Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Page 19
DV. LAUGARDAGUR13. APRÍL1985. 19 Bandaríkin: Rithandargreining við mannaráðningar Næst þegar þú sækir um vinnu skaltu gæta vel aö því hvemig þú skrifar. Þaö gæti nefnilega hugs- anlega skipt sköpum um hvort þú verður ráöinn í starfið sem þú sækir um. Sú er aö minnsta kosti orðin raunin í Bandaríkjunum. I fjölda fyrirtækja þar tíðkast þaö nú aö rit- handarsérfræðingar fara yfir starfs- umsóknir og meta umsækjendur. „Þaö gefur manni tækifæri til þess aö greina kjarnana frá hisminu meöal umsækjenda,” sagði Pierre Gazarian, forseti Renault verk- smiöjanna í Bandaríkjunum, sem notar rithandarsérfræðing til þess aö velja úr umsóknum. Rithandarsérfræöingar telja að samband milli þess hvemig menn skrifa og hvemig þeir hugsa og breyta sé fullsannað. Iris Holmes er einn vin- sælasti handritargreinirinn. Fyr- irtæki hennar heitir Huivista og er í Louisville í Kentucky. Fyrirtækið er eitt hiö stærsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Holmes segir aö rannsóknir hennar byggi á uppgötvunum evrópskra sálfræðinga og styðjist við rannsóknir fjölmargra háskóla, sér- staklega háskólans í Miinchen. 1 einni þeirra rannsókna voru rithandargreiningar bomar saman viö niöurstööur sálfræðinga sem tóku viötöl viö sömu menn og gáfuvitnisburð. Tekið alvarlega fyrir tveimur árum „Sálfræðingar og rithandar- greinar voru yfirleitt mjög sammála í greiningum,” segir Holmes. Holmes neitar að gefa upp viðskipta- vini sína en segir aö þar á meðal séu mörg stærstu fyrirtæki í Banda- ríkjunum. Hún viöurkennir að margir efa- semdamenn flokki handskrift meö teblöðum og stjömuspeki. Einmitt þess vegna segir hún aö viöskipta- vinir hennar vilji helst ekki aö komist í hámæli aö þeir noti þessar aöferöir. Samt sem áður segir hún aö um það bil 5000 bandarisk fyrirtæki ráöfæri sig viö rithandarsérfræöinga um ýmsar ákvarðanatökur, þar á meöal hvort ráöa eigi umsækjanda og hvar í fyrirtæki eigi aö nota hann. Sheila Kurtz, annar rithandarsér- fræðingur, forseti sliks fyrirtækis sem er á Manhattan, segir aö rithandarsérfræðingar hafi fyrst haslaö sér völl í Evrópu en fyrir um þaö bil tveimur árum hefði verið farið aö taka þá alvarlega í Banda- rikjunum iika. Einn viðskiptavina hennar sagði að þegar hann heföi ráðiö umsækj- anda um starf þrátt fyrir viövörun hennar heföi hann venjulega iðrast þess. Hann hefur borgaö 20 til 30 sinnum meira í laun og þjálfun heldur en greiningargjöld. Kurtz sagöi aö hún tæki á miUi 90 og 250 dollara fyrir rithandargreiningu. Bjartsýnisskrift Daniel Boone, sem er forseti fyrir prentfyrirtæki, segist ráðfæra sig viö hana út af starfsumsóknum og öörum persónulegum ákvörðunum. Hann bendir öllum stjómendum sinum á aö láta í té rithandarsýnis- hom til greiningar. „Þaö sýnir þeim styrkleika þeirra og veikleika og hjálpar þeim viö að umgangast starfsiiö sitt,” segir hann. Boone segir að greining á hans eigin hand- skrift sýni aö hann þurfi aö læra að treysta á innsæi sitt. Hann segir að rithandargreinir sinn hafi ráðlagt sér aö gera o-in og e-in stærri og opnari. Einnig hafi hann ráðlagt sér að setja þverstrikiö ofar á téiö. Allt þetta sýndi bjartsýni. „Þetta er þitt tal á pappír. Þegar ég tek upp penna segi ég við sjálfan mig: „Eg er jákvæöur”,” segir hann. Milton Kaufman er annar í hópi þeirra sem trúa á þetta. Hann er forstjóri fyrirtækis sem leitar að hæfum starfskröftum. Hann notar rithandargreiningu til viðbótar við heföbundin viötöl og yfirlit yfir starfsferil og nám. Kaufman er á þeirri skoöun aö per- sónuleiki sé lykillinn að velgengni margra framkvæmdastjóra og starfsmanna. Hann segir að ákveðin einkenni í skrift sýni strax sérstök einkenni. Til dæmis segir hann aö stór skrift og notkun upphafsstafa sýni tilhneigingu til aö drottna og samkeppnishyggju. Halli til hægri, hæfiiega fast skrifaö sýni góöa dóm- greind og hæfileika til forystu. „Þetta er tiltölulega litt reynt,” segir John Tumer sem sér um mannaráöningar og vinnuskipulag. „Þaö er óvenjulegt að velja fólk út frá þessum forsendum og manna- ráðningar eru mikilvægar ákvaröanir. Við viljum vera hæfilega íhaldssamir.” V / ^ |4' '<l - að uélxita Kannski borgar si<3 U* h ýÁ t fk A QÉám í***~rf~ ' JnM™ ^ ^ maÁ/UcOo*. ^ Nýtt - Nýtt! dibílaVVd„ V Mosfellssveit SIMI 666936 op» ki TOGGURHF. SAAB UMBODID BÍLDSHÖFÐA 16. SÍMAR 81530 OG 83104 Heilsusamleg og árangursrík sólböð eru markmið okkar HAFNARBÓÐIN nriagarði NN ásve: A gi 1|7 sirrji: 25I2B0 itofa 4fi£2Q

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.