnun DV:
Fjórðungur sjálfstæð-
ismanna vill kosningar
Fjóröungur stuöningsmanna Sjálf-
stæöisflokksins er því fylgjandi aö
efnt verði til þingkosninga í vor eða
sumar. Meirihluti sjálfstæöismanna
er því andvígur. Þá er um fimmtung-
ur framsóknarmanna fylgjandi því
að kosið verði í vor eða sumar. Meiri-
hluti framsóknarmanna er því and-
vígur að brátt verði fariö í kosning-
ar.
Þetta sýnir skoöanakönnunin sem
DV gerði fyrir hálfri annarri viku.
Sama fólkið var spurt hvaða lista
það kysi ef nú yrði kosið og hvort þaö
væri fylgjandi eða andvígt því að
efnt yröi til þingkosninga í vor eða
sumar.
Af stuðningsmönnum Sjálfstæöis-
flokksins vildu 26,1% kosningar. 58%
voru því andvíg. 14,3% voru óákveð-
in í afstöðu til kosninga og 1,7% vildu
ekki svara þeirri spumingu.
I röðum stuðningsmanna Fram-
sóknarflokksins reyndust 19 prósent
vilja kosningar í vor eða sumar.
61,9% voru því andvíg. 16,7% voru
óákveðin um kosningaspurninguna
og 2,4% vildu ekki svara henni.
Af stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins voru 76,6% fylgjandi kosn-
ingum í vor eöa sumar, 15,6% andvíg
og 7,8% óákveðin.
Af alþýöubandalagsfólki vildu
83,7% kosningar, en 11,6% voru and-
vig. Af stuöningsfólki Samtaka um
kvennalista voru 65,6% fylgjandi
kosningum en 28,1% andvíg. 73,7%
stuðningsfólks Bandalags jafnaðar-
manna vildu fara í kosningar í vor
eða sumar, en 21,1% voru andvig því.
Af hinum mörgu sem voru
óákveönir þegar spurt var um lista
eða svöruðu ekki þeirri spurningu
reyndust flestir fylgjandi kosning-
um.
Af þessum hópi voru 36,7% fylgj-
andi kosningum en 31% andvíg. Af-
gangurinn var menn sem enn reynd-
ust óákveðnir eða svöruöu ekki. Sjá
nánar um þessar niöurstöður á með-
fylgjandi töflum.
-HH
Fjórðungur sjálfstæðismanna vill kosningar nú og fimmtungur framsókn-
armanna.
Uppsagnir kennara 1. mars nk.:
Menn harðir í afstöðu sinni
— segir Krist ján Thorlacius, formaður HÍK
Þessa dagana erum viö í stjórn HtK
aö kynna félögum okkar nýja kröfu-
gerð BHM. Jafnframt erum við að
þreifa á afstöðu þeirra til aðgerðanna
1. mars. Við heyrum ekki annaö en aö
menn séu harðir í afstöðu sinni til
þeirra, að öllu óbreyttu.”
Þetta sagði Kristján Thorlacius, for-
maðui- Hins íslenska kennarafélags, er
DV ræddi viö hann. Stærstur hiuti
kennara í framhaldsskólum á landinu
hefur sem kunnugt er sagt upp störfum
frá og með 1. mars næstkomandi. Ur-
skurður Kjaradóms verður kveðinn
upp 22. febrúar nk. en fyrir dómnuin
liggur nú kröfugerð BHM.
Nokkur umræða hefur orðið um
ákvæði í kröfugerðinni sem fjallar um
starfsaldur réttindalausra kennara.
Kristján sagöi að miðaö væri við próf-
aldur, þ.e. tímann frá því að viðkom-
andi lyki viðurkenndu háskólaprófi.
Vitaskuld þýddi þetta að sumir kenn-
ara gætu misst áunninn starfsaldur,
þ.e. þeir sem kennt hefðu áður en þeir
tóku prófið. Aftur á móti skipti þaö
ekki máli hvort menn hefðu lokið prófi
í uppeldis- og kennslufræði, aöeins að
þeir heföu lokið tilskildu háskólaprófi.
Þetta snerti því aðeins þá sem alls ekk-
ert háskólapróf hefðu. A þeirra málum
yrðiaðtaka sérstaklega þegarþarað
kæmi. Kvaðst Kristján ekki kannast
við að kennarar hefðu dregið uppsagn-
ir sínar til baka vegna þessa ákvæðis í
kröfugerðinni, utan einn sem hefði
hættviðaðsegjaupp.
Sagði Kristján að menntamálaráð-
herra hefði lýst því yfir að beðiö yrði
með frekari ákvarðanatöku varðandi
málefni kennara þar til úrskuröur
Kjaradóms lægi fyrir. „Og við erum
sammála því,” sagðiKristján.
-JSS
Afstaða
til kosninga
Afstaða sjálfstæðismanna til spurning-
arinnar um kosningar í vor eða sumar
var þessi:
Fylgjandi kosningum 31 eða 26,1%
Andvígir 69 eða 58%
Óákveðnir 17 eða 14,3%
Svara ekki 2 eða 1,7%
Afstaða framsóknarmanna var þessi:
Fylgjandi kosningum 8 eða 19%
Andvígir 26 eða 61,9%
Óákveðnir 7 eða 16,7%
Svara ekki 1 eða 2,4%
Afstaða alþýðuflokksmanna var þessi:
Fylgjandi kosningum 49 eða 76,6%
Andvígir 10 eða 15,6%
Óákveðnir 5 eða 7,8%
Afstaða alþýðubandalagsmanna var
þessi:
Fylgjandi kosningum 36 eða 83,7%
Andvígir 5 eða 11,6%
Óákveðnir 2 eða 4,7%
Afstaða stuðningsfólks Samtaka um
kvennalista var þessi:
Fylgjandi kosningum 21 eða 65,6%
Andvígir 9 eða 28,1%
Óákveðnir 2 eða 6,3%
Afstaða stuðningsfólks Bandalags
jafnaðarmanna var þessi:
Fylgjandi kosningum 14 eða 73,7%
Andvígir 4 eða 21,1%
Öákveðnir 1 eða 5,3%
Afstaða þeirra sem eru óákveðnir um
hvaða lista þeir kysu og þeirra sem
svara ekki spurningunni um lista er
þessi:
Fyljgandi kosninguni 103 eða 36,7%
Andvígir 87 eða 31,0%
Óákveðnir 33 eða 11,7%
Svara ekki 58 eða 20,6%
í dag mælir Dagfari______________| dag mælir Pagfari í dag mælir Dagfari
Skál fyrir Steingrími
Þá er loks fundin lausn á efnahags-,
málum þjóöarinnar. Forsætisráö-
herra ætlar að leyfa áfengan bjór í
landinu og græða á því 900 milljónir
króna. Það gerir meira en að fylla
upp í götin. Það fyllir þjóðina. Tvter
flöskur á dag kippa heilsunni í lag.
Steingrímur er búinn að reikna þetta
út. Hann telur varlegt að áætla að ís-
lendlngar drekki 40 lítra á ári og vis-
ar þá til þess að Svíar þamba 45 lítra
af bjór og Danir hvorki meira né
minna en 150 lítra á ári hverju. ís-
landsmaðurinn fer því létt með 40
litra og gott betur. Kæmi manni ekki
á óvart þótt danska metið yröi slegið
léttilega, enda verður hátíð í bæ og öl
á hverju heimili ef að líkum lætur.
Það er heldur ekki dónaleg tilhugsun
að drekka bjór út frá þjóðhagslegu
sjónarmiði og vita til þess að eftir þvi
sem fylliriið stendur lengur því betur
stendur ríkiskassinn og efnahagur-
inn.
Mörg ráð hafa verið reynd til að
rétta við bágan hag og slæma stöðu
rikissjóðs. Þar hafa menn baslað viö
skattheimtu, sparnað, endalaus f jár-
lagagöt, viðskiptahalla og óvinsælar
aðgerðir hvers konar. Margar góðar
rikisstjórnir hafa þurft að gefast upp
i þessari endalausu glimu og núver-
andi ríkisstjórn hefur satt að segja
ekki átt sjö dagana sæla fyrir fjár-
lagagötum i bak og fyrir. En þegar
neyðin er stærst er björgin næst og
Steingrimur Hermannsson hefur
slegið kellurnar i einu höggi, eins og
honum var einum lagið i nýju Keilu-
höllinni. Bjór er það heillin og munu
nú allir drykkjurútar landsins skáia
fyrir forsætisráðherra og efnahags-
lausnum hans. Það er aldeilis munur
að hafa forsætisráðherra sem leysir
efnahagsvandann með þvi að bjóða
þ jóðinni á fyllirí. Það er ekki á hver j-
um degi sem Islendingar fá að leysa
vandamál sin með þvi að drekka sig
frá þeim.
Vandlnn er að visu sá að jafnvel
þótt bjórfrumvarpið fái allan for-
gang i afgrelðslu alþingis má búast
við að komið verði fram á mitt ár
þegar bjórinn verður ioks lögleyfður.
Þjóðin hefur því ekki nema rétt rúm-
lega hálft ár til að drekka sig frá
efnahagsvandanum samkvæmt
tillögu forsætisráðherra. Ráðherr-
ann gæti notað 17. júní ávarpið til að
hvetja landa sína til bjórdrykkjunn-
ar og ekki er aö efa að þjóðhollusta á
slikum tímum muni reynast drjúg.
íslendingar hafa nú gert annað eins
fyrir land sitt og þjóð, eins og það að
renna niður nokkrum aukalítrum af
bjór þegar þjóðarhagur krefst.
Ef hugmyndir og óskir forsætis-
ráðherra ná fram að ganga og allt
fer eftir má búast við því að ekki
renni af fullorðnum seinni hluta árs-
ins, og börn og unglingar þyrftu einn-
ig að geta náð sér i bjórkrús í frí-
mínútum til að drekka upp í f járlaga-
gatið. Til þess þyrfti bjórinn að selj-
ast í sjoppum og getur dómsmála-
ráðherra séð um það. Hann er hvort
sem er búinn að hleypa bjórlíkinu inn
á alla veltingastaði landsins i anda
þeirrar stúkureglu og bindindissemi
sem hann er alinn upp við. Bindindis-
menn á borð við Jón Helgason hafa
haft lag á því að stuðla að óvenjuleg-
um drykkjusiðum og hljóta því að
vera ötulir fylgismenn forsætisráð-
herra í þeirri stefnu að koma þjóð-
inni á það. Um næstu áramót getur
Steingrimur aftur haldið á vit araba
og ísraelsmanna til að segja þeim
tröllasögur af því hvernig hann leysti
efnahagsvanda Islendinga með því
að detta í það. Mun það vera eins-
dæml í hagsögunni þegar íslending-
ar sýna umheiminum hvernig hægt
er að drekka slg frá vandanum.
Skál fyrir Steingrimi.
Dagfari