Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Síða 8
48
Fermingargjafahandbók
DV. FIMMTUDAGUR 21. MARS1985.
Standlampar
í versluninni Ljósi og
orku, Suðurlandsbraut
12, er geysimikið úrval
af fallegum standlömp-
um, til dæmis þessi á
myndinni sem er meö
tveimur stillanlegum
Ijósum og kostar 1.900
krónur. Aðrar geröir
eru til frá 1.450 krónum
og upp í 2.100 krónur.
Þessir lampar eru til
hvítir, brúnir, rauðir og
úr messing. Hægt er að
fá þá með einu eða
fleiri Ijósum.
Eini sanni Luxo
í gegnum árin hefur Luxo lampinn verið í forystu
og hafa þó margir reynt að líkja eftir honum.
Luxo lampinn er vandaður eins og allir vita og
getur dugað fermingarbarninu árum saman.
Luxo er til rauður, brúnn, beis og grár og kostar
hann 1.145 krónur. Hann fæst f Ljósi og orku, Suð-
urlandsbrautl2.
Tube
unglingarúmið
Þetta sérstæða ungl-
ingarúm, sem fæst í
Habitat, er dálítiö öðru-
vísi en önnur rúm. Það
fer ekki mikið fyrir því
og gaflarnir eru eins og
rör. Rúmiö er rautt aö
lit og kostar með
springdýnu 6.430
krónur. Án dýnu kostar
rúmið 3.980 krónur.
Rúmið er einnig hægt
að fá hvftt aö lit.
Tölvuborð — stereoborð
í versluninni Habitat fást þessi þægilegu borð sem
eru á hjólum. Annað borðið er sérlega hannað
sem tölvuborð með útdreginni hillu en hitt borðiö
er sérhannaö fyrir stereotæki, plötur og þess
háttar. Tölvuboröið er 108X 73 cm og 69 cm á dýpt
og kostar 3.695 kr. Stereoborðið er 92X52 cm og 40
cm á dýpt og kostar það 2.850 krónur. Bæði borðin
eru svört að lit.
Fyrir
hestamanninn
í versluninni Hesta-
maðurinn, Ármúla 38,
sími 81146, er nánast
allt þaö til sem hesta-
maöurinn þarf á að
halda. Margir ungling-
ar eru miklir hesta-
menn og því er tilvalið
að gefa þeim eitthvað
tengt áhugamálinu f
fermingargjöf. Hnakk-
ar kosta 4.900—19.400
krónur og beisli frá
1.250 krónum. Einnig
er til f jölbreytt úrval af
hvers konar hestavör-
um og reiöfatnaöi á
alla f jölskylduna.
Guli
demanturinn
Já, það er aldeilis ekki
amalegt að fá slíkt ilm-
vatn í fermingargjöf.
Hér er á ferðinni guli
demanturinn sem kem-
ur alla leiö frá París.
Þaö er Citrine ilmvatn-
iö sem hefur hlotið
þetta viröulega nafn og
það sem er kannski
sérstæðast við þennan
demant er hversu ódýr
hann er: 50 ml glas
kostar 450 kr. og 100 ml
glas kostar 550 kr. Guli
demanturinn fæst hjá
snyrtivöruversluninni
Andreu, Laugavegi 82,
sími 27310.
Litlar leðurtöskur
Þessar litlu leðurtöskur eru eins og þær sem stelp-
urnar vilja. Þær eru með axlarólum og eru úr
mjúku skinni. Hægt er að velja um nokkrar stærð-
ir og liti. Töskur þessar fást í Tösku- og hanska-
búðinni, Skólavörðustíg 7, sími 15814, og kosta þær
frá 690 krónum og upp í 1.350 krónur.
Nýtt fyrir ferminguna
í Stjörnuskóbúöinni, Laugavegi 96, sími 23795, er
mikið úrval af fallegum skóm fyrir fermingar-
stúlkurnar. Ljósbleikir og hvítir skór eru mjög
vinsælir á þessu vori. Mokkasínurnar á myndinni
eru fáanlegar bleikar, hvítar, rauðar, gráar, bláar
og svartar og kosta 1.235 krónur. Hvítu skórnir eru
með lágum hæl og kosta |jeir 1.153 krónur. Þeir
fást eingöngu fhvftum lit.
Leðurseðlaveski
í Tösku- og hanskabúðinni, Skólavörðustfg 7, sími
15814, er gífurlega mikiö úrval af öllum gerðum
seölaveskja. Þau eru fáanleg í mörgum stærðum
og litum og kosta 325—703 krónur. Seðlaveskin eru
jafnt fyrir stráka sem stelpur og íslensku veskjun-
um fylgir nafngylling.
Fyrir mömmu og ömmu
Oft er þaö svo að fleiri en fermingarbarniö sjálft
þurfa aö fá nýja skó fyrir fermingarnar. Stjörnu-
skóbúðin, Laugavegi 96, sími 23795, býður þess
vegna upp á mikið úrval af fallegum kvenskóm.
Skórnir á myndinni með ristarbandinu kosta 1.635
krónur og eru fáanlegir svartir, gráir og hvítir.
Hinir spariskórnir eru belgískir og kosta 1.650
krónur.
Cavalet ferðatöskur
Þaö er framtíöareign að fá góða feröatösku í
fermingargjöf. í Tösku- og hanskabúðinni, Skóla-
vörðustíg 7, er mjög mikið úrval af hinum vönd-
uöu og góöu Cavalet ferðatöskum. Þær eru til frá
1.350 krónum og upp í mjög dýrar og íburöarmikl-
ar töskur. Hægt er að fá þær með hjólum eða án
þeirra og meö mismunandi fóðri. Einnig fást í
Tösku- og hanskabúöinni hinir sígildu léttu feröa-
lagspokar úr nælonefni sem kosta, eins og þessi á
myndinni, 850 krónur.
Myndaalbum með stæl
Unglingarnir vilja engin venjuleg myndaalbúm
undir fermingarmyndirnar. Þetta þurfa aö vera
sérstaklega skreytt albúm meö myndum við
þeirra hæfi. Verslunin Amatör, Laugavegi 82, sími
12630, selur einmitt slík albúm af öllum möguleg-
um stærðum og geröum og það frá aðeins 145
krónum og upp í 495 krónur. Til eru einnig
hefðbundin en dýrari albúm sem kosta upp í 860
krónur. Þá fást myndarammar einnig í þúsunda-
tali.