Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1985, Side 37
DV. FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR1985.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Loks
prinsessa
fyrir
prins
Albert?
Hviksögur ganga nú um aö prins Al-
bert af Mónakó sé orðinn ástfanginn af
18 ára gamalli prinsessu, Biönku af
Aosta. Þykja þetta mikið gleðitiðindi
innan Grimaldiættarinnar sem og ann-
arra íbúa Mónakó sem finnst tími til
kominn að prinsinn hætti aö dandalast
meö einhverjum sýningarstúlkum og
festi auga á einhverri meö blátt blóð í
æðum.
Þá hafa þessi tíöindi ekki síður vakiö
mikinn fögnuð í Danmörku. Bianka
prinsessa er nefnilega barnabama-
barn Georgs L, fyrrverandi Grikk-
landskonungs, sem fæddur var prins af
Danmörku. Hún er elsta dóttir hertog-
ans af Aosta og Kládíu hertogaynju af
Orléans.
Bianka þykir uppfylla allar þær kröf-
ur sem gera verður til tilvonandi her-
togaynju af Mónakó. Hún þarf að geta
sinnt opinberum skyldum og standa
undir þeirri tilbeiöslu sem enn fylgir
nafni Grace furstafrúar í hugum
Mónakóbúa.
Bianka prinsessa af Aosta þykir nú
liklegust til afl verfla furstafrú af
Mónakó.
Clark
Gable
Clark Gable viröist seint ætla að
gleymast sinni kynslóö. Nú er farið að
framleiða hann í brúðuformi og ku
seljast vel. Brúðan er úr taui en andlit
og hendur úr postulíni. Fyrir æstustu
aðdáendur er hægt að fá Gablebrúðuna
með gullslegna skyrtuhnappa og gylit-
an stafhnúð og kostar sú útgáfa tæpar
100 þúsund krónur. Odýrari útgáfurnar
eru á um 5 þúsund krónur.
Apakötturinn Karanja er gæddur
mikluni hæfileikum. Þcssi simpansi
hefur leikið í mörgum kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum og gert hinar ótrú-
legustu kúnstir. Hann getur meira að
segja blásið kúlutyggjó. Eins og sést á
annarri myndinni býst hann greinilega
við miklum hvelli þegar kúlan spring-
ur. Og það reyndist rétt enda klístrað-
ist hún út um allt andlit. Það fylgir
ekki sögunni hvernig honum gekk að
þrifa klístrið af ioðnu fésinu.
%
• ★
Michael Jackson hefur skrifað
kvikmyndahandrit hvers efni vér á
Sviðsljósinu þekkjum ekki. Hins
vegar hefur hann sent það tll leik-
konunnar Katherine Hepburn að
jví er vér vitum. Hún hefur áhuga
á að taka aö sér hlutverk í væntan-
legri kvikmynd. Þar á hún að leika
veUauðuga frú sem sýnir pUtinum
Michaei væntumþykju sína.
Boy George er heldur ánægöur
þessa dagana enda er hann nýbú-
inn að skrifa undir samning um
tónleika í Bandaríkjunum ásamt
Elton John. Tónleikarnir verða
sendir um gervihnött tU allrar
heimsbyggðarinnar og þeir kump-
ánar fá um 180 mUljónir islenskra
króna fyrir viðvikið. Það ættl að
verða tU skiptanna.
Marlon Brando átti ekki sjö dag-
ana sæla um jólin. Hin 27 ára
gamla hjásvæfa hans varð æf þeg-
ar Brando réð unga ofc lagiega snót
tU að sjá um húsverkin á helmUinu.
Hjásvæfan yfirgaf vUluna á Tahiti
og kom ekki aftur fyrr en Brando
hafði rekið húshjálpina, níu dögum
siðar.
Brigitte Bardot, kynbomban ald-
urhnigna, f ékk litUsháttar áfall dag
einn fyrir skömmu er hún var í búð-
arrápl í St. Tropes. „TU hamingju
með brúðkaupið,” sagði cin búðar-
lokan við hana. Það kom þá í ljós að
sonur Bardots hafði gift sig daginn
áður án vitundar mömmu gömlu.
Sonurinn hafði gefið þá yfirlýsingu
að hann ætlaði að eignast börn sem
fyrst. AfaU Bardot stafaðl af tU-
hugsuninni um að verða amma.