Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1985, Blaðsíða 1
Von um árangur í sjómannadeilunni?
SAMNINGAFUNDI
ÓVÆNT FLÝTT
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari ákvað óvænt seint í gær-
kvöldi að flýta samningafundi i
kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna. Fundurinn hafði verið boð-
aöur klukkan 16 i dag. Þess i staö
hófst hann klukkan 10 í morgun.
„Fundinum var flýtt vegna óska
margra félaga, bæði félaga útvegs-
manna og félaga sjómanna,” sagði
Oskar Vigfússon, forseti Sjómanna-
sambandsins, í morgun.
Svartsýni rikti í gær um framhald
deilunnar sem komin var í sjálf-
heldu. Þessi fundabreyting gefur
hins vegar ástæöu til að ætla að von
sé á einhverrihreyfingu.
Hvorki Oskar Vigfússon né Kristj-
án Hagnarsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, vildu i morgun segja hvort
eitthvaö nýtt hefði verið sett fram.
Hvorugur taldi sig geta sagt neitt
fyrr en að f undinum loknum.
„Þetta hlýtur að gefa vísbend-
ingu,” sagði Kristján Ragnarsson.
-KMU.
— sjá nánarábls. 2
Sú litla hvíldi róleg á sínu rétta heimili í gærdag.
DV-mynd Bj. Bj.
„Þetta voru mannleg mistök. Bömin
voru rétt merkt og mæðumar líka en í
flýtinum hefur þetta ruglast,” sagði
Gunnlaugur Snædal, yfirlæknir á fæð-
ingardeild Landspítalans. „Þetta er
svona eins og þegar maður tekur vit-
lausa tösku á harðahlaupum á flug-
velli.”
1 fyrradag fékk danska stúlkan Lena
Betak „vitlaust” bam heim af fæðing-
ardeildinni. Á meðan lá hennar eigið
bam í faðmi annarrar konu á fæðing-
ardeildinni.
„Þetta er gamall skrekkur allra fæð-
ingarstofnana og hefur aldrei gerst
áður hjá okkur,” sagði Gunnlaugur
Snædal. „Við læknarnir stöndum hjá
og skiljum ekkert í þessu en það verður
fariö rækilega ofan í saumana á þessu
máli.” , -EIR.
k að vaka yfir 46
fyrirtækjum
Fimm manna stjórn Eignarhalds-
fyrirtækis ríkisins mun hafa í mörg
hom að líta þegar hún tekur viö
eignarráðum rikisins í líklega 46 fyr-
irtækjum. Ríkisstjórnin og stjómar-
flokkarnir fjalla nú um drög að laga-
frumvarpi um þetta nýja rikisfyrir-
tæki.
Það mun falla í hlut fjármáiaráð-
herra að skipa stjóm fyrirtækisins.
Síðan á stjómin að skipa sérstjórn,
að jafnaði til árs í senn, yfir hvert
fyrirtæki sem er hrein ríkiseign, en
fulltrúa í stjómir fyrirtækja sem rik-
iðáaðildaö.
Stjórninni eru lagðar á herðar rík-
ar eftirlitsskyldur. Fyllstu arðsemis-
og hagkvæmnissjónarmið em leiðar-
ljósin. Þá getur stjómin ráðstafað
fyrirtækjum eða fyrirtækjaeign með
alls konar hætti, selt, sameinað eða
lagtfyrirtækiniður.
Þá mun stjórninni heimilt áð leigja
einstök fyrirtæki. Eins að breyta
þeim fyrirtækjum í hlutafélög sem
ekki em það fyrir. Eignarhaldsfyrir-
tækið fær síöan allan hreinan hagnaö
af rekstri eöa arö af hlutdeild sinni.
Einnig andvirði seldrar eignar eða
eignarhluta ífyrirtótjunum.
Þaö er þó skammgóður vermir.
Eignarhaldsfyrirtækið á ekki að
safna sjóðum. Tekjum að frádregn-
um kostnaði við reksturinn „skal
varið til nýsköpunar, rannsóknar og
þróunarverkefna í þágu atvinnuveg-
anna samkvæmt ákvörðun Alþingis
hverjusinni”.
Þar með ætti hins vegar að lyftast
brúnin á þeim sem ganga nú alls
staðar á vegg i leit að fé til álitlegrar
uppbyggingar atvinnulífsins. Undir
Eignarhaldsfyrirtækið munu líklega
heyra ýmis stórgróöafyrirtæki. Næg-
ir að nefna Fríhöfnina og Sölu varn-
arliðseigna. HERB
— sjá nánará bls. 5
Geiríprófkjör
Fyrrverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráöherra, ætlar að bjóða sig
fram í næsta prófkjöri flokksins
vegna þingkosninga. Hann skýrir frá
þessu i viðtali í tímarítinu Mannlifi
sem nú er aö koma út.
I prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavik fyrir siðustu þingkosning-
ar lenti Geir í sjöunda sæti. Þaö
dugði ekki til þess að ná þingsæti.
Geir er nú fyrsti varaþingmaður
flokks síns í Reykjavikurkjördæmi.
HERB
Jón Baldvin aðalfréttaefni í Svíþjóð
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
ara DV í Lundi:
Jón Baldvin Hannibalsson var eitt
aöalfréttaefni sænskra fjölmiðla í
gær. Sænska útvarpið sagði að að-
eins eitt „truflunaratriði” hefði orðið
í sambandi við þing Norðurlanda-
ráðs, sem annars hefði einkennst af
góöum anda. Það hefði verið er Jóni
tókst aö móðga formenn allra
bræðraflokkanna á hinum Norður-
löndunum.
Hefði Jón meðal annars líkt Finn-
landi við Afganistan. Hefði það orð-
ið til þess að Kalevi Sorsa, forsætis-
ráðherra Finnlands, hefði neitað að
sitja hádegisverðarboð þar sem Jón
Baldvin var meðal þátttakenda.
Báðar rásir sænska sjónvarpsins
sýndu viðtöl við Jón Baldvin og er
óhætt að segja aö hinum nýja for-
manni Alþýðuflokksins hafi tekist að
vekja á sér athygli utan landstein-
anna. Sænska sjónvarpiö sagði með-
al annars að Jón Baldvin hefði á
skömmum tíma þrefaldað fylgi
flokks síns en væri engan veginn eins
vinsæll á þingi Norðurlandaráðs. Jón
Baldvin sagöi í viðtali við sænska út-
varpið að ef norrænni samvinnu
fylgdu ekki skoðanaskipti sem þessi
þáværihúnekkimikilsvirði. -AE
— sjá nánar á bls. 4 og baksíðu
v