Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1985, Síða 8
DV. FÖSTUDAGUR10. MAl 1985.
Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd
Söluturninn og myndbandaleigan
afl Höteigsvegi 52. Þar eru mynd-
bandaspólur leigðar út mefl helm-
ingsafslœtti. „Gerum þetta tii afl
auka söluna," segja eigendur.
„Undirboð," segja samtök mynd-
bandaleiga.
DV-mynd VHV.
Spólur á
helmingsafslætti
Samkeppnin á islenska myndbanda-
markaðnum fer stöðugt harönandi. Nú
munu ýmsar myndbandaleigur vera
farnar að bjóöa viðskiptavinum sínum
hagstæð útlánskjör. Menn taka á leigu
ákveðinn fjölda af spólum og fá nokkr-
ar fritt i kaupbæti.
En sennilega bjóöast útlánskjör vart
betri en í söluturninum Háteigsvegi
52. Helmingsafsláttur skal það vera.
Fólk tekur tvöfalt meira
„Við erum fyrst og fremst að þessu
til að auka söluna,” sagði Sigurður
Gunnarsson, ánnar eigandinn, í sam-
tah við myndbandasiöuna. „Við leigj-
um allt efni sem við erum með á 60 kr.,
eöa með helmingsafslætti. Það eru
tvær vikur síðan við byrjuðum á þessu
og viðskiptavinirnir virðast vera mjög
ánægðir. Fólk tekur tvöfalt meira en
áður og það er nánast allt efni úti.”
Sölutuminn Háteigsvegi er ekki í
samtökum myndbandaleiga.
— Hvaða viöbrögð hafið þið fengiö
frá öðrum leigum vegna þessara láns-
kjara?
„Engin. Þaö er öllum frjálst að
leigja eins og þeir kæra sig um. Það
eru ýmiss konar útleigusamningar í
gangi í bænum. Sums staöar fá menn 3
spólur fríar ef þeir leigja 15. Við
ákváðum aö fara þá leið að gefa
helmingsafslátt af öllum spólum. Það
hefur gefist vel og við munum halda
þvi áfram,” sagði Sigurður Gunnars-
son.
En hvemig skyldi þetta mál horfa
við samtökum íslenskra myndbanda-
leiga?
„Þetta stenst ekki"
„Þetta er undirboð. Við lítum mjög
alvarlegum augum á þetta,” sagði
Þóroddur Stefánsson, formaður
samtakanna. „Leiguverð á spólum
hérlendis er í algjöm lágmarki miöað
við nágrannaþjóðimar. Meðalverð á
spólu í innkaupi er ca 4000 kr. Ef deilt
er í þá upphæð með 60 kemur í ljós að
leigja þarf spóluna 67 sinnum til þess
aö hún borgi sig. Spólan er orðin gat-
slitin áður en þessum 67 skiptum er
náð. Þetta dæmi stenst því engan veg-
inn.
Og það sem meira er. Svona nokkuð
verður til þess aö hægja á endumýjun
á markaönum og gæðin minnka. Þetta
kemur því ekki heldur viðskiptavinun-
umtilgóða.”
— Einhverjar aðgeröir af hálfu sam-
takanna út af þessu?
„Nei, þetta er frjáls markaður.
Menn ráða sinni verðlagningu sjálfir.
Við getum ekki gefið neitt ákveðið
verð. Nú fer rólegur tími í hönd á
myndbandamarkaðnum og þá vilja
sumir gripa til neyðarúrræða sem
þessa. Við því er ekkert að gera,”
sagöi Þóroddur Stefánsson, formaður
samtaka myndbandaleiga.
Hvað nœst?
Eitthvaö hlaut að gefa eftir. Skefja-
laus innflutningur á myndböndum
hefur orðið til þess að markaðurinn er
orðinn yfirmettaður. Um leið harönar
samkeppnin um viöskiptavinina. Fróö-
legt verður að sjá hvaöa stefnu þessi
mál taka á næstunni. -ÞJV.
Myndir:
1. RITA HAYWARD
2. NAKED FACE
3. THE QUESTION
4. THE NATURAL
5. KILLJOY
6. ARABlU LAWRENCE
7. PHILADELPIA EXPERIM
8. CONAN 2
9. DOUBLE NEGATIVE
lO.GLORY BOYS
Pœttir:
1. RETURN TO EDEN
2. EVER GREEN
3. ELLIS ISLAND
4. CHIEFS
5. EMPIRE INC
6. STRUMPARNIR
7. GAMBLER
8. VlKINGASVEITIN
9. LAZE
10. FALCON CREST
>
Q
Vinsældalisti DV er byggður á upplýsingum frð 10 myndbandaleigum
vifls vegar um landifl.
Tónlist
IAL Af
MURDER
Pllí)!®
SGte, ÓICKtNSOV
Leikstjórí: BorísSagal.
Aðalhlutverk: Christopher Piummer, Angie Dickinson.
Breskt sjónvarpsleikrit byggt á sögu eftir
Frederick Knott.
Uppgjafa-tennisleikari (Plummer) ákveður
að drepa konuna sina (Dickinson). Hann fær til
verksins smákrimma nokkum. Odæðið skal
framið meðan hann sjálfur er staddur í veislu
með fyrrum elskhuga konu sinnar. Pottþétt
fjarvistarsönnun og allt viröist tryggt. En ekki
fer allt eftir áætlun. Eiginkonan nær nefnilega
að drepa tilræðismanninn og lögreglan kemst i
spilið. Á ýmsu gengur áður en mál eru til lykta
leidd.
Hér er á ferðinni ekta enskur „þriller”, a la
Agatha Christie. 1 fyrstu virðist vanta persónu á
borð við Piro til að leysa gátuna, en þumbara-
legi varðstjórinn leynir á sér. Hann er ekki allur
þar sem hann er séöur.
1 aðalhlutverkum eru Christopher Plummer
og Angie Dickinson. Þau skila sinu bæði ágæt-
lega, sérstaklega er Plummer góður í hlutverki
eiginmannsins. Dial „M” for murder er ágæt
tilbreyting frá hefðbundnu bandarísku
afþreyingarefni.
Pink Floyd er vafalaust ein af frægari hljóm-
sveitum vorra tíma. Með Roger Waters í broddi
fylkingar hefur þeim félögum tekist að skapa
sér töluverða sérstöðu innan poppsins, gæöin
eru sett ofar öllu.
A þessu tónlistar-myndbandi er aö finna 12
ára gamla „live” upptöku meö hljómsveitinni.
Sú var gerö á Italiu, nánar tiltekið i rústum
Pompeii. Tónlistin hefur, rétt eins og borgin
fomfræga, staöist fremur illa tímans tönn.
Þetta hljómar hálfgamaldags. Þó verður að
taka mið af þvi aö á þessum árum var hljóm-
sveitin önnum kafin við aö finna tónlist sinni far-
veg. Þetta er þvi eins konar forsmekkur á það
sem síöar átti eftir að heyrast frá þeim félögum.
Dark side of the moon, platan sem kom út
tveimur árum eftir aö þessi upptaka var gerð,
er nærtækt dæmi um það.
Það vekur sérstaka athygli á þessu mynd-
bandi hve tæknileg úrvinnsla er góð. Hljóðið og
myndatakan eru til fyrirmyndar. Umhverfið
gefur siöan öllu saman þennan framandi blæ
sem Pink Floyd aðdáendum er að góðu kunnur.
Bestu lög: Echoes 1 og 2.
©
1|
<a|
t o
O £
LL
Lelk«t)óri: DanM Pattle.
AðalHlutverk: Paul Nawman.
Edward Aanar, Kan Wahl.
Bronx hverfið er ömurleikinn uppmálaöur.
Þar ganga um götur eiturlyfjasalar og
moröingjar. Enginn er óhræddur um lif sitt,
ekki einu sinni lögreglan.
Við fylgjumst meö lögreglumanninum
Murphy (Newman) í starfi og leik. Hann er bú-
inn að vera lengi i löggunni og þekkir hverfið út
og inn. Hann þolir því illa þegar nýr yfirmaður
tekur við stjóm mála og fer að beita nýjum
aðferðum i baráttu við glæpalýöinn. Það verður
m.a. til þess að lögreglumaður drepur óbreyttan
borgara í óeiröum sem upphefjast vegna nýrra
starfsaðferða lögreglunnar. Þessir atburðir
verða til þess að Murphy ákveður aö hætta í
lögreglunni. Inn í þetta allt saman blandast svo
ástir Murphys og hjúkrunarkonu, sem deyr að
lokum vegna ofneyslu eiturlyf ja.
Þetta er sæmilegasta spennumynd sem sver
sig i ætt við aðrar bandariskar lögreglumyndir.
Hæfileg harka meö samblandi af ást og öðrum
mannlegum tilfinningum. Paul „gamli” New-
man stendur svo alltaf fyrir sínu.
LeikstjóH: Tony Scott.
AAalhlutverk: C. Deneuva, Davkl Bowla,
Suaan Barandon.
Þreytuleg vampírumynd. Aldagamlar
egypskar vampírur halda sér gangandi á
mannablóði. Þær lokka til sin fómarlömb og
sjúga blóð úr æðum þeirra. Namm, namm.
Þessi mynd væri sennilega flestum gleymd ef
aðstandendum hennar heföi ekki dottið i hug að
fá til liðs við sig David nokkum Bowie. Sá er
nefnilega býsna þekktur. Bowie leikur í mynd-
inni elskhuga vampírunnar. Hlutskipti hans
veröur að eldast og deyja. Það hljómar e.t.v.
hlægilega en eini ljósi punktur myndarinnar er
aö sjá piltinn eldast um 80 ár á ca 10 min. Sá
hluti er alveg ágætlega gerður. Síöan er Bowie
úr sögunni og við tekur kvenlæknir nokkur sem
vampiran heillar til sin. Þær lesbast dagstund i
rúminu og að þeim leik loknum hafa þær
blandaö blóöi. Hlutskipti beggja er að lifa á
mannablóði.
Svona vampírumyndir eru fyrir löngu orðnar
úreltar. Maður er nokkuð hissa á aö Bowie skuli
leggja ööm eins lið. En hann er nú frægur fyrir
aö feta ekki alltaf troðnar slóðir i verkefnavali.
Létt flipp á þeim bæ.
★ ★ ★ ★ Frábær
★ ★★ Góð
★ ★ Miðlungs
★ Léleg
O Afleit