Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1985, Page 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR1985.
Spurningin
Hefur þú farið á
þorrablót?
Þorsteinn Ingason verkamaður: Nei,
ekki ennþá. Eg held að ég sleppi því
bara í ár og fari á árshátíð í staöinn.
Steinarr Magnússon tenór: Já, ég fór í
eins konar þorrablót, þ.e.a.s. partí
með þorramat. Það var mjög gaman.
Pálína Guðlaugsdóttir húsmóðir: Já,
ég er búin að fara á þorrablót. Það var
mjög gaman og maturinn alveg frá-
bær. Maturinn hjá okkur Stranda-
mönnum er alltaf mjög sérstakur.
Kristþór Sveinsson bifreiðarstjóri:
Nei, ég hef ekki farið í ár. Ég ætla bara
að borða þorramatinn heima að þessu
sinnl.
Halldór Helgason bóndl: Nei, ég á þess
ekki kost að fara í ár. En mér þykir
þorramatur góður og ætla að borða
hann heima.
Elva Hjartardóttir hárgreiðslunemi:
Nei, mér finnst ekkert gaman á þorra-
blótum. Svo finnst mér þorramatur
ekkigóðurheldur.
Lesendur Lesendur Lesendur
Ókurteisi íslendinga
Birgitt skrifar:
Já, sannarlega var kominn tími til
að hafa orð á margháttaðri ókurteisi
fólks í umgengni hvert við annað hér
á landi. Það má vera að það sé í
hugsunarleysi og því óvart en þaö
réttlætir þaö engan veginn. Það er
alltof mikið um að fólk ryðji sér leið
þar sem þvaga myndast í stað þess
að bíða eftir að komi að því með
réttu. Hvernær sjáum við t.d. fólk á
biðstöðvum strætisvagnanna raða
sér upp í biðröö þegar beðið er eftir
vögnunum, að ég nú ekki tali um
ruðninginn við gjaldkerastúkur í
bönkum. Þar er hver með nefið ofan í
viðskiptum næsta manns, jafnvel
lesandi á útfyllt eyðublöö og hlust-
andi á orðaskipti viðskiptamanns og
gjaldkera eöa annarra bankastarfs-
manna. Svo langt hefur það jafnvel
gengið aö kunningi sem stóð nálægt
fór að ræða málin við mig eftir að ég
hafði fengið afgreiðslu og íhugaöi
vandamál mín og vildi fá að leggja
orðíbelgummáliö.
Erlendis má sjá hvemig fólk tekur
tillit til náungans og virðir einkalíf
hans. í bönkum erlendis, raðar fólk
sér upp í röð í smáfjarlægð frá g jaid-
kera eftir því sem pláss leyfir og
aöeins einn er við afgreiðsluborðið í
einu, og myndi fólk ekki láta sér
detta í hug aö sýna áhuga á eða
blanda sér í mál sem því kemur
ekki við. Ef til vill eru þetta hjá
okkur leifar frá gamalli tíö þegar
allir þekktu alla og létu sig allt máli
skipta, annaðhvort af hjálpsemi eða
af einskærri forvitni. Nú er bara tíöin
önnur og fólk vill fá aö hafa sitt
einkalíf og sín viðskipti út af fyrir
sig.
Eg hef líka tekið eftir og oft haft
orð á því að þaö er stór hópur manna,
sem aldrei notar orð eins og viltu
gjöra svo vel, eða takk, og færi betur
ef fólk bætti þeim orðum í orðaforða
sinn ef vel á að vera. Að lokum
langar mig svo að minnast á atriði
sem hefur angrað mig mjög. Eg hef
verið fararstjóri meö Islendinga er-
lendis, sem er mjög skemmtilegt, en
því miður eru alltaf einhverjir inn á
milli sem þurfa „aö láta ljós sitt
skína” og þá á ég við, að þeir þurfa
endilega að skera sig úr á einn eða
annan hátt og þá oftar en ekki,
öðrumtilleiðinda.
Það er óskemmtileg uppákoma
þegar setið er í góöum hópi fólks inni
á góðum veitingastað og einhver
gestanna æpir allt í einu á þjóninn
með orðum eins og HEY eða HEY
YOU, eða öðrum álíka ósmekklegum
orðum. Það hendir að starfsfólk
móðgast við svona ókurteisi og hefur
tekið það fram við viðstadda, að
svona sé eingöngu látið við hunda
eða önnur dýr, og síöan.jafnvel látið
gremju sína í ljós með lélegri þjón-
ustu en efni stóðu til og geldur þá
jafnvel allur hópurinn þessa.
Vonandi áttar fólk sig á þessu, og er
þá tilganginum með þessum skrifum
náð.
„Stórfjölskyldan”
Sturlaugur Eyjólfsson skrifar:
Maður er nefndur Jónas
Guðmundsson og titlar sig rithöfund.
Á undanfömum misserum hefur
hann verið afkastamikill við að
skrifa greinar í DV. I þessum
greinum verður honum tíðrætt um
bændur og sölusamtök þeirra og
finnur þeim flest til foráttu. Virðist
oft sem sannleiksgildi þess sem hann
skrifar skipti hann harla litlu máli.
Eg ætla hér að nefna eitt dæmi um
sannleiksást Jónasar. I DV
þriðjudaginn 22. jan. 1985 skrifar
hann grein sem heitir ,,Á miðjum
vetri”. Þar stendur rn.a. orörétt:
„Og getur framleiðsluráð því sagt
eins og kerlingin, „það veldur hver á
heldur”. Búmark ráðsins kostar
meðal heimili nú um 150 þúsund kr. í
útflutningsbætur á ári en bótaréttur
mun verða um600milljónir kr.”
Skoöum þetta aðeins betur. 600
milljónir deilt með 150 þúsund gera
4000 heimili í landinu samkvæmt út-
reikningi Jónasar. Ef maöur deilir
þessum 4000 fjöldskyldum í íbúatölu
lands okkar sem var 240 þúsund 1.
des. 1984 kemur út talan 60, sem er sú
fjölskyldustærð sem Jónas virðist
byggja útreikninga sína á. Nú verð
ég að játa að mér er ókunnugt um
hversu stór meöalfjölskyldan á
tslandi er í dag, en að hún gæti verið
sextíu manns hefur mér aldrei dottið
í hug. Eg hef reyndar aldrei heyrt
talaö um svo stóra f jölskyldu.
Þorsteini þykir dýrt að ieigja spólur með framhaldsþáttunum Dalias.
Dýr Dallas
orsteinnhringdi:
Mig langar að bera fram kvörtun
egna Dallasþáttanna sem hægt er að
i leigða á bensínstöðvum Olís. Mér
nnst fullmikið að borga 200 kr. fyrir
ina spólu með tveim þáttum. Maður
orgar t.d. 100 kr. fyrir leigu á mynd
em er einn og hálfur tími eins og tveir
lallsþættir. Eg veit líka að aðrir
ambærilegir framhaldsmyndaflokk-
r, eins og Dynasty og Falcon Crest,
ru ódýrari. Það kostar um 100 kr.
ver spóla með þeim þáttum.
HORFIN
SNJÓDEKK
Arnar Guðmundsson hringdi:
Eg var staddur á bílaplani úti á
Gróttu þriðjudaginn 29. jan. Skildi ég
þar eftir skainma stund fjögur 13
tommu snjódekk. Þegar ég kom svo,
aftur og ætlaði aö ná í þau voru þau
horfin. Þessi missir kemur sér afar illa
fyrir mig og mig langar því að biðja þá
sem geta gefið einhverjar upplýsingar
um máliö að hring ja í mig í síma 76932.
örn Vigfússon
hjá Olís:
„Okkur hafa ekki borist neinar áber-
andi kvartanir út af verðinu á Dallas-
spólunum. Astæðan fyrir því að hver
spóla, með tveim þáttum, kostar 200
kr. er sú að höfundarrétturinn á
þáttunum er mjög dýr. Við getum þess
vegna ekki haft verðið lægra en það er
ídag.”
KARIUS
OG BAKTUS
Á SKJÁINN
Theodóra Ólafsdóttir hringdi:
Nú er mikið talað um tannvemd og
í tilefni þess finnst mér að sjónvarpið
ætti að endursýna myndina um
Karíus og Baktus. Þessi mynd hefur
áhrif á hugarfar krakkanna til hins
betra og þar að auki er hún
bráðskemmtileg. Sjónvarpið getur
alveg eins endursýnt hana eins og
margt annað efni sem verið er að
endursýna þessa dagana.
EINEYGÐIR
ÖKUMENN
Sigfús hringdi:
Eg fagna þeirri framkvæmd lög- Mér finnst bara aö það megi ganga
reglunnar að taka og sekta bílstjóra ennþá lengra með því t.d. að svipta
sem aka um á hálfljóslausum bílum. hreinlega þessa slóöa ökuleyfinu.
Þetta er stórhættulegt í svartasta Það myndi kenna þeim að hafa sín
skammdeginu og á ekki aö líöast. málílagi.
„Æææi, mór er svo illt
um minum."