Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1985, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR1. MARS1985.
Neyfendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Öta/ réttir úr hökkuðu kjöti
Hægt er að búa ótal rétti til úr hökk-
uöu kjöti. Þaö geta bæði verið hvers-
dagsréttir og einnig réttir sem hægt er
að nota spari. Nægir að nefna pínu-
bollur sem oft er boöiö upp á í kokkteil-
boðum.
1 kjötbúöum erlendis er hægt aö fá
kjötið hakkað á meöan viðskiptavinur-
inn horfir á. I kjötbúðum höfuðborg-
arinnar eru á boöstólum margar
tegundir af hökkuðu kjöti og er þaö
mjög misjafnt eftir verslunum.
Reynið eftir megni aö foröast allt of
feitt kjöt sem er ekki heppilegt í neina
rétti og auk þess bæði óhollt og allt of
fitandi.
Gott ráö til að drýgja rétti úr hökk-
uðu kjöti er að setja hakkaðar soönar
kartöflur saman við deigið. Það drýgir
og mýkir kjötdeigiö. Einnig má nota
haframjöl sem gerir svipað gagn.
Hakkað buff með
rifnum osti
500 g hakkaö kjöt
3 dl rifinn ostur
legg
2 msk. kartöflumjöl
2 dl vatn
l/2tsk.salt
smjör/smjörlíki
salt, pipar.
Hræriö kjötdeigið saman. Búið til tíu
buffkökur úr deiginu. Bræðið smjörlíki
í ofnskúffunni viö 250°C í ca 3 mín.
Raðið buffunum í og steikið kjötið í ca 5
mín. Takið ofnskúffuna þá út og snúiö
kjötstykkjunum og steikið áfram í 10
mín.
Boriö fram með kartöflustöppu og
soönu korni.
Hakkað buff
með sinnepi
500 g hakkað kjöt
2 msk. sinnep
1 tsk. karrí
1 dl fíntskorinn púrrulaukur
2 dl mjólk eða vatn
1 tsk. salt
legg
2 msk. kartöflumjöl
salt og pipar
Hrærið kjötdeigið saman. Búið til
tíu buffkökur sem eru steiktar í feiti á
pönnu í ca 3—4 mín. á hvorri hliö.
Boriö fram með soönum kartöflum
og hrásalati, t.d. rifnum rófum með
sítrónusafa og rúsínum.
Kjötbollur
Þessi kjötbolluuppskrift er sænsk-
ættuð en þar í landi búa menn alltaf
sjálfir til kjötfarsið sitt. Okkur vit-
anlega er kjötfars eins og við þekkjum
í búðunum hér ekki algengt á
erlendum vettvangi.
500 g hakkað kjöt
1 lítill gulur laukur
2 msk. kartöflumjöl
1 dl vatn eða mjóik
legg
11/2 tsk. salt
pipar
smjör/smjörlíki
Flysjið og hakkið laukinn smátt.
Búið til kjötdeigiö. Formið fremur litl-
ar bollur, — þær geta orðið þrjátíu og
fimm talsins.
Steiking í ofni
Bræöiö feitina í ofnskúffunni við ca
250°C í 3 mín. Látið bollurnar í
MOKKA
FYRIR
HÁTTINN
Það getur verið gott að fá sér
eitthvaö heitt þegar komið er heim úr
heilsubótarkvöldgöngunni. Heitt
mokkakaffi hljómar mjög vel.
Blandið saman 1 hluta af sterku
kaffi, 1 hluta af kakói eöa kókómjólk.
Hitið varlega að suðupunkti, ath.,
ÞETTA MÁ EKKISJOÐA. Bragðbætiö
meö sætuefni og berið fram strax í
stórum bollum. Látið eina skeið af ís-
köldum þeyttum rjóma ofan á og stráið
súkkulaðispónum eða kókómaltdufti
yfir. Nammi namm.
-A.Bj.
FRELSISSTYTTA Á FLAKKI!
Það var á síðastliðnu hausti að fréttist til höfuð-
staðarins að eitthvað mikið væri að gerast fyrir austan
— nánar tiltekið á Seyðisfirði. Þar var unnið að upp-
töku á nýjustu Stuðmannamyndinni, „HVÍTIR
MÁFAR", sem frumsýnd verður á næstunni. VIKAN
sýnir í tveimur opnum hvernig tveir dagar við tökurnar
liðu á Seyðisfirði í haust.
„ÉG GET VEL SETIÐ MORGUN-
STUND ÁN ÞESS AÐ TALA UM
PÓLITÍK"
— segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Hér er brugðið upp mynd af Þorsteini í viðtali, að sumu
leyti annarri en birtist vanalega i fjölmiðlum. En pólitíkin er
ekki langt undan.
STOR-HVIT
PEYSA MEÐ FJÖRLEG-
UM RÖNDUM.
Hvítur litur á fatnaði er mikið í tisku um þessar mundir. Því birtum við
uppskrift að hvitri peysu sem skreytt er fjörlegum röndum.
GÖNGULEIÐIR í BLÁFJÖLLUM
Fyrir nokkru birtum við yfirlitsmynd af skiðasvæðinu í Bláfjöllum. Við
látum ekki deigan siga og birtum nú kort af Bláfjöllum og nágrenni þar
sem dregnar hafa verið inn nokkrar gönguleiðir.
Enn sem fyrr er auglýsingín ódýrust í Vikunni. — Getum veitt aðstoð
við uppsetningu auglýsinga. Vikan, auglýsingar, sími 68-53-20.
Misstu ekki VIKU úr lífi þínu!
'kí r/Mi'
lUfMílV*
NEYTANDINNIAMERIKU:
MOTSPYRNA
í BANKANUM
Óskar Magnússon, DV,
Washington:
Amerískt bankakerfi er ótrúlega
þungt í vöfum. I þessu landi frjálsrar
samkeppni og blómstrandi viðskipta
getur verið erfitt að skipta pundum í
dollara svo ekki sé meira sagt.
Bankarnir eru svæðisbundnir. Al-
mennt talað hafa bankar ekki heimild
til að hafa útibú út um öll Bandaríkin.
Þannig tilheyra flestir bankar bara
ákveönu ríki eða jafnvel enn þrengra
svæði. Og þegar matvöruverslunin er
opin allan sólarhringinn þá þarf maður
að vanda sig verulega til að hitta á
bankann opinn. I stórum dráttum eru
þeir opnaðir á skikkanlegum tíma á
morgnana en er langfléstum lokaö
klukkan tvö á daginn. Sumir eru
opnaðir aftur síödegis einn dag í viku.
Þegar lokað er geta menn aö vísu tekið
út peninga úr peningavélum eins og
Iðnaðarbankinn hefur komiö sér upp.
Ávísanareikningar kosta
Til að sleppa við gjöld af ávísana-
reikningi má inneignin ekki fara niður
er að ætla sér aö borga hvar sem er
með ávísun. Ævinlega þarf að fram-
vísa persónuskilríkjum. Sums staöar
dugar ekkert annaö skilríki en
amerískt ökuskírteini. Á því virðist
vera tekið meira mark en öðrum skil-
ríkjum. Vonlaust er að veifa íslensku
vegabréfi.
Mótspyrna
Um daginn gerði ég tilraun til aö
skipta gyllinum, pundum og pesetum í
bankanum minum. Ég mætti umsvifa-
lausri mótspyrnu. Mér var tjáð aö
bankinn stæði ekki í slíkum viðskipt-
um. Með því aö brúka munn og segjast
vera digur viðskiptavinur var loks
fallist á að reyna að skipta. Síðan
hófust hringingar í alla menn dauða og
lifandi nema Reagan forseta. Loks var
fallist á að skipta pundunum og gyllin-
unum. Gengiö á pesetanum haföi stúlk-
unni ekki tekist að fá upp.
Við frekari könnun kom í ljós aö það
er aðallega einn banki hér á Stór-
Washington svæðinu sem skiptir
erlendum gjaldeyri.
Bankinn er sjaidan opinn og þjónustan þung í vöfum.
DV-mynd HS
fyrir 20 þúsund krónur. Þeir sem
treysta sér ekki til aö eiga alltaf 20
þúsund standandi á ávísanareikningn-
um verða aö greiöa fyrir hverja færslu
á reikningnum og fá auk þess enga
vexti. Vextir koma svo til ef inneignin
er nægilega há. Vaxtafóturinn er þá
misjafn eftir innstæðu.
Sjálf ávísanaheftin eru ekki dýr. Þau
geta menn fengið í ýmsum litum að
eigin vali. Þeir sem vilja geta líka
keypt ávísanahefti með landslags-
myndum eöa þvílíku. Slík hefti eru
venjulega til styrktar einhverri góð-
gerðarstarfsemi. Nafn reikningshafa
og heimilisfang er prentaö á eyðu-
blöðin.
Varkárni
Ávísanir eru notaðar meö allt öðrum
hætti hér en á Islandi. Þýöingarlaust
Til að reyna máliö til þrautar var
trommað þangaö meö sams konar
beiðni. Þar voru menn sæmilega
sjóaðir. Vissu til dæmis að pesetinn
væri ættaður frá Spáni. Hins vegar
sögðust þeir aldrei skipta meira en
sem svaraði 10 þúsund krónum á einu
bretti. „Koma bara aftur á morgun”.
Þá versnariþví...
En komi maður með ávísun á
amerískan banka versnar í því. Ekki
má leggja slíka ávísun beint inn á
reikninginn sinn. Fyrst þarf aö kanna
bakgrunn hennar vandlega. Það tekur
venjulega 9 daga, ef ávísunin er í doll-
urum. Sé hún hins vegar í pundum eöa
öörum gjaldmiðli, er hún takk fyrir
send til bankans sem hún er gefin út af.
Þaö tekur 4 til 6 vikur.
Á meöan naga menn innan úr
appelsínuberki og drekka kranavatn.
óm.