Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1985, Blaðsíða 7
7
DV. FÖSTUDAGUR17. MAl 1985.
NÝTT EFNI Á MYNDBÖNDUM
Fámennur, þrautþjálfaöur
bófaflokkur hefur þaulskipu-
lagt stórfenglegt rán á bryn-
vörðum flutningabíl, sem hlaö-
inn er gífurlegum fjármunum.
Hvert einasta smáatriði hefur
verið hugsað út íystu aesar. En
þá gerist hið óvænta. Ófyrirsjá-
anlegt slys veldur gríðarlegri
sprengingu sem leiðir til dauða
þriggja meðlima bófaflokksins.
Eftirlifandi eiginkonur þeirra
eru staðráðnar í að láta ekki
hér við sitja, heldur Ijúka ætl-
unarverki eiginmannanna.
Dolly, ekkja höfuðpaursins,
grefur upp allar áætlanir og
upplýsingar eiginmannsins sál-
uga og tekur að sér forystuna.
Hin skapmikla Linda og hin lít-
illáta, tilfinninganæma Shirley
feta einnig í fótspor fallinna
eiginmanna sinna. Þegar
fjóröa konan, Bella, bætist í
hópinn, leggja þær til atlögu.
En útsmognir undirheimafor-
ingjar hafa haft njósnir af ráða-
bruggi ekknanna og eru stað-
ráðnir í aö komast yfir gögnin
sem þær hafa aflað sér. Þess-
vegna láta þeir fylgjast náið
með hverju fótmáli ekknanna.
Fyrrihluti
ÍSLENSKUR TFXTI
Seinni hluti
ISLENSKUfí TEXTI
MYNDBANDALEIGUR,
TRYGGIÐ YKKUR EINTAK
SEM FYRST
JLXXXXXXT#
p Mcð ísiemÉu
talí.
Nú í vikunni koma út tveir nýir þættir um Strumpana, nr. 7 og nr. 8.
Strumpamyndböndin eru afar vel gerö aö öllu leyti. Þaö eru teikni-
meistarar Hannah og Barbera-fyrirtækisins sem annast alla teikni-
vinnu við þættina, en þetta ágæta fólk geröi þættina um Steinaldar-
mennina og Jóga björn á sínum tíma. Þaö er síöan hinn eini sanni
Laddi sem talar fyrir Strumpana af slíkri snilld aö annaö eins hefur
ekki heyrst á íslenskum myndböndum fram aö þessu. Þættirnir um
Strumpana eru spennandi, vandaöir og þroskandi, því jafnan er
byggt á jákvæöum og góöum boöskap í hverri sögu. Þetta er því
barnaefni sem óhætt er aö mæla meö viö alla uppalendur.
STRUMPARNIR
leð tslcTisf
s> tali.
McApbisl
éL? 'táJi.
tteð íslensl
U tali.
Adur hafa komið út
sex þættir um Strumpana,
með íslensku tali