Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1985, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR1. MARS1985.
3
Víkingur og Sjávarf réttir í hart saman:
Keppinauturinn
kæröur til RLR
Forráöamenn sjómannablaösins
Víkings hafa kært Sjávarfréttir til
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Er kær-
an lögö fram í kjölfar auglýsingar
Frjáls framtaks á timaritinu Sjávar-
fréttum.
Upphaf málsins var þaö að Frjálst
framtak auglýsti Sjávarfréttir „sem
fjórum sinnum útbreiddara en nokkurt
annaö blað á sviði sjávarútvegs. ’ ’
Forráðamenn Víkings kærðu máliö
til verðlagsstofnunar. Við athugun
kom í ljós að gömul filma með um-
ræddri auglýsingu hafði í ógáti verið
tekin til notkunar. Að þeim skýringum
fengnum lét Verðlagsstofnun málið
niöur falla.
„Eg hreinlega skil ekki svona vinnu-
brögð,” sagði Sigurjón Valdimarsson,
ritstjóri Víkings, við DV. „Þarna er
birt fullyrðing sem engin stoð er fyrir
og er beinlínis gerð til að selja auglýs-
endum auglýsingagildi sem ekki er til.
Að mínu mati er þetta þjófnaður og
hann verulegur”.
Sigurjón sagði að eina rannsóknin
sem lægi fyrir á útbreiðslu blaðanna
benti til þess að Sjávarfréttir hefðu
nær helmingi minni útbreiðslu en
sjómannablaðið Víkingur. Væri þar
um að ræða upplagskönnun Hagvangs
sem gerð hefði verið fyrir tveim árum.
„Ég get því ekki sætt mig við annað
en opinbera rannsókn á útbreiösiu
blaðanna tveggja svo hægt sé að bera
auglýsingagildi þeirra saman,” sagði
Sigurjón, „ég hef því beðið lögfræðing
blaðsins um að kæra málið til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.”
-JSS
Verðlagsstofnun:
Varar við megrunartei
Verölagsstofnun varar við sannleiks-
gildi áhrifa grenningartes sem auglýst
hefur veriö undanfarið. Það er fyrir-
tækið Póstval sem auglýsir og í
auglýsingum er fullyrt að teið geti gert
marga hluti. Neyslu þess fylgi ekki
sultur, ekki þurfi að breyta
matarvenjum, engar æfingar þurfi að
gera og ekki séu aukaverkanir.
Verðlagsráð vísar til þess að sænsk
neytendayfirvöld hafi nýlega komist
að þeirri niðurstöðu að enn hafi ekkert
megrunarefni á markaðinum sýnt
fram á þá eiginleika sem lofað er í
auglýsingum.
Bent er á þá staðreynd að enginn
verður grennri nema hann minnki
t.d. viðsigfitu-eðasykurát. APH
„Eins og að vera
í stofufangelsi”
eitt stærsta háhýsi höf uðborgarsvæðisins lyf tulaust
Slæmt ástand er nú í einu háhýsi
borgarinnar eftir að lyfta brann yfir
þar í húsinu. Nokkrir sjúklingar eru í
húsinu og hafa þeir veigrað sér við
að fara út eftir að þetta gerðist.
Það var um síðustu helgi, að eldur
kom upp í lyftunni í Engihjalla 19 í
Kópavogi, sem er átta hæöa hús.
Brann mótor sem keyrir lyftuna
áfram. Hefur ekki tekist að gera við
hann ennþá og ekki útlit fyrir að það
verði gert á næstunni þar sem
langan tíma tekur að gera við hann.
„Þetta er allt í lagi fyrir fullfrískt
fólk,” sagði einn íbúi í húsinu í
samtali við DV. „Verra er það fyrir
þásjúklinga semhéreru.”
Hann sagði að nokkrir íbúanna
ættu við hjarta- og kransæða-
sjúkdóma að stríða og fleira í þeim
dúr. „Þetta fólk veigrar sér við að
fara út. Þaö er í lagi þegar það
gengur niður stigana en á afskap-
lega erfitt eða ómögulegt með að
komast aftur upp. Þetta er líkast því
að vera í stofufangelsi,” sagði hann.
-KÞ
Algeng sjón i Engihjalla 19 þessa
dagana. í stigunum er oft þröng á
þingi þvi i húsinu býr mikill fjöldi
fólks. Á innfolldu myndinni er
slökkviliðið á staðnum.
DV-myndir GVA og S
DMSKU SUMARHUSIN
Herzlich willkommen in Bayern!
segja Gerlinde og Horzt Roth, þýsku
hjönin í sumarhúsunum í Oberall-
gau. Einstök gestrisni og hlýtt viðmót
þýsku gestgjafanna skapar heimilis-
legt andrúmsloft á þessum frábæra
orlofsstað, og þeim til aðstoðar í
sumar verður íslensk stúlka, Rut
Gylfadóttir.
Oberallgau er í bæjersku sveit-
inni með skógi vöxnum hlíðum, gam-
aldags þorpi, værðarlegum kúm á
beit og sumarblíðu. í boði eru 131
íbúð, eins til fjögurra herbergja,
þ.e.a.s. 2-6 manns í íbúð. í þeim
eru öll heimilisþægindi fyrir kröfu-
harðasta fólk, eldhús með eldavél,
ísskáp og borðbúnaði, baðherbergi
eða sturtubaði, rúmfatnaður og sími.
Einnig er hægt að fá hálft eða heilt
fæði og fullkomna hótelþjónustu.
Oberallgau býður upp á matsölu-
$tað, bar, ölstofu, spilastofur (keilu-
spil), saunabað, sólbaðslampa,
heilsunudd tvisvar í viku, tennisvöll,
innisundlaug, barnaleikvöll, reið-
hjólaleigu, hljómleika, grillveislur,
skoðunarferðir, kvikmyndasýningar,
barnagæslu, dans og margt fleira.
Á svæðinu er verslun, sem selur
allar nauðsynjar. Mjólk, rúnnstykki
og morgunblöoin fær maður á dyra-
pallinum alla morgna. Örstutt er í
smáborgina Missen-Wilhams, en
þar er banki, fjölbreyttar verslanir,
pósthús, hestaleiga og margt fleira.
Kynnist Oberallgau og Suður-
Þýskalandi. Njótið þess að „rúnta“
um sveitirnar eða yfir til Sviss, Liech-
tenstein og Austurríkis.
Flug, bílaleigubíll og gisting fyrir
fjóra í íbúð,
verð: í viku Kr. 15.524 pr. mann,
í tvær vikur: Kr. 18.925 pr. mann.
Hringið í síma 28133 og fáið énn
nánari upplýsingar.
FERÐAMIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133 11255