Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1985, Page 11
DV. FÖSTUDAGUR1. MARS1985.
Treholt
hifh
mange- j
millioetær.
Mörgum finnst umfjöllum norskra blaða um Treholt-málið og önnur einkennast af fullmikilli trúgirni á allt
það sem yfirvöld láta frá sér fara. Gleymist kannski að maður er saklaus þangað til sekt er sönnuð.
FjölmiðlaríNoregi:
KLAPPLH) LÖGREGLUNNAR?
Framganga fjölmiðla í Treholt-
málinu hefur vakið ýmsar spurning-
ar um hlutverk þeirra í svona saka-
málum hér í Noregi. Margir eru
farnir að spyrja hvort þeir séu hlut-
lausir miðlar upplýsinga eða bara
klapplið lögreglu og yfirvalda. I dag-
blöðum hefur, síðan Treholt var fyrst
handtekinn, verið gengið frá því sem
visu aö engin spuming sé um sekt
Arne Treholts. Virðast blaðamenn
þar hafa farið algerlega eftir frétta-
tilkynningu ríkissaksóknara, lagt
áherslu á mismunandi atriði hennar,
spunniö í kringum þekktar
staðreyndir og skáldað og hugsað
upphátt í eyðurnar.
Einn ritstjóri blaösins Dagen í
Björgvin hefur skorið sig mjög úr
hvað þetta varðar. Hann hefur allan
tímann neitaö að birta nafn Treholts
og hann birtir mynd af honum með
þykkt, svart strik yfir andliti hans.
Það er ritstjómarstefna blaðs hans
að birta ekki nöfn fólks fyrr en það
hefur verið dæmt og við hana
stendur hann. Hann segir galvaskur
að ekki komi til greina að birta nafn
Arne Treholts og flestir blaðamenn
blaösins styðja hann.
Háværar umræður
Allt þetta hefur orðið til þess að
tvær sögur hafa rifjast upp fyrir
mönnum hér og um allt málið hafa
nú skapast háværar umræður i
Noregi.
Annað máliö er frá því fyrir
tveimur árum. Þá fundust tveir
strákar myrtir. Kom í ljós að þeir
höfðu verið skotnir af nýnasistum.
Reyndar voru það tveir félagar
strákanna sem höföu skotið þá. Þeir
höfðu allir fjórir brotist inn í vopna-
geymslu hersins. Þeir ætluðu að
stela vopnum til að byggja upp eigin
her. Tveir þjófanna, sem voru
harðsvíraðir nýnasistar, skutu svo
félaga sína, sem voru nær því að
vera bara ótíndir glæpamenn, eftir
að hafa framið glæpinn.
Morðingjarnir tveir viðurkenndu
síðar við yfirheyrslur að hafa framið
glæpinn en sögðu að höfuðpaurinn í
öllu saman væri maöur að nafni
Espen Limd. Sá maður var sonur
manns sem á stríösárunum haföi
veriö í liði með Þjóðverjum. Nasistar
eru enn mjög hataðir eftir styrjald-
arárin og hernám Þjóöverja. Dag-
blöðin komust í málið og krossfestu
Lund og þótti lesendum liklega
flestum það af hinu góða.
Ofsóknir
Espen Lund var dæmdur í fang-
elsi. Þar hefur hann verið í tvö ár og
þar er hann enn. Nú kemur hins veg-
ar í ljós að hann hefur fjarvistar-
sönnun sem sýnir aö hann hafi verið
heima hjá sér þegar morðið var
framiö. Yfirlýstu morðingjarnir
tveir segja nú að hann hafi ekki verið
viðriðinn morðið. Sá grunur gerir
mörgum í Noregi órótt að ofsóknir
og fyrirfram dómur blaöanna hafi
ekki hvaö síst átt sinn þátt i að koma
Lund í fangelsið.
Lund reynir nú að fá mál sitt tekið
upp aö nýju en samkvæmt norskum
lögum er það ekki sérlega auðvelt.
Þó bendir ýmislegt til að það fáist
hjá honum, enda er að verða ljóst að
maöurinn kom ekki nálægt
moröunum.
Dagblööin öll viðurkenna nú að
hafa skrifað rangt um málið og að
hafa látiö kappið hlaupa með sig í
gönur.
Var saklaus
Hitt málið varðar mann sem hóf
söfnun til að stofna barnaheimili.
Þessi söfnun var fyrir það sem hann
kallaði Nordisk Barnefond. Hún fór
fram um öll Norðurlönd.
Fyrir peningana stofnaði hann
siöan barnaheimilin. Síðan fór að
kvisast út að ekki væri allt með
felldu á barnaheimilum hans. Lög-
regla komst í málið og lak þvi öllu í
blöðin sem hungraöi eftir slíkum
fréttum. Fólk fór að taka börn sín af
barnaheimilunum. Fór svo að lokum
að maðurinn varð að leggja þau
niður og hætta við allt saman vegna
blaöaskrifanna. Hann hafði þegar
verið dæmdur í blööunum og gat ekki
haldiö áfram.
Síðar kom í ljós að maöurinn var
fullkomlega saklaus. Ekkert hafði
gerst á barnaheimilunum sem
varðaði við lög. En starfsemin hafði
verið eyðilögö.
Allt bendir til að lögreglan hafi
vísvitandi lekið grunsemdum sinum
í blöðin til að byggja upp málið gegn
manninum. Þegar síðan kom í ljós aö
ekkert hafði verið hæft í þeim grun
hefðu blöðin, sérstaklega Dagblaöiö
og Verdens Gang, eyðilagt æru hans.
Endurskoða
fréttamat
Nú, þegar kemur í ljós aö sekt
Treholts er ekki eins klár og sönnuð
og lögregla haföi upphaflega gefið i
skyn, eru fjölmiðlamenn farnir að
endurskoöa fréttamat sitt og um-
fjöllun alla um sakamál. Ritstjórinn
á Dagen stendur á þvi fastar en
fótunum að hann muni aldrei
eyðileggja æru annars manns fyrr
en búið er að dæma hann.
— ÞóG.
Jón Einar Guð jónsson, Osló, skrifar:
AUGLÝSIR
«115
STÓR-
UEKKUN
uni KJOTI
vegna hagstæðra
innkaupa
Nautahakk kr. 198,- kg.
Nautagúllas kr. 271,- kg.
Nautasnitsel kr. 289,- kg.
Nautabuff kr. 319,- kg.
Nautalundir / og hryggvöðvar kr. 349,- kg.
Nautabógsneiðar kr. 198,- kg.
Framhrygg jarsneiðar kr. 239,- kg.
Verð þetta bjóðum
við meðan birgðir
endast.
n
Tilboð helgarinnar
jia Pizza stór kr. 155,-
Jl! Pizza lítil kr. 119,-
Knorr-súpur verð frá kr. 17,40
Kynning í dag
kl. 15-19
á Egils-sykurlausum juice.
Kynningarverð kr. 74,35 brúsinn.
jp|g
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600