Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1985, Side 36
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985.
Bflþjófur:
Fimmtán
r
ara
og ölvaður
Tveir ölvaðir piltar, 15 og 20 ára,
tóku Lada-bifreið traustataki i nótt
þar sem hún stóö við Síöumúla í
Reykjavík. Oku piltamir víöa um
borgina og til Hafnarfjarðar. Lög-
reglan kom auga á bílinn viö Silfur-
tún og stöövaði hann. Var þá sá 15
ára undir stýri og viö skál.
Piltamir viðurkenndu aö hafa
meðal annars ekiö þvert yfir hring-
torg og umferöareyju.
Sá eldri var fluttur í fanga-
geymslur lögreglunnar en sá yngri
dvaldi á Upptökuheimilinu í Kópa-
vogi í nótt. -EH.
Bílstjórarnir
aðstoða
25Ú5&
SZTlDIBÍLnSTÖÐin
„Kennarastéttinni til vansæmdar,” segir menntamálaráðherra:
Framhaldsskólar lamast
„Þeir kennarar, sem sagt hafa upp
störfum, gangi úr þeim 1. mars.” Á
þessa leið hljóðaöi samþykkt sem
gerð var á 300 manna kennarafundi í
MH í gær. Það var yfirgnæfandi
meirihluti sem ítrekaði uppsagnir
sínar. Meö samþykktinni voru 229, á
móti 49 og auðir seölar voru 13.
Það er því ljóst aö skólahald í all-
flestum framhaldsskólum landsins
fer verulega úr skorðum frá og meö
deginum í dag.
Nemendur mættu misjafnlega í
skólana í morgun. Skólastjórar höföu
ekki ákveöiö til hvaða aðgerða yrði
gripiö.
I Menntaskólanum í Reykjavík var
kennt í 9 af 22 tímum í fyrsta tíma.
Guöni Guðmundsson rektor sagöi aö
erfitt væri aö fullyrða um hvernig
skólahaldiö yrði. Ekki væri ljóst
hversu margir kennarar heföu hætt
störfum. Sumir þeirra ætluðu að
hlíta framlengingu uppsagnarfrests-
ins.
„Ætli maöur reyni ekki að troða
marvaöann fram yfir helgi og sjá
hvaö gerist í samningamálum áður
en gripið verður til sérstakra ráö-
stafana,” sagði Guðni ímorgun.
IMS var sama óvissuástandiö. Þar
hafa 35 af 68 kennurum skólans sagt
upp störfum.
1 MH mættu 9 kennarar af 26. Þar
voru eins og vera ber fjölmargir
nemendur í reiðuleysi. örnólfur
Thorlacius sagöi í morgun að hann
heföi átt von á þessu hlutfalli og taldi
að það ætti eftir að haldast á meðan
þetta ástand ríkti. Hann sagði aö leit-
að yrði til ráðuneytisins um til hvers
yrði gripið.
„Ég tel þessar aðgerðir kennara
vera kennarastéttinni til vansæmd-
ar, því miður, og nemendum til tjóns.
Auk þess gera þær vinnu að lausn
málsins mun erfiðari,” sagði Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráð-
herra í morgun. „Við hér í ráöuneyt-
inu höfum lagt nótt við dag til að
vinna að hagsmunamálum kennara.
Seinast í gær var þeim afhent mjög
mikilsverðskýrsla.
Hver kennari verður að gera það
upp við samvisku sína hvort hann
sýnir umhyggju fyrir nemendum sín-
um og mætir til skyldustarfa sinna.
Uppsagnartíminn er 1. júní.”
APH
Hafir þú ábendingu
efla vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Við tökum
við fráttaskotum
allan sólarhringinn.
Pilturinn var fluttur á siysadeild.
DV-mynd S.
Margbrotinn
15 ára piltur á bifhjóli varð fyrir bil
á gatnamótum Langholtsvegar og
Álfheima laust fyrir klukkan átta í
gærkvöld. Bifreiðinni, sem var af
Fiat-gerð, var ekið norður Lang-
holtsveg. Ok bíllinn í veg fyrir bif-
hjólið sem kom suður Langholtsveg
að gatnamótunum. Sagðist bílstjór-
inn ekki hafa séð bifhjólið fyrr en
hann rakst á það í beygjunni.
Pilturinn var fluttur á slysadeild,
lærbrotinn og axlarbrotinn. Bæði
ökutækin eru mikið skemmd. -EH.
Yfirmenn sömdu en sjómenn gengu út:
Vilja þrjátíu þús-
Samingur útvegsmanna og yfirmanna á fiskiskipum undirritaður í nótt. Gufljón A. Kristjánsson, for-
maflur Farmanna- og fiskimannasambandsins, skrifar undir. DV-mynd GVA.
Stakk af
afslysstað
Ekið var á miðaldra konu viö
Norðurfell um áttaleytið í gærkvöldi.
Bílstjórinn stakk af af slysstað.
Konan féll í götuna og fékk skurð á
höfuðið. Talið er að hún hafi verið
ölvuð. Konan var flutt á slysadeild
þar sem gert var að sárum hennar og
fékk hún síðan að fara heim. Lög-
reglan leitaði bílsins í gærkvöldi og
nótt en án árangurs. -EH.
Samingurinn frá því í gærkvöldi
verður borinn undir atkvæði í félög-
um yfirmanna í dag. Búist er við að
sáttasemjari kalli sjómenn og út-
vegsmenntilnýsfundarídag. KIVIU.
Frjálst,óháð dagblað
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
und i kauptryggingu
Fulltruar utvegsmanna og yfir-
manna á fiskiskipum undirrituðu
nýjan kjarasamning um klukkan eitt
i nótt eftir 36 stunda samningalotu án
svefns. Fulltrúar sjómanna voru
hins vegar farnir heim.
Samningurinn við yfirmenn var
gerður á grundvelli sáttahugmynda
Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissátta-
semjara sem hann lagði fram klukk-
an fimm i gærmorgun. Auk þess var
lögð fram yfirlýsing ríkisstjórnar-
innar um meðal annars hærri sjó-
mannafrádrátt og meiri fæðispen-
inga.
Kauptrygging hækkar úr um
19.500 krónum upp í 27.000 krónur frá
áramótum. Hækkanir síðar á árinu
eru eins og í samningi ASI og VSI.
„Það er alrangt að við höfum sett
fram nýjar og óbilgjamar kröfur í
gærkvöldi. Við lögöum fram úrslita-
kröfur til að reyna að finna lausn á
þessari deilu,” sagði Öskar Vigfús-
son, forseti Sjómannasambands Is-
lands, í morgun.
„Við sættum okkur ekki við það að
samninganefnd útvegsmanna ryðji
öllum okkar kröfum út af borðinu og
bjóði okkur upp á samkomulag sem
hún hafði boðið Farmanna- og fiski-
mannasambandinu. Við sættum okk-
urekki viðþað.”
— Hefur deilan harðnað núna?
„Eg skal ekki segja það. En ekki
hef ur verið liökað f yrir. ’ ’
— Munar miklu?
„Það munar miklu ef litið er á
þetta frá þeim dyrum að viljinn virð-
ist ekki vera mikiUt;il samningagerö-
ar við okkur af hálfu LlÚ.”
— Hver er ykkar krafa?
„Okkar krafa kom fram í lokatil-
boði okkar í gærkvöldi um rúma
þrjátíu þúsund króna kauptryggingu
frá nóvember síöastUðnum og að
samiö yrði mn aðrar kröfur, sem aö
okkar mati eru sanngjarnar og eiga
ekki að vera til trafala ef vilji er fyrir
hendi af hálfu okkar viðsemjanda,”
sagði Oskar.