Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1985, Blaðsíða 36
Fermingargjafahandbók DV. FIMMTUDAGUR 21. MARS1985. 76 Sitt lítifl af hverju í versluninni Ljós og raftæki, Strandgötu 39, Hafnarfirði, sími 52566, er geysilega mikið úrval af margs konar gjafavöru: borðlampar, skrif- borðslampar og lampar af öllum geröum. Lamp- inn á myndinni er t.d. mjög vinsæll en hann kostar 782 krónur, krullubursti kostar 990 krónur og tölva frá Casio f leöurmöppu kostar 1.760 krónur. Það má ýmislegt finna til gjafa í Ljósum og raftækj- um. Sérstæflar dúkkur Þessar fallegu dúkkur fást eingöngu í versluninni Líbra, Reykjavíkurvegi 62, sími 54110. Þær eru japanskar og til í margs konar búningum. Þetta eru einmitt þær dúkkur sem stelpurnar vilja punta herbergin sfn með og hengja þær gjarn- an á vegginn. Minni dúkkan kostar 595 krónur og sú stærri 995 krónur. Einnig eru fáanlegar til fermingargjafa bómullarmottur, 140X70 cm, í mörgum litum á aðeins 475 krónur. Adec og Seiko Tryggvi Ólafsson úr- smiður í Hafnarfirði er nú fluttur f nýja og glæsilega verslun aö Strandgötu 7, sími 53530, og býður jjar með upp á fjölbreytt úrval af vönduðum úr- um til fermingargjafa. Á myndinni er Adec gullúr fyrir dömuna á 4.980 krónur og Seiko herragullúr á 6.450 krónur. Einnig býöur Tryggvi vekjaraklukk- ur og fallega skart- gripi. Fyrir fermingarstúlkuna Snyrtivöruverslunin Dfsella, Miðvangi 41, sími 51664, er ekki í vandræðum með að útvega stúlk- unni þaö sem hana vantar fyrir ferminguna. Hvít- ar slæöur fást á 110 krónur, hvftar silkislaufur á 300 krónur, blúndusokkabuxur á 481 krónu, en þær eru til frá 205 kr.,hvítir nethanskar á 290 kr. og Ijósbleikir blúnduhanskar á 390 kr. auk margs annars. Einnig fást snyrtivörur og margs konar gjafavara f mjög miklu úrvali, til dæmis body lotion frá Nina Ricci á 927 krónur í glæsilegum gjafaumbúðum. Þá eru þafl f iskibolludósirnar Þær vöktu óskipta athygli fyrir jólin, þessar fiski- bolludósir sem svo haganlega hefur verið breytt í skemmtilega lampa f öllum litum. Nú eru þær komnar aftur í Rafbúðina, Auðbrekku 49, Kópa- vogi, og kosta aöeins 460 krónur. Fiskibolludósirn- ar, ef svo má kalla þessa sérstæðu lampa, eru til svartar, rauðar, bláar, gular og brúnar. Píramít- inn er Ifka alveg „spes" og hann kostar 566 krónur. ORIENT QUARTZ Gluggateppi Þetta gluggateppi á myndinni kemur alla leið frá Perú þar sem það er handunnið. Það er sérlega skemmtilegt í stórum sem litlum gluggum eða bara sem veggteppi. Hægt er að velja um misjafnar myndir en teppið kost- ar 2.200 krónur. Það fæst í Ossu, Glæsibæ, sem sérhæfir sig í sér- stæðum listmunum frá fjarlægum löndum. Hvítar steinleirstyttur í versluninni Ossu, Glæsibæ, er mjög mikið úrval af fallegum fermingarstyttum, til dæmis þessi á myndinni sem kostar 1.630 krónur. Einnig fást handunnir keramiklampar í öllum litum á 750 krónur. í Ossu er einnig hægt að fá sérstæðar bókastoðir og fallegar leðurskreytingar á vegg. Þægilegur afl sofa í Þessi fallegi, hvíti nátt- kjóll, sem fæst í versl- uninni Madam, Glæsi- bæ og Laugavegi 66, er úr 100% bómull. Hann er til fyrir fermingar- stelpur, jafnt stórar sem litlar. Slíkur nátt- kjóll sem þessi er mjög vinsæll enda eru stuttir náttkjólar nú mjög í tísku. Ekki sakar að hann er með japönskum stöfum sem enginn veit, nema þær í Madam, hvað þýðir. Kannski þær láti það uppi. Náttkjóllinn er á mjög góði verði, aðeins 795 krónur. Bómullar- frottó- sloppur Sloppar eru alltaf góð gjöf, sérstaklega passa þeir vel til fermingar- gjafa því þá eru ungu stúlkurnar búnar að slfta barnasloppunum. Þessi hvfti sloppur á myndinni er mjög létt- ur og þægilegur og fæst bæði stuttur og síður. Hann kostar 1.590 krón- ur. Auk hans eru marg- ir aðrar fallegir sloppar í Madam, Glæsibæ og á Laugavegi 66. Fæsthjá úrsmiðnum Góðan daginn, frú. Hvar vorum við þegor ég lokaði í gœrkvöldi? Sannið þér til. Þór verðið áreiðanlega orðinn vanur þeim eftir svona tvo daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.