Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Page 28
68
Fermingargjafahandbók
DV. FIMMTUDAGUR 21. MARS1985.
Tískuklukkur
Þessar tískuklukkur, sem fást hjá Guðmundi B.
Hannah úrsmiö, Laugavegi 55, sími 23710, eru
ekki bara til skrauts því þær eru fljótar að koma
unglingunum upp úr rúminu á morgnana. Þessar
klukkur, sem fást í mörgum litum, kosta 1.050 og
1.200 krónur. Einnig fást margar aðrar skemmti-
legar klukkur á 680—2.000 krónur.
Ódýr
skrifborðsstóll
Það er ekki annaö hægt
aö segja en að hann sé
á alveg ótrúlegu veröi,
þessi skrifborðsstóll
sem fæst í Valhús-
gögnum; Ármúla 4.
Stóllinn er með pumpu
eins og allir góðir stólar
og þar fyrir utan meö
stillanlegu baki. Þó
kostar hann ekki nema
2.900 krónur. Hægt er
aö velja um rautt eða
brúntáklæði.
Það sem unglingarnir vilja
í versluninni Body Shop er mikið úrval af
skemmtilegum vörum sem unglingarnir kunna
vel að meta. Má þar nefna hinar si'gildu, þægilegu
espantrillur sem kosta aðeins 250 krónur, blæ-
væng sem kostar 98 kr., netagrifflur á 230 kr. og
Body Shop körfu á 335 krónur, auk ýmissa snyrti-
vara, svo sem gel, bæði litað og ólitaö. Body Shop
er á Laugavegi 69 og síminn er 12650.
Tískan hjá unga fólkinu
í Þúsund og einni nótt, Laugaveg 69, sími 12650, er
sannarlega hugsað fyrir unga fólkiö. Þar má líka
finna ýmsa hluti sem unglingarnir vilja fá í ferm-
ingargjöf. Duran Duran bindi kostar 150 kr., sól-
gleraugu 390—450 kr., Duran Duran sixpensari 340
kr., ennisband úr myndinni Karate Kid 160 krón-
ur, hanskar 250 kr., saummerki 60 kr., hálsfesti
140 kr., armband 90 og ökklaband 110 krónur. Hér
er þó aðeins örlítið brot af öllu úrvalinu.
Hjá Guðmundi B. Hannah úrsmið, Laugavegi 55,
sími 23710, er mjög mikiö úrval af fermingarúr-
um. Þessi á myndinni eru bæði mjög vönduð
ADEC úr, gullkvenúr og stálherraúr með tvöföldu
borði. Gullúr kvenna eru á verði frá 3.800 krónum
en herraúr eins og þetta á myndinni kostar frá
2.900 krónum. Margar aðrar gerðir og tegundir
eru á boðstólum hjá Guðmundi. Hann veitir sjálf-
ur alla leiðsögn.
Þessi einstaka frá Brother
BP 30 ritvélin er einstök í sinni röð í heiminum.
Hún hefur þrjár leturstærðir og gerir átta gerðir
línurita í fjórum litum og þremur stærðum. Þó
vegur hún aðeins 2,7 kg. Vélin gengur bæði fyrir
rafhlöðum og 220 volta straumi og hún skrifar
bæði lóöréttog lárétt. Auk alls þessa þá leggur hún
saman, dregur frá, margfaldar og deilir og þó
kostar hún ekki nema 14.745 krónur með straum-
breyti. Þessi vél fæst í Borgarfelli, Skólavöröustíg
23, sími 11372.
Sjónvarpstæki á 7.400
Það er hárrétt, svo ódýrt er það, þetta svarthvíta
sjónvarpstæki sem hentar mjög vel fyrir tölvur,
auk þess sem myndin er alveg skínandi í því.
Tækið gengur fyrir 220 volta riöstraumi og 12 volta
jafnstraumi. Þetta sjónvarpstæki fæst hjá Vilberg
og Þorsteini, Laugavegi 80, sími 10259.
Skartgripir fyrir þau bæði
Já, ekkert fermingarmisrétti ríkir hjá Jóhannesi
Leifssyni gullsmið, Laugavegi 30, sími 19209, því
hann hefur skartgripi jafnt fyrir hana og hann.
Ermahnappar úr siifri kosta 1.240 kr., bindisnælur
670 kr. og skyrtuhnappar 810 kr. Þá eru festar
alltaf vinsælar hjá stelpunum en þessi á myndinni,
sem er með rúbínsteini, kostar 2.562 kr.
Gullfestar, 9 kt., eru til og kosta frá 450 kr. og
silfurfestar frá 290 kr.
Rúmteppi sem þvo má í
þvottavél
Trúðurinn JFí. _ C~;~" T
. 1 1-7/1 vy,' "V ' V v,
kr. 1.174 . . v V i
Parið kr.
1.174.
PariÖ fæst í brúnum litum og trúðurinn í gráum grunnlit og vínrauðum.
Sænguverasett
Þetta fallega sængurverasett,
\ C\ kodda- og sængurver, fæst í
versluninni Erlu, Snorrabraut 44.
Sængurverasettið er hvítt með
hvítum og mislitum útsaumi,
100% bómull. Verðkr. 1.410.
Hannprtmberölunín Crla
Póstsendum.
Snorrabraut 44. Sími 14290