Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Blaðsíða 15
DV: FIMMTUDAGUR 21i MARSI985. Fermingárgjáfahándbók •'£55 Sanyo samstæðan Það þarf ekki mikið pláss í herberginu til aö koma fyrir Sanyo hljómtækjasamstæðunni því hún er ákaflega létt og fyrirferöarlítil þó kraftur sé í henni. Útvarpið er með þremur bylgjum, magn- arinn er 2X15 sínusvött, tón jafnari fylgir og tvöfalt kassettutæki með ALC sjálfvirkum hæðarstilli í upptöku, plötuspilarinn er reimdrifinn og hátal- arnir eru tveir. Samstæðan ískáp kostar þó aðeins 24.689 krónur miöað við staögreiöslu. Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Simi 9135200 Frá Hutschenreuther Þessir fallegu, hvítu postulínsvasar eru frá hinu heimsþekkta þýska fyrirtæki Hutschenreuther. Þeir fást í Corus, Hafnarstræti 17, og er sérlega skemmtiiegt að gefa þá með einni rós í. Vasarnir kosta, frá hægri á myndinni, 368, 536, 432 og 491 krónu. Þýskt gler Kertastjakar eru alltaf mjög skemmtileg gjöf og þá ekki síst ef þeir eru vandaöir eins og þessir sem fást í versluninni Corus, Hafnarstræti 17. Verðið er líka við allra hæfi því þeir kosta frá aöeins 321 krónu. Keramiklampar í versluninni Corus, Hafnarstræti 17, er mjög fjöl- breytt úrval af fallegri gjafavöru, t.d. fást þar enskir keramiklampar með hvftum skermi og kúlulampar. Þessir lampar eru einnig á góðu verði. Það er upplagt að gefa fermingarbarninu nytsaman hlut í herbergið og þá sakar ekki að hann sé vandaður. Kertakúlur Þessar skemmtilegu kertakúlur úr gleri fást í versluninni Corus, Hafnarstræti 17. Þær geta hangið niöur úr loftinu, ein eða fleiri saman, eða f glugga. Þessar kúlur eru mjög fallegar og skemmti- legar þegar búið er að kveikja á kertum í þeim. Þær kosta 423 krónur. Plattar með stjörnumerkj- um Er ekki upplagt að gefa fermingarbarninu stjörnumerkjaplatt- ann? Hann er einstak- lega vandaður, hann- aður af listamanninum Ole Winther. Plattinn er kókosblár að lit með ekta gyllingu. Hann fæst í Corus, Hafnarstræti 17, og kostar 1.180 krónur. Trúðar frá Bangkok Þessir trúðar eru langt að komnir en láta þó ekki á sér sjá nokkra þreytu. Þessir trúðar eru nýir á markaönum og fást aöeins í Corus, Hafnarstræti 17. Trúð- arnir eru mjög vandaö- ir, t.d. eru þeir með liðamótum. Þeir eru til hvítir, svartir og gráir og kosta 1.090—2.024 krónur. CORUS Kápur — jakkar — buxur — pils í versluninni Kápunni, Laugavegi 66, sfmi 25980, er mjög mikið úrval af fallegum kápum. Sérstak- lega eru skemmtilegir fermingarjakkarnir í Ijósu litunum sem svo mjög eru vinsælir nú. Jakkarnir eru stórir og víðir, eins og ungu stúlkurnar vilja hafa þá, en þó mjög léttir og þægilegir. í kápunni geta mömmurnar og ömmurnar einnig fengið sér fallega kápu fyrir fermingarnar. Léttar og falleg- ar kápur fyrir jafnt ungar stúlkur sem þær eldri fást í Kápunni. Sanyo ferðastereotæki Þetta ferðastereotæki, sem er með lausum hátöl- urum, er með fjórum útvarpsbylgjum, 2X5,5 sfnusvött og með tónjafnara. Tækið, sem er glæsilegt á að líta, kostar 12.065 krónur. Hjá Gunnari Ásgeirssyni er gffurlegt úrval af góðum ferðastereotækjum á mjög góðu veröi. LAUGAVEGI 66 Husqvarna saumavélin Nú er f tísku að sauma, jafnt hjá ungum sem þeim eldri. Saumavél í fermingargjöf er því ekki fráleit hugmynd, enda er slík gjöf framtíðareign. Hus- qvarna saumavélin, sem fæst hjá Gunnari Ás- geirssyni, er til í mörgum gerðum og alveg frá 12.000 krónum. Optima 190 kostar 16.587 kr. og Op- tima 150 kostar 13.753 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.